Æskan - 01.03.1994, Qupperneq 10
„Ég átti ekki hugmyndina en hún
var borin undir mig. Mér leist strax vel
á hana. Við vissum að þjóðin myndi
hlæja að því í fyrstu að Hafnfirðingar
þyrftu að auglýsa eftir vinum en höfð-
um samt trú á þessu. 5000 íslendingar
eiga kort sem sýnir að þeir eru Vinir
Hafnarfjarðar. Okkur tókst að vekja
verulega athygli á þeim möguleikum
sem bærinn býr yfir.“
- Hvaó finnst bæjarbúum um Hafn-
arfjarðarbrandarana? Telur þú að þeir
særi krakkana?
„Við erum orðnir vanir því að fólk
brosi með okkur! Við búum flesta
brandarana til sjálfir! Ég læt iðulega
nokkra slíka fljóta með þegar ég held
ræður. Sem bæjarstjóri styrkti ég út-
gáfu bókar með Hafnarfjarðarbröndur-
um. Þegar þetta byrjaði fann maður á
krökkum að þeim þótti nóg um. En
þeir voru fljótir að venjast þessu. Aula-
brandararnir afsannast líka um leið og
menn hitta Hafnfirðinga! Þá sjá allir að
þetta eru bara brandarar."
NÝR BARNASPÍTALI - FOR-
VARNARSTARF
- Hver var helsta breytingin við að
skipta um starf?
„Ég hætti þar sem allt var í góðu
gengi og tók viö málaflokki þar sem
ekki varð hjá því komist að draga úr
kostnaði með aðgerðum sem hlutu að
verða óvinsælar. En ég var ekki óvan-
ur sviptivindum stjórnmálanna og
vissi að aftur lægði. Við getum státað
af einu besta heilbrigðiskerfi í heimi.
Ég horfi til þess að geta látið gott af
mér leiða og tryggt góða heilbrigðis-
þjónustu þó að þjóðin standi frammi
fyrir erfiðleikum í efnahagsmálum um
sinn.“
- Hvað er á döfinni hjá ráðuneytinu
og snertir börn og unglinga?
„Ég hef flutt tillögu í ríkisstjórninni
um stofnun barnaspítala sem búi
sjúkum börnum fyrsta flokks aðstæð-
ur. Framkvæmdir eiga að geta byrjað
á þessu ári.
í vor verður hafið víðtækt forvarn-
arstarf i heilbrigðismálum í samvinnu
við nokkur sveitarfélög og mörg félög
og stofnanir, t.a.m. heilsugæslustöðv-
ar, bindindishreyfinguna og samtökin
[þróttir fyrir alla. Við viljum laða sem
flesta til samstarfs. Áhersla verður
lögð á nauðsyn heilbrigðra lífshátta.
Fjölskyldan og samskipti fólks verða
undir sérstakri smásjá. Heilsan er það
dýrmætasta sem við eigum. Við verð-
um að gæta hennar vel. Þá skiptir
máli hvaða leiðir við veljum."
ÆSKAN MIKIÐ LESIN Á
HEIMILINU
- Þið hjónin fylgist með íþróttaiðk-
un barna ykkar. Keppti kona þín í
íþróttum?
„Já, hún lék handknattleik með Val
og landsliðinu. En nú er hún orðin FH-
ingur!“
- Hvað æfa börnin?
„Margrét Hildur er elst, á þrettánda
ári. Hún er í skíðadeild - Hauka!
Heimir Snær er að verða tíu ára og
Fannar Freyr átta. Þeir æfa báðir
handknattleik og knattspyrnu með
FH. Brynjar Ásgeir er eins og hálfs
árs. Hann er byrjaður að sparka
heima hjá sér! Við áttum líka tvo
drengi sem viö misstum af slysförum.
Þeir æfðu báðir knattleiki. Tveir
yngstu drengir okkar heita nöfnum
þeirra."
- Manstu eftir Æskunni á bernsku-
heimili þínu?
„Já, Æskan var alltaf mikið lesin á
heimilinu. Ég man sérstaklega eftir
Þríþraut FRÍ og Æskunnar. Það voru
þrjár greinar, spretthlauþ, hástökk og
boltakast. Ég var ekki nógu fljótur að
hlaupa til að ná fremst í þríþrautinni
en gat grýtt boltanum töluvert langt!
Ég fylgdist nákvæmlega með úrslitum
í keppni til að sjá hvort ég væri ekki
nálægt þeim bestu í boltakastinu!"
Stjórnendur þáttarins, Frá
ýmsum hliðum: Hjálmar
Árnason og Guömundur
Árni - i nóvember 1974.
Nóvember 1975: Skorar gegn Prótti.
Guðmundur Árni við störf á kjörstað kosningadag-
inn 30. júní 1974 - ásamt fyrstu konunum sem
fengu lögreglubúning: Dóru Htin ingóifsdóttur og
Katrinu Þorkeisdóttur.
7 0 Æ S K A N