Æskan - 01.10.1989, Blaðsíða 9
»Ég var stödd í bíó þegar ég hitti
stelpu sem var að leita að þátttakend-
í keppnina. Hún bað mig að koma
á æfingu og ég ákvað að reyna."
— Hvernig var undirbúningi fyrir þá
^eppni hagað?
«Undirbúningurinn fólst mest í því
a& við fórum í líkamsrækt þrisvar í
v'ku og jafnoft á gönguæfingar."
~ Hvernig leið dagurinn þegar sú
keppni fór fram?
«Við komum klukkan tólf á hádegi
Hður á Hótel Borg þar sem keppnin
Var haldin. Þar fengum við hádegismat
" sem var bara þunn súpa! — og síðan
fórurn við í hárgreiðslu og andlitsförð-
Un- Okkur fannst ágætt að stytta tím-
ann meðan við biðum eftir að koma
kam og leigðum okkur myndband til
a5 horfa á. . ."
— Hvernig leið þér þegar þú heyrðir
Urslitin?
"Bara mjög vel," segir Hugrún Linda
°8 brosir.
' Var undirbúningurinn fyrir keppn-
|na um titilinn Ungfrú ísland eitthvað
óðruvísi en fyrir Ungfrú Reykjavík?
«Hann var mjög auðveldur fyrir mig
^ví að ég hafði þurft að æfa svo mikið
fyhr fyrrj keppnina. Undirbúningurinn
^rð miklu meiri hjá stelpunum utan af
andi sem höfðu ekki verið á gönguæf-
'n8um eða í líkamsrækt."
" Við hvað vannstu í sumar?
"Ég van við malbikun norður á Ak-
Ureyri. Við vorum að malbika og und-
lr^úa bílastæði."
" Fórstu til útlanda í sumar?
»Já ég fór til Rhodos með skólasystk-
'num mínum úr Menntaskólanum. Við
0rum tveimur dögum eftir að við luk-
0na stúdentsprófi og vorum þar í þrjár
V'kur. Það var mjög skemmtileg ferð."
Geta þurft að keppa
um miðja nótt!
^Ugrún Linda hélt frá íslandi 18.
ptóber til Luxemborgar. Þar beið hún
- tV° haga eftir Cargolux flugvél sem
a^ flytja hana til Tævan (Tai-Wan;
^ Ur Formósa) en þar eiga fegurðar-
r°ttningarnar að dveljast í hálfan
s anu& við myndatökur og annað sem
ertir keppnina. Með Hugrúnu
„Þad eina sem ég hef gert er að fara í
líkamsrækt á hverjum degi. . .“
til í „Ég vann við malbikun.
Luxemborgar fór kærastinn hennar,
Magnús Jaroslav Magnússon. Hugrún
sagði að það yrði mjög gott að hafa
hann með því að hún yrði með svo
mikinn farangur. Hún vissi ekki hvort
keppninni yrði sjónvarpað beint hing-
að til íslands en sagðist vita að hún
yrði sýnd í beinni útsendingu í Bret-
landi:
„Mér er sagt að þess vegna getum
við þurft að keppa um miðja nótt í
Hong Kong. Keppnin þarf að vera á
góðum sjónvarpstíma fyrir Breta!"
sagði hún.
Það eru sömu eigendur að keppn-
inni „Ungfrú Heimur" og hafa verið
áður, Julia og Eric Morley, en Hugrún
sagði að það sem hefði breyst væri að
nú greiddi önnur sjónvarpsstöð fyrir út-
sendinguna. Að öðru leyti hélt hún að
allt væri óbreytt og markmiðið það
sama: að hjálpa veikum börnum um
allan heim.
Þegar þetta viðtal var tekið voru að-
eins tveir dagar þangað til Hugrún
Linda átti að leggja af stað í ferðalagið.
Hún var spurð hvort hún hefði undir-
búið sig mikið?
„Nei, ég hef nú ekki gert það," svar-
aði hún. „Það eina sem ég hef í raun-
inni gert er að fara i likamsrækt á
hverjum degi. Svo þurfti ég auðvitað
að útvega mér nóg af fötum því að ég
verð í rúman mánuð í burtu."
- Þarftu að hafa mikið af fötum með
þér?
„Já, eins mikið og ég kemst með! Eg
hélt að ég mætti vera í stuttbuxum og
toppum á daginn þarna úti en Linda
Pétursdóttir sagði mér að keppendurnir
væru í fínum drögtum hvern einasta
dag! Ég er þess vegna vel útbúin af
pilsum, kjólum og drögtum."
- Þurftirðu að kaupa þetta allt?
„Nei, ég á mikið af fötum og svo
| hefur mamma saumað á mig. Ég fékk
j líka lánuð föt, bæði hjá vinkonum
= mínum og Lindu Péturs. Þetta eru allt
I frekar fín föt en mér finnst þægilegast
I að vera í gallabuxum og peysum eða í
| íþróttagalla!"
- Hvað heldurðu að þú verðir með
margar ferðatöskur?
„Ég ætla nú ekki að hafa þær fleiri
en tvær. En þær eru stórar. . .!" sagði
Hugrún Linda.
Æskan. 9