Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1989, Blaðsíða 21

Æskan - 01.05.1989, Blaðsíða 21
Kæra Æska! Ég sendi þér hugleiðingu um mengun. Hvað þarf að gera til varnar meng- un á jörð og hvað get ég gert? Mikil mengun er af reyk frá bílum og úr alls konar úðabrúsum. Meng- unin leysir upp ósonlagið og nú er talað um að göt séu komin á það yfir heimskautunum. Fræðimenn leggja fram kenningar um „gróðurhúsa- áhrif‘. Menn segja: „Hvað hef ég gert? Ekki neitt!“ En hvað um allar þessar verksmiðj- ur? Menga þær ekki? Sumir segja ef til vill: „Þetta höfum við frá forfeðrum okkar.“ En ég spyr: Höfðu forfeður okkar verksmiðjur? Helltu þeir sorpi og úr- gangi í sjóinn? Ég held að svörin við þessum spurningum séu NEI. Við erum sóðar. „Nú?“ segja kannski sumir. „Nei, ég fer vel með landið. Ég er ekki sóði. Kannski hinir en ekki ég.“ Við þessu er svarið: „Auðveldara er að sjá flísina í auga náungans en bjálkann í sínu eigin auga.“ Við getum gert margt til varnar mengun, til að mynda notað bifreiðir minna og gengið í vinnuna, reynt að koma í veg fyrir notkun úðabrúsa, og einkum að leitast við að ganga um landið eins og það sé lifandi en ekki einskis virði og í eigu okkar kynslóð- ar einnar. Auðvitað eigum við ekki landið. Ég tel að allir ættu að líta í eigin barm áður en þeir segjast ekkert menga. Hafa þeir aldrei ekið bifreið eða úðað úr brúsa? Jú, fiestir. Valgerður Einarsdóttir, Kollslœk, Hálsasveit, liorgarfjardars. Þakka þér fyrir þessi áminningar- orð, Valgerður. Að opna gluggann Kæra Æska! Ég vil þakka fyrir gott blað en það mætti fækka völundarhúsum. . . Ég ætla að senda þér skopsögu: Einu sinni voru Kínverji, Rússi og Hafnfirðingur í eyðimörk. Kínverj- inn var með blævæng, Rússinn með vatnsfötu og Hafnfirðingurinn með bílhurð. Þeir áttu þessi orðaskipti: Rússinn: Ef mér verður heitt helli ég vatninu yfir mig. Kínverjinn: Ef mér hitnar um of blaka ég blævængnum. Hafnfirðingurinn: Ef mér finnst of heitt opna ég bara gluggann! Nú ætla ég að beina orðum mínum til Kristínar Steinsdóttur: Ég vil endilega að þú semjir fram- hald af sögunum Franskbrauð með sultu og Fallin spýta. Að lokum: Hvað er ég gömul? Get- ur þú giskað á hvað ég heiti? Ég heiti sjaldgæfu nafni. ??? Svar: Eg giska á að þú sért ellefu ára og heitir Theódóra. - En ég œtla ekki að geta upp á nöfnum fleiri bréfritara. Fullt nafn á œtíð að rita undir bréf til Æskunnar. . . Ballett og karate Sæl, Æska! Hér eru nokkrar spurningar: 1. Er ballettskóli á Suðurnesjum? 2. En karateskóli? 3. Hvernig kemst maður í þáttinn Okkar á milli? 4. Hafið þið hugsað ykkur að endur- taka myndbirtingar og bókagjafir 0 afmælisbarna mánaðarins? Bryndís 13 ára - úr Keflavík. Svar: ad 1.-2.: Nei ... 3. Eins og áður hefur verið sagt fra' Við veljum af handahófi úr bréfu'n sem okkur berast, með ósk um komast íþáttinn. Sendið góðar my" ir með og getið þess ef þið viljio J þœr aftur. . . 4. Ekki á nœstunni. Heimilisfanginn Ágæta Æska! ^ Ég er mikill dýravinur og ar illa að fólk haldi hunda í borg- ^ irfarandi hendingar lýsa þeim hus unum mínum: Aldrei frjáls hann út svo fer, hans eðli er að hnusa. Þá toga í bandið tamast er þó tamt sé á staurinn gusa. Hann er lítið hundabarn, vill hlaupa og vera kátur ^ en bandið er stutt og bannað ge í brúnum augum er grátur. Margrét Eyjólfsdóttir frá Flate?' 