Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1992, Side 33

Æskan - 01.07.1992, Side 33
Umsjón: Dr. Þór Jakobsson. LETUR'bO'X.Ð TOLVUFT Nokkurt hlé hefur verið á Vísinda- þætti Æskunnar en nú verður þráð- urinn tekinn upp aftur með því að fjalla ofurlítið um tölvur. Tölvur eru notaðar mjög víða í þjóðfélag- inu. Þær eru notaðar á skrifstofum, í skól- um og á heimilum. Sumar þeirra eru not- aðar einar sér, t.d. við skýrslugerð eða út- reikninga, en aðrar í sambandi við marg- vísleg önnur tæki. Stundum eru tölvur svo vendilega innbyggðar í stærri tæki að menn átta sig í fljótu bragði ekki á því að þær séu mikilsverður hluti tækisins. Þótt tölvur séu nú á dögum á hvers manns vörum eiga þær sér ekki langa sögu. Það eru um 50 ár frá smíði fyrstu tölvanna þar sem hin nýja rafeindatækni var notuð. Fyrstu tölvurnar voru stórar og klunnaleg- ar en þær þóttu engu að síður mikil undra- tæki og stuðluðu fljótlega að framförum í ýmsum greinum vísinda. Með árunum urðu tölvur æ minni fyrirferðar en jafnframt hrað- skreiðari og öflugri. Tölvum er skipt eftir stærð og mætti í stórtölvur, millitölvur og borðtölvur. Stórtölvur eru á rannsóknastofnunum og í háskólum, hjá risafyrirtækjum og opin- berum stofnunum. Þær geta leyst flókin reikningsdæmi á örskotsstundu og unnið úr miklu safni gagna. Gögn eru safn upplýs- inga af ýmsu tagi. Upplýsingarnar geta t.d. verið um verð á mjólkurafurðum í ýmsum löndum í júní í mörg ár í röð eða hitinn um hádegi á 250 stöðum víðs vegar um heim alla daga ársins 1991. Þetta er raunar lít- ið gagnasafn en sum gagnasöfn eru geysi- lega viðamikil og úrvinnsla þeirra sömu- leiðis. Þá veitir ekki af að nota stórtölvu hafi menn aðgang að slíkri vél. Því miður er engin stórtölva til á íslandi. Hins vegar eru allmargar millitölvur til hér á landi, t.d. í Háskóla íslands og á Veður- stofu íslands. Borðtölvur eru mjög algeng- ar á vinnustöðum og í heimahúsum. Ýms- ar gerðir eru á boðstólum og ríkir mikil sam- keppni milli þeirra sem framleiða þær. Til skamms tíma hafa menn vegsamað til- tekna gerð á kostnað annarra tegunda en í seinni tíð skiptir æ minna máli hvaða tölvutegund menn nota. Ástæðan er sú að nýjungar sem reynast vel breiðast örar út en áður. Framleiðendur tileinka sér fram- farir eins fljótt og þeim auðnast. Mikilsverð þróun, sem dregur úr mun á tölvutegundum af svipaðri stærð, er þró- un tölvuneta. Tölvunetin tengja tölvur sam- an. Tölvurnar geta verið í mörgum her- bergjum í sömu byggingu eða hér og þar í Reykjavík (Akureyri.. Egilsstöðum .. ísa- firði ..), já, jafnvel í ýmsum löndum. Þær eru tengdar eins og símar og er unnt að flytja alls kyns upplýsingar um allan heim með hraða Ijóssins. Borðtölvur má tengja saman með þessum hætti og líka er unnt að tengja borðtölvu við millitölvu eða jafn- vel stórtölvu í útlöndum. í næstu Vísindaþáttum Æskunnar verður fjallað meira um tölvur og dæmi sýnd um notkun þeirra. Lesendur eru beðnir að hika ekki við að senda fyrirspurnir og athuga- semdir. Eflaust hafa einhverjir frá skemmti- legri tölvureynslu að segja. (Myndirnar eru úr bók sem nefnist Tölvur og gefin var út af Erni og Örlygi 1983. Síðan hefurýmislegt breyst...) iBorðtölvur ToLyu- SKJfíR Millitölvur Æ S K A N 3 7

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.