Æskan - 01.03.1989, Síða 44
Að fá sér síma
eftir Ingunni Þórðardóttur
Persónur: Skrifstofumaðurinn (S),
Guðmundur (G),
Frú Jósefína (J).
Sviðið er skrifstofa hjá Pósti og síma.
Guðmundur kemur inn úr dyrunum á
miklum hraða. Á hæla honum ryðst frú
Jósefína. Bæði ætla þau að sækja um
síma.
S: Svona, svona, engan asa. Skárri eru
það nú lætin í manninum.
J: Já, ég segi það sama.
G: Hvað kemur þetta kerlingunni við?
J: Ég er að flýta mér. Ég ætlaði
bara. . . .
S: Já, allt kvenfólk er alltaf að flýta sér.
- (snýr sér að Guðmundi) - Hvað var
það fyrir þig?
G: Ég ætlaði bara að sþyrja hvort það
væri hérna sem maður pantar sér síma.
S: Auðvitað, til hvers heldurðu annars
að ég sitji hér?
G: Ég ætla þá að sækja um að fá síma.
S: Einmitt það - fá síma handa sjálfum
þér?
G: Neei - ég fæ nú víst ekki að nota
hann einn. Kerlingin mín fær að hringja
líka en ekki oftar en einu sinni í viku.
J: Er röðin ekki komin að mér?
S: Engin læti hér. Allt kvenfólk er að
flýta sér. Guðmundur, hefurðu haft síma
áður?
G: Já, ég hafði nú síma en eiginlega
ekki. Það svaraði svo sjaldan þegar ég
hringdi í vini mína eða þeir voru ekki
heima.
S: Þetta skiptir ekki máli. Hvar áttu
heima?
G: Hvers konar spurningar eru þetta?
Þetta er bara eins og yfirheyrsla.
S: Við verðum að vita hvar þú átt heima.
Ef þú átt til dæmis heima í Safamýri för-
um við ekki að setja símann upp ein-
hvers staðar á Háaleitisbraut.
G: Nei, það gætuð þið ekki heldur ef ég
ætti heima í Álftamýri.
S: En, en þetta var nú bara til dæmis.
G: Ég vil ekki neitt til dæmis. Ég vil
síma.
S: Ég spurði hvar þú ættir heima.
G: Og þá svara ég: Álftamýri 1.
S: Það á þá að setja símann upp í Álfta-
mýri?
G: Nei, það á sko ekki að setja síma í
neina mýri. Það á að setja hann inn í
íbúðina mína.
S: Auðvitað, setja hann upp inni í íbúð-
inni þinni?
G: Já, náttúrlega eigið þið að setja hann
upp. Ætlið þið kannski að látan hann
liggja einhvers staðar?
J: Nú er röðin komin að mér. Ef þessi
Guðmundur segir Safamýri þá meinar
hann auðvitað Álftamýri.
G: En hvernig komst þá Háaleitisbraut-
in inn í þetta?
S: Hægan, hægan. Viltu eitthvert sér-
stakt númer, Guðmundur?
G: Já, það vil ég. Ég vil fá númer eitt.
S: Númer eitt er ekki laust.
G: Þá vil ég númer tvö.
S: Númer tvö er ekki heldur laust.
G: Þá vil ég bara númer eitt.
S: Ég var að segja að það væri ekki laust.
G: Þá vil ég númer 47. Það númer nota
ég af skóm og það er svo gott að muna
það.
S: Jæja, ég ákveð þá bara að símanúm-
erið þitt verði 305040.
G: Nei, nei, það er alltof stórt handa
mér. Það passar frekar á kerlinguna
hérna. - (Lítur á frú Jósefínu) -
J: Þú ættir að skammast þín, maður.
S: Síminn verður þá settur upp í mars.
G: Það á ekki að setja hann upp í mars-
Það á að setja hann upp í ganginum hja
mér.
J: Er röðin ekki komin að mér núna?
G: Bíðið aðeins. Ég ætla að segja dálítið
áður en ég fer. Það er þessi sími sem er
var að tala um. Ég ætla bara að segja
þetta: Ég ætla ekki að fá neinn síma.
S: Ætlarðu ekki að fá neinn síma?
G: Nei, ég ætla ekki að fá neinn síma aí
því að í húsið hjá mér í Álftamýri 1 er a^
flytja kerlingarskrukka sem ætlar ao
opna sælgætisbúð á fyrstu hæðinni og Þa
fer ég bara til hennar og fæ lánaðan síma
og fæ að hringja ókeypis. Það er miklu
ódýrara.
S: Út með þig, maður. Nú er röðin kom*
in að þér, frú. - (Guðmundur fer út) -
J: En ég ætla, sko, ekki heldur að fa
neinn sima.
S: Hvað, ætlar þú ekki heldur að fa
síma? Hvað kemur til?
J: Nei, ég er nefnilega kerlingarskrukk-
an sem ætlar að opna sælgætisbúð 1
Álftamýri 1.
44ÆSKAN