Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1994, Blaðsíða 50

Æskan - 01.03.1994, Blaðsíða 50
FRIÐRIK KARLSSON HLJÓMLISTARMAPUR „Förum í hljómleikaferð til Indónesíu" Hvernig kvikna lögin? Oftast í huganum hvar sem ég er staddur, t.a.m. í bílnum, en líka þeg- ar ég leik á gítarinn eða píanóið. Hvenær samdir þú fyrsta iag þitt? Þegar ég var tólf ára - og flutti það á skólaskemmtun í Austurbæj- arskólanum. Ég kann það ekki leng- ur og þykir leiðinlegt að hafa ekki skrifað nótur að því. Hvaða lag þitt þykir þér vænst um? Það heitir Vængbrotin ást - og var flutt í Landslagskeppninni fyrir þremur árum. Sigrún Eva söng það. Hvort heillar þig meira, hljóð- færaleikur eða tónsmíðar? Álíka mikið - en hafa völdin til skiptis, oft þrjá mánuði í senn. Hvenær byrjaðir þú að leika á hljóðfæri? Sjö ára á gítar. Á hvaða hljóðfæri hefur þú lært? í hvaða skóla? Hef lært á gítar og píanó í Tón- skóla Sigursveins, Tónlistarskóla FÍH og „National Guitar Workshop" í New York. Ég tók einleikarapróf í klassískum (sígildum) gítarleik og þriðja stig á píanó. í hvaða hljómsveitum hefur þú verið - að „bílskúrssveitum" með- töldum? Fyrst í Glerbroti, 1975, síðan tók - Tívolí við, 1976-1978, og þá hver af annarri, Ljósin í bænum, Norðurljós, Sturlungar, „Fiction“, „Model“, Þús- und andlit og Stjórnin. Nú er ég í Hljómsveit Siggu Beinteins - og „Mezzoforte". í henni hef ég verið frá 1978! Hverjir eru eftirlætistónlistar- menn þínir? Þeir eru of margir til nefna nokkra einstaka. Hvers konar tónlist fellur þér best? Öll góð tónlist. Með hvaða tónlistarmönnum hefur þú leikið lengst? Félögum mínum í Mezzoforte, þeim Eyþóri Gunnarssyni, Jóhanni Ásmundssyni og Gunnlaugi Briem. Ný plata með hljómsveitinni, Um víða veröld, verður væntanlega komin út þegar þetta birtist. í haust förum við í hljómleikaferð til Indónesíu og verðum í Suðaustur- Asíu í nokkrar vikur. Hljómplötur okkar hafa selst vel þar. Hvaða sígilt tónskáld metur þú mest? En verk? Debussy og flest hans verk. Blæstíll hans (impressjónískur) er minn stíll. Á hvað hyggstu leggja mesta á- herslu í söngvakeppninni? Aðalatriðið er að gera þetta eins glæsilega og hægt er. Ég hef ráðið Frank McNamara til að raddsetja lagið. Hann er írskur og hefur útsett fyrir írland sem sigrað hefur undan- Friðrik Karisson farin tvö ár. Ekkert verður til sparað. Hann hringdi í Sjónvarpið og bauð fram krafta sína þar sem írar „vilja hann ekki aftur“! Þeir hafa ekki efni á að sjá um keppnina í þriðja sinn í röð! En írinn hefur fullan hug á að vinna enn einu sinni! Honum leist mjög vel á lagið. Hann hefur raunar - breytt því mikið og það verður meira sungið en við flutninginn hér. Sig- rúnu Evu fannst lagið ekki henta sér í þessum búningi og gaf ekki kost á sér. Sigga Beinteins verður aðal- söngkonan en bakraddir syngja Eyjólfur Kristjánsson, Ingi Gunnar Aðalsteinsson, Edda Borg Ólafs- dóttir, Erna Gunnarsdóttir og Eva Ásrún Albertsdóttir. Þeir sem urðu neðar en í 16. sæti í fyrra urðu að taka þátt í und- ankeppni núna af því að þátttöku- þjóðunum hefur fjölgað mikið. Ég er ákveðinn í að ná þeim árangri að ís- land geti tekið þátt í aðalkeppninni á næsta ári. Telur þú að lög íslenskra höf- unda eigi síður upp á pallborðið hjá dómnefndum en lög eriendra tónlistarmanna? Ef svo - af hverju? Lögin hafa ekki verið síðri en lög frá öðrum löndum. Aðalvandamálið er tungumál okkar. Það höfum við fengið staðfest hjá mörgum. Á- stæðan er ekki einungis sú að þeir skilja ekki málið heldur líka að þeim finnst það ekki hljóma vel. Undan- farin ár hafa lög flutt á ensku verið í þremur efstu sætum í keppninni. Hvaða lag, sem sigrað hefur í söngvakeppninni til þessa, þykir þér best? En flytjandi? Franska lagið sem Amina söng og varð í öðru sæti fyrir þremur árum. - írska söngkonan í fyna. S O Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.