Æskan - 01.07.1992, Page 57
L^níAíiA'Á YjNL\l J j\l ÍA
í Ástralíu. Þekktir lagasmiðir og
textahöfundar hófu samvinnu við
hana og hún varð vinsæl víða um
heim - fyrst fyrir lagið Ég má sann-
arlega vera hamingjusöm (I should
be so lucky), síðan lögin Skemmtu
þér! og Hljómfall ástarinnar (Enjoy
yourself og Rythm of love).
Plötur hennar höfðu selst í meira
en sjö milljónum eintaka í árslok
1991 - og var þó sú nýjasta ekki tal-
in með. Hún hefur átt lög í efstu sæt-
um vinsældalista í 18 löndum. Að
því leyti jafnast hún á við Madonnu.
Kylie samdi sjálf helminginn af
lögunum á nýjustu plötu sinni.
Hermt er að þau séu hressilegri og
ekki eins sykursæt og hún söng áður
... Hún hefur líka breytt klæðaburði
og kemur öðruvísi fram en áður.
Sumum finnst hún líkja um of eftir
Madonnu.
Hún segir að mun ánægjulegra
sé að fara með hlutverk í kvikmynd
en vinna að hljómplötu, a.m.k. ef
aðrir stjórna öllu. Eftir að hún lék í
myndinni Forboðinni ást ákvað hún
að ráða sér meira sjálf en hún hafði
gert fram að því. Þá er að sjá hvern-
ig til tekst...
Fyrir tveimur árum var starfandi
aðdáendaklúbbur hennar í Englandi
-og ef til enn:
Kylie Minogue,
P.O. Box 292, Watford,
Hertfordshire, WD2, 4ND,
Englandi.
(Stuðst við greinar í Kamratpost-
en (Dan Höjer), Pop/Rocky og
Bravó)
| Minogue, ástr-
ily 1 I L alska leik- og
M T I ■ I I söngkonan,
II I .. . var fædd 28.
maí 1968 í Melborn. Hún er 152
sentímetrar, Ijóshærð með blágrá
augu. Foreldrar hennar eru Carol
(Karólína) - húsmóðir, áður ballett-
mær- og Ron bókhaldari. Systkini
á hún, Brendan og Danielle. Hún hef-
ur yndi af að synda og stunda hesta-
mennsku. Eftirlætisleikari hennarer
Harrison Ford. (Systir hennar nefn-
ir sig Dannii og er einnig orðin vin-
sæl sem söngvari)
Kylie var einungis tíu ára þegar
hún hóf að leika í framhaldsþáttum
fyrir sjónvarp. Sautján ára hlotnað-
ist henni eitt aðalhlutverkið í þátta-
röðinni Grönnum og með því voru
vinsældir hennar tryggðar.
Hún kynntist Jason Donovan þeg-
ar þau voru ellefu ára og léku sam-
an í sjónvarpsþáttum. Tíu árum síð-
ar héldu þau upp á 21 árs afmæli sín
saman (Jason var fæddur 1. júní
1968!) Þau hafa löngum verið góð-
irvinir-en fellt hug til annarra. I\lý-
legar heimildir herma að Jason sé
einn á báti síðan hann og vinkona
hans, Danielle Gaha, héldu hvort sína
leið. Kylie mun undanfarið hafa ver-
ið í miklu vinfengi við popp-tónlist-
armann sem við munum ekki nafn
á í svipinn.
Sagt er að söngferill hennar hafi
hafist fyrir tilviljun. Hún söng lag í
samkvæmi en þar var staddur hljóm-
plötuútgefandi sem hreifst af henni.
Gerð var lítil plata með henni einni.
Hún þaut í fyrsta sæti vinsældalista
- En vill ekki
vera lengur
„bara lítil og sæt“
Æ S K A N 6 1