Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1994, Blaðsíða 16

Æskan - 01.03.1994, Blaðsíða 16
PIKKÓRÓNARNIR eftir Söru Dögg Jakobsdóttur 10 ára. „Hæ, hæ! Ég heiti Berta. Mamma og pabbi heita Nína og Láki. Ég á fjóra bræður og þrjár systur. Þau heita Finnur, Jón, Lúlli, Lísa, Svana og tvíburarnir Kríli og Bína. Dag einn fórum við í ferðalag niður að Litlu-tjörn á sniglinum okkar, henni Snúllu. Við höfum átt hana síðan í fyrra þegar pabbi fann hana. Það var þegar hann fór með Fuglaflugleiðum út í skóg. Fuglaflugleiðir er flugfélag með tömdum fuglum sem fljúga með okkur Pikkórónana þangað sem við viljum. Við ætluðum að fljúga til Stóru-tjarnar. Þegar við vorum komin um borð sagði pabbi: „Vonandi sjáum við ekki menn- ina." „Ég er sammála þér, Láki," sagði mamma. „Mennirnir eru mestu óvinir okkar." „Nína, ertu að koma eða ætlar þú að standa þarna meðan við förum að Stóru-tjörn?" „Nei, ég held að ég komi með ykkur," sagði mamma og brosti. „Allir um borð!" kallaði flug- stjórinn. Hann heitir Palli. Hann situr fremst á fuglinum og stjórnar honum á ferð. /( Fuglinn byrjaði að blaka vængjunum. Ég fékk fiöring í magann (þetta var í fyrsta skipti sem ég flaug). Finnur dáðist að útsýninu en ég lokaði augunum. Hann reyndi aftur og aftur að fá mig til að opna augun og litast um. Loks tókst honum þab. Ég sé ekki eftir að hafa opnað augun til að sjá allt þetta: Túnið, húsin mannanna og trén. Þab var eins og í draumi. „Ó, nei," heyrðist allt í einu í pabba. „Mennirnir eru fyrir neð- an okkur með byssur. Þeir ætla á- reiöanlega að skjóta fugla." „Hvað er svona merkilegt vib það, pabbi?" spurðu Bína og Kríli. „Við erum á fugli, vinir mínir," sagði pabbi. Allt í einu heyrbist skothljóð. Fuglinn fór hraöar og við slupp- um í þetta sinn. Eftir klukkustund vorum við lent við Stóru-tjörn. Vib veifuðum til Palla þegar hann fór til baka. „Gættu þín á mönnunum á leiðinni heim!" sagbi pabbi. / „Já, já, ég geri það. / Verið þið sæl ab / / ysinni!" / jt /l/l Við sáum marga stóra og feita froska að veiða flug- ur á bakkanum. Við gengum í átt ab vatninu. Þá kom pikkóróni til okkar og spurði hvort við ætluöum að gista á hótelinu skammtfrá. „Já," sagði pabbi. „Þá er best að vib kynnum okk- ur," sagði ókunni pikkóróninn. „Ég heiti Sveinn og er hótel- stjóri." „Gaman að kynnast þér, Sveinn! Ég heiti Láki. Getur þú sýnt mér hvar hótelið er?" „Alveg sjálfsagt. Komið með ' // mer. Umhverfi hótelsins var fallegt. Framan á því stóð skýrum stöf- um: Vatnagarður. í hótelgarðin- um var stór sundlaug. Brátt kynntist ég átta stelpum. Best þeirra var Anna, dóttir Sveins hótelstjóra. Við urðum strax góbar vinkonur og lékum okkur alltaf saman. Vib veiddum frosk sem við nefndum Fúsa. A honum fórum við um allt í skoð- unarferðir. Hver dagurinn var öðrum yndislegri. En brátt fórum vib heim. Áður gáfu Anna og Sveinn mér böggul. Ég lofaði að skrifa Önnu um leið og ég kæmi heim. Vib sáum enga menn á leið- inni. Þegar vib komum á flugvöllinn beib Snúlla snigill þar eftir okkur. Þetta var skemmtilegasta sumarfrí sem ég hafði farið í á ævinni. Á flugvellinum opnabi ég böggulinn sem Anna og Sveinn færðu mér þegar ég fór. I honum voru perlufesti og hringur. Ég horfbi til himins og sagði: „Þökk, Anna, þökk!" „Komdu, vib þurfum að fara," sagði mamma og brosti. ,Já, mamma, ég kem!" Ég gekk í átt að Snúllu. Á meb- an hugsaöi ég: „Af hverju halda mennirnir að við pikkórónarnir séum skordýr? Við erum eins og þeir nema minni og lifum með skordýrum og umhverfi þeirra er það sama og okkar." (Sara Dögg fékk verölaun fyrir söguna í smásagnakeppni Æskunnar, Flugleiöa og Barnaritstjórnar Ríkisútvarpsins 1993. Hún erfædd 19. 3. 1983) 7 6 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.