Skírnir - 01.01.1931, Page 204
198
Eirikur i Bót og Eiríkur á Rangá.
[Skírnir
Vísurnar sýna og annað. Þær sýna að þær geta ekki
verið eftir Eirík Magnússon í Bót, því að höfundurinn kall-
ar sig beinlinis Hallsson.
Hitt kvæðið eru eftirmæli, sem ætíð hafa verið talin
vera eftir sama manninn, sem ort hafði vísurnar. Eftir-
mælin eru þannig:
Alvaldur Eirik hvíldi
af eldri mönnum heldra,
þann gildar gáfur faldi,
en gjöldin loks margföldu
Aldaguðs hátíð heldur
með höldum guðs útvöldu.
Skáld þar gott við skildi.
Skuld þá allir guldu.
Spáði spökum óði,
spjaður af engum maður,
að ei elli næði,
áður en gekk til náða.
Guði treysti góðum
og gæða vænti af hæðum.
Háði herkinn stríðið.
Með heiðri í Kristi deyði.
Tunga tregar drenginn,
tanginn héraðs langur.
Hans ungu börn í bynginn
bangin sér niður stanga.
Kóngur alvaldur engla
angrið þeim bæti stranga.
Slyngari við Fjölnis fenginn
fangar ei maður Rangá.
Eftirmæli þessi sýna fyrst og fremst, að maðurinn,
sem þau tala um, hefir heitið Eiríkur og átt heima á Rangá
og verið gott skáld, og vísurnar, sem áður voru ritaðar,
sýna að hann var Hallsson og gott skáld. Maðurinn, sem
þessi ljóð eiga við, er því Eirikur Hallsson á Rangá, en
ekki Eiríkur i Bót. Það tekur og af öll tvímæli í þessu efni,
að í handritasafni Jóns Sigurðssonar í Landsbókasafninu,
472, 8°, þar sem bæði kvæðin eru rituð, hefir fyrra kvæð-