20 ÆSKAN Stefán og Sálin. . . Elsku besta Æska! b,g hef skrifað þér ótal sinnum en Pað hefur aldrei verið birt. Ég vona Því að þetta bréf fái rými í dálkum Pínunt. M‘g langar til að biðja um vegg- j^ynd, límmiða, fróðleiksmola og einulisfang hljómsveitarinnar Sálar- ‘nnar hans Jóns míns. Mér finnst hún * islega góð! Hún er svo æðisleg að get ekki lýst því í orðum. ernmtilegasta lagið með henni er *g> bara þig. Mér þaetti líka vænt um að fá Stef- an Hilmarsson í þáttinn Aðdáendum svarað. ^ Hetur þú gefið mér ráð til þess að ta að naga neglur? Mig langar a aflega mikið til að hætta því. hg sendi mínar bestu kveðjur til nrðars Thórs, Einars Arnar, Stefáns ■> Þóru Huldar, Þóru Ágústs, arðar, Ægis, Hörpu Drafnar, Þór- 1Sar Eddu og Elínar Freyju. Heiðrún. •S'v, ’ar; Vee j . eSSmyndin fylgir þessu tölublaði. ^ar hafa verið prentaðir og ber- siðar. Fróðleiksmola um Sálina ,ans Jóns hður. míns fœrðu áður en langt Ý>nsu verður vart með orðum lýst «« 1 st°ð ceðislega má til að mynda 0 a atviksorðin afar, mjög, ákaflega f(lJ"rs^eyt‘n afar-, afburða-, bráð-, Qr œ,na-> feiki-, feikna-, íðil- og ógn- (h ess« Qra. •) er beint til margra bréfrit- na er fðtk byrji oftast á að af • Jle^ur veSna taugaóstyrks eða Iiq ‘ ru,n sálrœnum orsökum. Það hefu Vert>a at> vana °S eftir það haij fótk ákveðna tilhneigingu til að a hi áfram. Stundum hefur verið gripið til þess ráðs, eiitkum til að venja börn af því að naga neglur, að bera eitthvert bragðvont en hœttulaust eftti á negl- urnar en ekki skal mœlt með því hér. Vœnlegra er að reyna að komast að því hver hafi verið ástœða þess að tek- ið var upp á aó naga neglur og reyna að bœta úr vanda ef hann uppgötvast. Verið getur að nœgilegt sé að rœða málið á heimilinu en ef til vill þarf að leita til sérfrœðinga. Vandinn kann að vera leystur en (ó)vaninn að sitja eftir. Þá er ekkifrá- leitt að reyna að mynda annan vana í staðinn, til að mynda að eiga alltaf gulrœtur og grípa til þess að naga þœr ef fólk áttar sig í tíma. En ekki er ótrúlegt að margir séu svo annars hugar þegar þeir naga að þeir verði þess ekki varir fyrr en þeir hafa nagað „Ég er humar. . ." Kæra Æska! Við erum tvær stöllur af Ströndum og höfum mikið dálæti á íslenska handknattleikslandsliðinu. Getið þið birt viðtal við Bjarka Sigurðsson? Við leyfum okkur að láta skrýtlu fylgja: Einu sinni var karl á sjó að veiða. Hann hringdi í konu sína og sagði: „Ég er búinn að veiða tíu tonn af fiski og eina hafnfirska rækju.“ „Hvernig veistu að hún er hafn- firsk?“ spurði konan. „Af því að hún stendur alltaf uppi á dekki og öskrar: „Ég er humar! Ég er humar!“ Tvœr af Ströndunum. Svar: í 2. tbl. birtist viðtal við Alfreð og Héðin landsliðsmenn. Ekki er ólíklegt að röðin komi síðar að Bjarka. . . Erlendir pennavinir Kæra Æska! Þökk fyrir áhugavert blað. Mig langar til að koma með spurn- ingu. Ég hef mikinn áhuga á að kom- ast í samband við „samskiptastofnan- ir“ (Correspondance agency) í ýms- um löndum - til þess að eignast pennavini - en ég veit ekki hvert ég á að snúa mér. Sér einhver íslensk stofnun um þetta? Eða getur Æsku- pósturinn gefið mér heimilisföng ein- hverra slíkra stofnana, t.d. í Kína, Nýja-Sjálandi eða Ástralíu? Allar upplýsingar eru vel þegnar. Með fyrirfram þökk, I.A. Svar: í Æskupósti í 3. tbl. Æskunnar 1989 bauð Nanna Jónsdóttir aðstoð við þá er eignast vildu pennavini er- lendis. - Við höfum oft birt heimilis- föng klúbba sem útvega pennavini. Hér skal nokkrum aukið við: Association of Pen Friend Clubs of Japan, Hongo, P.O.Box No. 100, Bunkyoku, Tokyo, 113-91 Japan. Friends Forever Pen Pal Club, Box 20103, Park West Post Office, New York, NY10025. International Youth Service - PB 125, SF -20101 Turku - Finland. Porsgrunns pennevenn forbund, - V.A. Tvegárd, Postboks 636 - 3901 Porsgrunn - Norge. Þeir sem hafa löngun til að skrifast á við fólk í fjarlœgum löndum œttu að fylgjast með pennavinadálkum Æsk- unnar. Þar eru oftast nokkur nöfn er- lendra barna, unglinga - og jafnvel fullorðins fólks - er óska eftir penna- vinum á íslandi. Þar sem við getum ekki endurtekið upplýsingar um þjón- ustuklúbba margsinnis œttu þeir sem hafa áhuga á slíkum bréfaskiptum að skýra frá nafni og heimilisfangi í bréfum sínum - þá munum við senda Ijósrit með heimilisföngum nokkurra klúbba. Ábending um ritun fulls nafns og heimilisfangs á að sjálfsögðu við um öll bréf til Æskunnar. Við birtum þau undir dulnefni ef óskað er. ÆSKAN 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.