Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1992, Blaðsíða 44

Æskan - 01.07.1992, Blaðsíða 44
INNILOKAÐIR t Tiuiðitöt au^al)ú^i eftir Ara Pálmar Framhaldssagan, sem hlaut aukaverðlaun í smásagnakeppninni 1991, fjallar um vinina fens og Kára og leit þeirra að fóð- ur Jens. Þeir fara í draugahúsið og koma þar að lokuðum dyr- um. Kári tekur í sveif sem virðist ryðguð fóst en lcetur loks undan og hurðin opn- ast... 2. íiRflí ^óiavímmnv úl étefrni Strákarnir urðu alveg agn- dofa þegar þeir sáu hvað var þarna inni. En þar var þá risa- stórt herbergi fullt af alls kyns beinagrindum, vampírum, vofum og fleiri ógnvekjandi verum. Þar var meira að segja brunnur hryllingsins sem var endalaus og sagði draugasög- ur á miðnætti. Til allrar hamingju var allt dautt þarna inni svo að ekki þurftu drengirnir að óttast að ráðist yrði á þá. Allt í einu sló klukkan tólf. Drengirnir földu sig í flýti. Allt hið dauða fór að lifna við og brunnur hryllingsins fór að segja draugasögur. Hann sagði meðal annars: „Einu sinni fyrir mörgum árum voru tveir ungir dreng- ir hér á ferð. Þeir voru í leit að föður annars þeirra en hann hafði villst hér inni nokkrum árum áður. Vampírur höfðu lagt þau álög á föður drengs- ins að þeir feðgar dæju báðir ef sonurinn fyndi ekki föður sinn fyrir aldamótin 1800. Sonurinn fann föður sinn ekki í tæka tíð og þeir dóu báðir. Hinum drengnum tókst naumlega að sleppa út. Hann varð aldrei samur eftir það. Eitthvað svipað mun gerast einhvern tíma aftur." Brunnurinn sagði líka sögu sem hljóðaði á þessa leið: „Fyrir nokkrum árum var hér á ferðinni maður að nafni Sveinn jóhannesson. Hann var hér þegar klukkan sló tólf. Tólf draugaleg slög. Allt hið dauða iifnaði við. Hann reyndi að flýja en vampírurn- ar náðu honum. Þær sugu úr honum mikið blóð. Þegar þær höfðu næstum gert út af við hann sló klukkan sex að morgni. Sveinn hljóp að næstu dyrum. Þær lágu að völundarhúsinu. Vampírurn- ar lögðu þau álög á hann að hann færist ef Jens sonur hans fyndi hann ekki fýrir aldamót- in 2000 - og Jens einnig. Einhvern tíma mun Jens koma að leita föður síns, hvort sem hann finnur hann eða ekki." Brunnurinn sagði margar aðrar sögur af fólki sem hafði villst eða dáið þarna inni og var eitt síns liðs á rápi í völ- undarhúsinu, Vofutúni, Vam- pírugarði og á mörgum öðr- um stöðum. Verst var þó kom- ið fyrir þeim sem lent höfðu í Afturgöngustorminum sem var afar sterkur hvirfilbylur. Það eina sem hægt var að nota gegn honum var kross eða eitthvað sem minnti á Krist eða Guð. Afturgöngustormurinn var kallaður þessu nafni vegna þess að afturgöngur fylgdu honum ávallt. Allt í einu hnerraði Jens. Vampírurnar litu við. Ein þeirra tók eftir strákunum og 4 8 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.