Æskan - 01.05.1991, Side 30
Barnabókaverðlm
og vióurkennintjar
Nýlega voru nokkrum höfundum og þýð-
anda veitt verðlaun fyrir handrit og
bækur - eins og tíðkast hefur undanfarin
ár. Æskan hefur oftast getið þessara
verðlauna sem vert er.
Iðunn Steinsdóttir varð sigurvegari í sagna-
keppni Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka
1991. Saga hennar, Gegnum þyrnigeróið,
kom út 17. apríl, sama dag og verðlaunin
voru afhent.
Að þessu sinni bárust liðlega þrjátíu hand-
rit í samkeppnina. Iðunn Steinsdóttir er fyrsti
verðlaunahafinn sem þegar er viðurkenndur
höfundur. í öll hin skiptin hafa verðlaunin
fallið í skaut höfunda sem ekki höfðu áður
komið við sögu á bókamarkaði.
í fréttatilkynningu um afhendingu
verðlaunanna er efni sögunnnar kynnt:
„Gegnum þyrnigerðið er nýstárlegt ævin-
týri sem gerist fyrir langa löngu en lesandinn
sér brátt að atburðirnir eiga sér hliðstöðu í
samtíð okkar. Hvað var á seyði í dalnum
góða þar sem allir höfðu búið í sátt og sam-
lyndi? Einn vorbjartan dag kom illmennið Ó-
þyrmir til sögunnar. Með kynngimögnuðu
þyrnigerði skipti hann dalnum í Austurdal og
Vesturdal. Fólkið þráði að þyrnigerðið félli
og dalbúar sameinuðust á ný - og dag einn
fóru óvæntir atburðir að gerast."
A bókarkápu segir að Gegnum þyrnigerðið
sé barna- og unglingabók í hæasta gæða-
flokki, skemmtileg aflestrar og spennandi í
senn.
Á undan Iðunni Steinsdóttur hafa eftirtaldir
hlotið verðlaunin:
1986 Guðmundur Ólafsson (Emil og Skundi)
1987 Kristín Steinsdóttir (Franskbrauð með sultu)
1988 Kristín Loftsdóttir (Fugl í búri)
1989 Heiður Baldursdóttir (Álagadalurinn)
1990 Karl Helgason (í pokahorninu)
Skólamálaráð Reykjavíkur veitti nýlega
verðlaun fyrir bestu frumsömdu barnabókina
1990 að mati nefndar ráðsins. Þorgrímur Þrá-
insson hlaut þau fyrir bókina, Tár, bros og takka-
skór. Hún er framhald fyrstu bókar Þorgríms,
Með fiðring í tánum, en hún kom út 1989.
Á bókarkápu er þessi lýsing á söguþræði:
„Kiddi er fjórtán ára og það er Tryggvi,
besti vinur hans, líka. Líf þeirra snýst um það
að skara fram úr í fótbolta en áhuginn á stelp-
um er líka til staðar. Strákarnir kynnast Skapta
í skólanum en hann er sonur uppfinninga-
manns og lumar alltaf á einhverjum tækni-
brellum. Þegar Sóley, vinkona Kidda, flytur út
á land verður hann hrifinn af bekkjarsystur
sinni, henni Agnesi. í skíðaferðalaginu gerast
dularfullir atburðir og þegar Kiddi og Agnes
ákveða að byrja saman dynur ógæfan yfir.
Slysið hefur mikil áhrif á Kidda. Hann fyllist
sektarkennd og missir áhugann á fótbolta. En
hvað gerist svo? Verður hann valinn ílands-
liðshópinn? Lifir Agnes slysið af? Hvað gerir
Kiddi þegar hann stendur augliti til auglitis
við manninn sem var búinn að valda honum
svo miklum þjáningum? Kemur Sóley aftur
suður?"
í umsögn dómnefndar segir að þetta sé
bráðskemmtileg unglingasaga, sögð á fjörleg-
an hátt og af innsæi höfundar í hugarheim
unglinga. Tungutak unglinganna sé kunnug-
legt, kímnin alltaf á næsta leiti og umfram
allt birti hún jákvæð lífsviðhorf.
Þýðingarverðlaun skólamálaráðsins hlaut
Sigrún Árnadóttir. Rök dómnefndar voru þau
að hún hefði snúið mörgum bókum á fallega
íslensku, bókum sem glatt hafa marga unga
lesendur. Þýðingarnar, sem liggja til grund-
vallar verðlaununum, eru Börnin í Óláta-
garði eftir Astrid Lindgren og bækur um Einar
Áskel eftirGunillu Bergström.
°g TAKKASKÖR
DORGRiMUR DRAINSSON
\Vs:ÆL
Á árlegum sumarfagnaði íslenska barna-
bókaráðsins, sem haldinn var á sumardaginn
fyrsta, voru veittar viðurkenningar fyrir fram-
lag til barnamenningar á árinu 1990. Þær
hlutu Anna Cynthia Leplar fyrir teikningar í
Ljóðsprota, Jóhanna Á. Steingrímsdóttir fyrir
Ijóðabókina Barnagælur, Andrés Indriðason
fyrir ritstörf í þágu barna og unglinga - og
leikhópur Þjóðleikhússins fyrir sýningar á
-íæturgalanum í skólum. í leikhópnum eru
Helga Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Margrét
Guðmundsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Þórhallur
Sigurðsson og Arna Kristín Einarsdóttir.
Æskan óskar þeim sem
verðlaun og viðurkenningar
hafa hlotið til hamingfu.
30 Æ.slcan