Æskan - 01.03.1989, Side 21
Já, grænmeti og ávextir eru á myndinni en hvaða verkfæri er þarna? Ekki er
það notað við uppskeru. Raunar virðist það ekkifalla vel inn í myndina. Engu
o.ð síður á það sinn stað á reitunum og án þess verður gátan ekki leyst.
I gátunni eru þrjú sjö stafa orð. Hver eru þau?
Sendið lausn til Æskunnar, pósthólf 523, 121 Reykjavík. Þrenn verðlaun.
Munið að geta um aldur.
Léstu
klippa þig?
Eftiifarandi bréf barst sænska
blaðinu Kammeratposten:
Ég er kennari í grunnskóla í
Várby Gárd skammt frá Stokk-
hólmi. Fyrir skömmu lét ég
skera hár mitt styttra en nokkru
sinni fyrr. Ég leysi aðra kenn-
ara af í fjarveru þeirra og þess
vegna fer ég í marga bekki. Að
sjálfsögðu dundu spurningar á
mér úr öllum áttum. Fljótlega
varð ég leiður á að svara þeim.
Ég bað því nemendur í 5. bekk í
Várbackaskolan um að gera til-
lögur að svari fyrir þann sem
spurður er: Léstu klippa þig?
Meðal tillagnanna voru þessar:
Nei, ég er með hárkollu.
Nei, ég hef glatað hárkollunni.
Nei, en ég hef skipt um gler-
augu.
Nei, ég lagðist fyrir framan
sláttuvél.
Nei, en ég hef greitt mér.
Nei. Höfuðleðrasafnarar réðust
á mig.
Nei! Heyrðu, þú þarft aðfara til
augnlæknis!
Nei. Égfestist í lyftudyrum.
Nei, en ég var eitthvað utan við
mig þegar ég rakaði mig. . .
Nei, nei. Ég þvoði mér bara.
Nei, en þú?
Af hveriu í ósköpunum heldur
þú það?
Nei, er það?
Klippa og ekki klippa. . .
JÁÁÁÁÁ!!!
ÆSKAU 21