Æskan

Årgang

Æskan - 01.03.1994, Side 27

Æskan - 01.03.1994, Side 27
þ.á., á bls. 35. í Englandi starfar aðdáendaklúbbur Strandvarða (samkvæmt upplýsingum frá þvíífyrra- sumar). Póstfang hans er: Baywatch Fan Club, P.O. Box 1443, Poole, Dorset, BH15 3YP, Englandi. Á bls. 51 i þessu tölublaði er grein um leikarann Kelly Slater. NAFNARNIR Elsku, langbesta Æska! Viö þökkum frábært blað. Eins og margar aðrar stelpur erum við „yfir okkur ástfangnar" af leikurum. Að þessu sinni heita þeir Cor- ey Haim og Corey Feld- man. Núna nýlega (nánar tiltekið í febrúar) var sýnd mynd með þeim í aðalhlut- verkum. Hún nefnist Öku- skírteinið („License to Dri- ve“). Við yrðum afskaplega þakklátar ef þú eða lesend- ur þínir vissu eitthvað um þá og þið birtuð það. Allt frá því hvar og hvenær þeir voru fæddir og til þess hvar þeir eiga heima núna (þó að ekki væri sagt meira en í hvaða landi eða borg). Það væri líka frábært ef birt yrði veggmynd með þeim. R. T. og lce-Cube. Svar: Þegar var farið að kveða að þeim nöfnum 1989. Corey Haim var kynntur á bls. 49 i 6. tbl. Æskunnar á því ári - og veggmynd af honum og fleira ungu listafólki fylgdi blaðinu. Hann er fæddur i Toronto i Kanada og ólst upp þar og i Montreal. Hann fékk hlut- verk i kvikmyndum ungur að árum. Foreldrar hans skildu þegar hann var fimmtán ára. Skyndileg frægð Coreys varð honum ekki að öllu til góðs. Hann missti taumhald á sjálfum sér og leiddist út á villustíg vímuefnanotkunar og annarrar óreglu. Sem betur fór tókst honum þó að ná áttum á ný. Síðan hefur hann ítrekað varað aðra við að feta þá slóð. „Segið NEI efykkur eru boðin vimuefni!" segir hann. Þegar greinin var birt hafði hann t.a.m. leikið í myndunum Kádiljákurinn hans pápa (Daddy’s Cadillac) og Láttu þig dreyma Ijúfan draum (Dream A Little Dream). Hann sagði um það leyti að þeir Corey Feldman væru vinir i raun. „Hann er mér sem góður bróðir. Við keppum ekki hvor við annan, ekki einu sinni þegar við getum hugsað okkur að leika sömu hlut- verkin." í viðtali var hann spurður hvaða kröfur hann gerði til sjálfs sín. Hann svaraði að sér væri mest i mun að þroska með sér skapfestu, hafna vímuefnum og ein- beita sér að þvi að bæta sjálfan sig. Hann kvaðst vilja standa við orð sín, vera stundvís - og líta vel út... Við vonum að honum hafi tekist þetta. Annar leikari, sem varð frægur ungur að árum, River Phoenix, lést fyrir skömmu af eiturefna- neyslu, að þvi er segir í frétt- um. Hann hafði löngum sagst vera andsnúinn öllu sliku. River var á veggmynd i sama tbl. og Corey. CAMALL SKÓR EÐA CAFFALL Sæl, Æska! Þökk fyrir rosalega skemmtilegt blað. Getið þið haft vegg- myndir með einhverju öðru en fólki og dýrum, t. d. beyglaðri gosdós, gömlum skó eða gaffli? Af hverju eruð þið hætt að senda límmiða með blöðunum? Eva og Adam er lang- skemmtilegasta teikni- myndasagan í blaðinu! Friðarliljan. Svar: Ekki er ólíklegt að við förum að tillögu þinni um nýtt myndefni. Þegar dró úr vinsældum límmiða ákváðum við að brydda upp á nýungum: Fjölga veggmyndum (þó að þær smækki er það dýrara í vinnslu) og útbúa stunda- skrá og dagatal með mynd- um af mörgu vinsælu fólki. En vera kann að iimmiðar komi aftur til sögunnar. ANDREA - EVA OC ADAM! Kæri Æskupóstur! Ég þakka fyrir gott blað og veggmyndina af Andreu Gylfadóttur. Viltu taka viðtal við Tod- mobile eða bara Andreu? Hve gamalt er fólkið í Tod- mobile? Mér finnst Eva og Adam vera með bestu teikni- myndasögum sem ég hef lesið. Todmobile-aðdáandi. Svar: í 1. tbl. Æskunnar 1992 svaraði Andrea aðdáendum sínum. í því blaði var vegg- mynd af Todmobile. Hljóm- sveitin er nú hætt - eins og fram kom i 1. tbl. þ.á. en þar svaraði Andrea nokkrum spurningum. Hún er fædd 13. 9. 1962. Lesendur eru greinilega á einu máli um Evu og Adam. Við erum að velta fyrir okkur hvort við ættum að gefa þessa teiknimyndasögu út i bók. Raunar yrði það sama efni og hefur verið að birtast í Æskunni. Gaman væri að heyra hvernig ykkur líst á það. í þessu tölublaði hefst önnur teiknimyndasaga eftir sömu höfunda. Húnerbyggð á sögunum um Bert sem mörg ykkar kannast við þvi að nokkrar bækur um hann hafa komið út hér á landi. KÖRFUKNATT- LEIKSMYNDIR Fína, svala Æska! 1. Er ekki hægt að láta pakka með myndum af körfuknattleiksmönnum fylgja blaðinu eins og lím- miðana áður? 2. Getið þió birt vegg- myndir með gömlum og þekktum körfuboltaköpp- um (NBA), t.a.m. Kareem Abdul-Jabbar eða Júlíusi Erving? 3. Er ekki hægt að stofna körfuboltamynda- klúbb í Æskunni? 4. Birtið meira í einu af skrýtlum og teiknimynda- sögum! Shaq. Svar: 1. Það virðist of kostnað- arsamt - og fellur ekki að óskum allra áskrifenda. En við munum íhuga málið. 2. Vera kann að kapparn- ir, sem þú nefndir, verði í hópi þeirra sem birtast á veggmynd í Æskunni. 3. Jú! í safnaradálki á bls. 55 i þessu tölublaði er beðið um skipti á körfuknattleiks- myndum. 4. Skrýtlur verða i hverju tölublaði eins og verið hefur, oftast á einni siðu. Nokkrar teiknimyndasögur eru meðal efnis en hver þeirra verður að jafnaði ekki nema á tveim síðum i einu. HLJÓMLISTAR- MENN Æskupóstur! Er það satt að James Hetfield söngvari í Metall- ica og Ray í 2Unlimited séu látnir? Getið þið birt veggmynd af eða grein um Metallica og heimilisfang aðdáenda- klúbbsins? Eyrún og Guðrún. Æ S K A N 2 7

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.