Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1988, Blaðsíða 7

Æskan - 01.06.1988, Blaðsíða 7
§ það í votta viðurvist að þú hafír beðið um Þetta sjálfur.“ ® S'V° ég hann. Ekki jafnfast svo f ^ e® vinstri handar högg en þó ast að hann kom ekki fyrstu mínút- tnat af eðlisfræðitímanum. fót Var Cr Steinar?*1 sPurði Lúlli lág- aðh ^ köllum hann það vegna þess ann er svo lágvaxinn) h' 'i/"tli ^ann hafí ekki farið til ,u funarkonunnar,“ svaraði ég. „Hann KemUr bráðum.“ ej ar hitti ég naglann á höfuðið því að nutt þá kom Steinsi inn með plástur á n<£gri \t 6 vanganum, reyndar ekki eins stór- 11 (|f.^ann sem fyrir var- u^lllu mig í hádeginu,“ hvæsti hann m leið og hann gekk fram hjá mér. egar tíminn var liðinn kom Steinsi til min°g sagði: r gleymdi að segja þér að þú átt að ra Upp til skólastjórans.“ ‘ðustu orðin sagði hann háðslega og ® °tti svo. v- ^úlastjóranum sagði ég að ég hefði að því að hann hefði beðið um þetta s)alfur. >>Spurðu hvern sem er. Við vorum í miðálmunni.“ ^kólastjórinn gafst upp. ,. ”Lg veit ekki hvað ég á að gera við sagði hann. „Þú virðist haldin ein- Verri áráttu.“ ar var ég alveg sammála. ®sti tími var stærðfræði. Eins og ég ^ 1 áður er Andrés „meiriháttar“ u-ari sem kann að taka gríni. Stund- . eyddi hann meira að segja heilum aði31Se^*a °^ur brandara. Nú skrif- hann flókið reikningsdæmi á töfluna 0 auð hverjum sem væri að koma upp feikna það. Við botnuðum hvorki P né niður í dæminu. óna )0r^Ur er einn Þeirra óþolandi pers- Sem alltaf reyna að vera fyndnar. rp.'u S’ Þetta getur nú hvaða auh sem er uenað,“ sagði hann. ”Nú, komdu þá,“ sagði Andrés. ”Nei, ég er enginn auli.“ ■ ”Ha, ha, ha. . .“ heyrðist úr öllum hornum. síðasta tíma fyrir hádegi sagði Siggi 10 Steinsa: ”Lamdi hún þig aftur?“ § þegar hann sá hvað Steinsi varð ^ndarlegur tók hann af sér gleraugun og , • Hann hló þar til hann var orðinn fauður í framan. ”themm, jæja, best að snúa sér að h f?fræðinm>“ sagði hann þegar hann 1 hlegið nægju sína. „Upprifjunin frá *sXANk í fyrra er nú svo auðveld. Við skulum ekkert vera að fara yfir efnið um lengd- ar- og breiddarbaugana. Það er bara hnitakerfi og það lærið þið í tíu ára bekk eða þar um bil.“ „Alveg rétt,“ hrópaði Njörður. „Eins og talað út úr mínu hjarta.“ „Hver segir að þú hafír hjarta?“ Svo fengum við frí. Hann Siggi er nú alveg frábær. Stundum gefur hann okk- ur frí í tímum vegna þess að hann veit ekki hvað hann á að láta okkur gera eða af því að hann nennir ekki að hafa okk- ur. Þegar allir voru komnir fram og Siggi farinn kom Steinsi askvaðandi og sagði: „Má bjóða dömunni út fyrir að slást?“ „Með ánægju,“ svaraði ég. „Nei, með osti,“ pípti í Nirði. „Hérna, Dagný. Taktu töskuna mína.“ Steinsi gekk á undan út í port, svo kom ég og Dagný trítlaði síðust með töskuna sína á bakinu og mína í fanginu. Og slagurinn byrjaði. Úff, hann var sterkur, sterkari en ég bjóst við. En svo kom kennari og eyðilagði allt. Þeir leggja yfírleitt ekki þá lykkju á leið sína að fara út en það var kominn stór hópur af krökkum í kringum okkur og hvöttu ýmist mig eða Steinsa. Það var töluverð- ur hávaði svo að þessum kennara var far- ið að þykja þetta grunsamlegt. Okkur var stíað í sundur með erfiðismunum því að við vorum svo áfjáð í að slást. „Hvernig dettur ykkur þetta í hug?“ spurði kennarinn æstur. Steinsi hætti að brjótast um í höndum hans, benti á plástrana og sagði: „Sérðu þetta? Hún gerði það! Og ég læt hana ekki komast upp með að kýla mig á kjammann - tvisvar þar að auki. Þú hlýtur að skilja það!“ Jú, jú, hann skildi það svo sem. Með þessu, og loforði um að halda keppninni ekki áfram, var okkur sleppt. En það varð að halda okkur í hæfilegri fjarlægð hvoru frá öðru annars var hætta á því að við rykjum saman. Við Dagný fórum út í sjoppu. „Brrr, mér er kalt,“ sagði Dagný. „Mér líka. Það hlýtur að vera frost.“ „Það þarf ekki að vera. Það er svo hvasst.“ „Þegar við komum inn aftur fórum við beinustu leið inn á kvennasalerni. Þegar ég leit í spegilinn og ætlaði að bera á mig meira af bólufelara æpti ég næstum því. Bólurnar voru allar orðnar bláar. „Dagný, hjálp!“ Hvað á ég að gera? Það þýðir ekkert að bera á þetta. Það felur ekkert!“ En Dagný bara hló og útskýrði fyrir mér að bólurnar væru eins og varir, yrðu bláar í kulda. Það gerðist ekkert markvert það sem eftir var dagsins og ekki heldur þann næsta, að minnsta kosti ekki í skólanum. En um fimmleytið hringdi síminn. „Halló?“ „Halló, er þetta Lilja?“ »Já.“ „Blessuð. Þetta er Steinsi.“ „Ha? Já, eh, sæll.“ „Heyrðu, ég ætlaði að biðja þig afsök- unar á þessu í skólanum í gær.“ „Já, fyrirgefðu líka. Ég byrjaði.“ Ég var alveg hlessa. Ekki hafði ég þor- að að hringja í hann til að biðja hann afsökunar. „Svo ætlaði ég að biðja þig annars.“ »Já?“ „Hérna. . . viltu koma á ballið í skól- anum í kvöld?“ Ég trúi þessu ekki! Er hann virkilega að biðja mig að koma með sér á ball? Ég sem sló hann tvisvar og slóst við hann. Ég hélt að hann hataði mig. „Ja. . . ég veit ekki. . .“ stamaði ég. „Ég er ekkert viss um að þú viljir það. Ég fæ bláar bólur í kuldanum.“ En þetta hreif ekki. Klukkan átta um kvöldið var ég á dansgólfinu í skólanum með tvo dans- andi plástra fyrir framan mig. (Sagan hlaut aukaverðlaun í samkeppni Æskunnar og Rásar 2. - Gaman er að geta þess að langamma og -afi Bjargar í föðurætt voru Ragnheiður Jóns- dóttir rithöfundur (- er kynnt á bls. 24) og Guðjón Guðjónsson skólastjóri, ritstjóri Æskunnar 1942- 1955) 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.