Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1992, Blaðsíða 54

Æskan - 01.07.1992, Blaðsíða 54
SKOT OG ÓTTI VIÐ RUSLAFÖTUNA Kæri Æskuvandi! Ég veit ekki af hverju ég er að skrifa þér - ef þú ætlar að henda þessu bréfi eins og öllum hinum sem ég hef skrifað! En best er að koma sér að efninu: Ég er mjög hrifin af strák sem er dálitlu eldri en ég. Hann er mjög sæt- ur og skemmtilegur en ég veit bara ekki hvort hann er hrifinn af mér. Hann brosir þó til mín. Einu sinni var ég niðri í bæ og allt í einu ekur hann fram hjá mér og flautar á mig. Hann var í bíl með full- orðnum manni. Vertu svo góð að svara mér! Þökk fyrir gott blað! Ég. Svar: Þættinum berast miklu fleiri bréf en unnt er að svara. Það er alltaf leitt að heyra frá þeim sem hafa ekki fengið svör. Ef til vill er svar- ið þó ekki það mikilvægasta heldur að þeir sem áhyggj- ur hafa letri þær á blað! Margir átta sig á tilfinning- um sínum við það. Allir geta líka lært af því að lesa bréf frá öðrum og svör sem þeim eru gefin - og bera það sam- an við áhyggjuefni sín. Ég vona að þið sem skrifið hjálpið þannig í raun hvert öðru. Erfitt er að geta sér til um tilfinningar stráksins af því litla sem þú lýsir. Þú verður að vera þolinmóð og reyna að kynnast honum. Það er nánast eina leiðin til að koma málum á hreint. Þá getur þú metið hvernig hann bregst við. Eitt veistu þó: Hann tek- ur eftir þér á götu og lætur þig vita að hann er líka á ferðinni...! LÉTT EN ÁHYGGJUFULL Kæri Æskuvandi! Ég verð að fá hjálp. Ég á í verulegum vandræðum - eða það þykir mér. Mér finnst ég vera of létt miðað við aldur. Ég er 13 ára - 35-36 kg. Þó að ég borði eins og ég get troðið f mig brenni ég eiginlega öllu. Hvað á ég að gera? Svo er annað. Það eru mik- il vandræði í fjölskyldunni. Það liggur við að fólk hati hvert ann- að vegna svika í peningamál- um. Ég vona að ég fái svar sem fyrst því að mig bráðvant- ar það. Dani. Svar: Þyngd er mjög afstætt hugtak og miðast sjaldnast eingöngu við aldur. Þar skipta aðrir þættir máli, t.a.m. hæð. Þú getur ekkert um hana. Líklega er best fyrir þig að tala við hjúkrunarfræðing í skólanum þínum eða á heilsugæslustöðinni. Þar getur þú fengið raunhæft mat á þyngd þinni. Ég er ekki viss um að ég átti mig alveg á fjölskyldu- málinu sem þú nefnir (Spurningin birtist hér stytt). En það er mjög skiljanlegt að þú hafir miklar áhyggjur af því og takir það nærri þér. Það er ekki margt sem börn geta gert í málum sem þessu. Hjálparleysi þeirra og vanmáttur geta komið fram í líkamlegri vanlíðan. Reyndu samt að bægja áhyggjunum frá þér. Haltu áfram að skrifa hugsanir þínar á blað og losa þig þannig undan því sem þjakar þig. Þegar þú leitar aðstoðar varðandi þyngdina skaltu nota tækifærið til að tala líka um áhyggjur þínar af málefn- um fjölskyldunnar. ÉG OG Ö - Ö Kæra Nanna Kolbrún! Ég skrifa þér vegna algengs vandamáls en bið þig innilega að birta bréfið því að mig vant- ar svar. Ég er hrifinn af stelpu sem er nýkomin í bekkinn. Köllum hana Ö. Hún er afskaplega sæt og margir eru hrifnir af henni en ég er að farast úr ást. Þeir strákar sem tala mest við hana og vinkonur hennar segja að henni finnist ég sætur. En hér kemur annar strákur við sögu. Köllum hann Ö. Strákarnir segja stundum, þó ekki oft, að hún sé skotin í hon- um. Ég spila á hljóðfæri og þyki nokkuð leikinn. Hinirstrákarn- ir eru í knattspyrnu og fá mikia athygli þess vegna. Það sem mig langar til að vita er þetta: Er Ö hrifin af mér eða Ö? Og hvernig næ ég athygli hennar? (Ég þyki fyndinn en það er ekki nóg). Roy Rogers. Svar: Það getur stundum valdið mikilli streitu að vera skot- inn í stelpu sem er eftirsótt. Þá eru margir um hituna og allir leggja sig fram um að ganga í augun á henni. Það sem yfirleitt gengur best í samskiptum við hitt kynið er að hafa gott sjálfs- traust og geta miðlað því til annarra. Þú veist greinilega vel afýmsum kostum þínum og virðist vera nokkuð á- nægður með þig. Þetta er það sem máli skiptir. Hins vegar dregur úr sjálfs- traustinu að beina athyglinni of mikið að því sem er „ekki nóg“ - þó að heilbrigð sjálfs- gagnrýni sé góð. Reyndu að kynnast stelp- S 8 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.