Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1994, Síða 52

Æskan - 01.03.1994, Síða 52
FRAMHALDSSAGA LESENDA: OF VENJULEGT - EÐA... / 10. kafla lagði Hlíf af stað með hvítan hund (sem var í rauninni nornin Dranda) áleiðis til móður hans, galdrakonunnar Fúgu. Hún átti að fara gegnum Drunuskóg. Þar var hún bitin af slöngu og varð máttlaus. Hund- urinn hljóp burt og slangan forðaði sér af því að einhver mannvera nálg- aðist... 11. kafli Ég sá ekki strax hver þetta var en áttaði mig þó fljótt. Þetta var Kári, strákurinn á hestinum! „Er alit í lagi með þig?“ spurði hann. „Nei, reyndar ekki,“ sagði ég. „Það beit mig slanga í fótinn. Fyrst gat ég ekki hreyft mig en nú er bara fóturinn dofinn." „Við verðum að athuga það,“ sagði Kári áhyggjufullur. „Ó,“ æpti ég, „hundurinn! Hvar er hundurinn?“ „Hvaða hundur?" spurði Kári. „Æi, það er löng saga að segja frá því. Við verðum bara að finna hann. En vel á minnst, hvernig komstu hingað?" „Ég datt í djúpa gryfju og komst ekki aftur upp. Til allrar hamingju sá ég göng og fór inn í þau í von um að komast aftur upp. Ég fann loks út- gönguleið og kom upp hérna skammt frá,“ sagði Kári. „Fyrst þú ert búinn að segja mér þetta allt skal ég segja þér ferðasög- una mína,“ sagði ég. Svo sagði ég honum frá öllum ævintýrunum sem ég hafði lent í. Kári reif bút úr skyrtunni sinni og batt um sárið á fætinum. Við hvíld- umst um stund til að athuga hvort ég fengi ekki aftur mátt í fótinn. Eftir nokkra stund heyrðum við að hundur gelti. Það var Dranda. Við á- kváðum að halda af stað. Kári lét mig fá stóran lurk til að styðjast við og hélt sjálfur á hundinum. Ég gat staulast áfram. Við gengum lengi um Drunuskóg. Þar var dimmt og ó- hugnanlegt. Loks sást Ijóstýra milli trjánna. Við vorum að koma út úr skóginum. Þegar við höfðum gengið 30 skref í viðbót blasti við okkur undurfögur höll. Þetta var höll Fúgu. Veggirnir voru gerðir úr gulli, þakið úr silfri og allt var skreytt með gimsteinum: demöntum, smarögðum og rúbín- um. „Vá, sú er falleg!" sagði Kári. „Já, og það stafar bjarma frá henni,“ sagði ég. En hundurinn urraði bara. Við gengum að höllinni þó að erfitt væri því að við fengum ofbirtu í augun. Loks vorum við komin að hallardyrunum. Kári rétti fram hönd- ina til að berja að dyrum en þá hvarf Dranda og við duttum niður um gat þegar falinn hleri opnaðist skyndi- lega. „Ahhh!!“ æptum við þegar við runnum á fleygiferð niður hlykkjótta braut. Við runnum neðar og neðar. Það varð sífellt dimmra en allt í einu komu alls kyns litir á veggina, fjólu- blár, grænn, bleikur, rauður, hvítur, gulur, brúnn og blár. Þetta minnti mig á draugahús og rennibraut í senn. Ég ríghélt í Kára og var fegin að vera ekki ein. Ó, ætlaði þetta aldrei að taka enda ...? Framhald. Margar góðar tillögur bárust. Höfund- ar þeirra allra fá bók að launum. En fyrir valinu varð kafli Höllu Jónsdóttur, Sand- vík, Bárðardal, 645 Fosshóll. Hún hlýtur tvær bækur. Enn gefst tækifæri til að auka við sög- una og vinna til bókaverðlauna. Kaflarnir verða að vera a.m.k. ein vélrituð síða eða tvær handskrifaðar. Veljið bækur af listanum sem fylgir þrautinni, Lestu Æsk- una? Framhald þarf að berast fyrir 5. maí nk. Merkið bréfið þannig: Æskan - Of venjulegt - eða pósthólf 523,121 Reykjavík. 5 2 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.