Valsblaðið - 11.05.1973, Side 41
VALS BLAÐIÐ
39
morgunverð í stórum sal rétt hjá
leikvöllunum. 3. fl. karla keppti sinn
fyrsta leik í mótinu gegn Fredens-
borg frá Noregi og vann léttan sigur
15:8. II. fl. karla keppti seinna um
daginn gegn Ohligser, þýzku liði og
unnu Valsmenn þann leik, 10:7, og
skoraði Jón Pétur 6 mörk af línu.
Ekki kepptu flokkarnir meira þenn-
an dag.
Um kvöldið fóru flestir úr II. fl.
karla til Partille-Hotel að snæða
kvöldverð, og síðan brugðu þeir sér
í diskótek á hótelinu, til miðnættis.
Miðvikudagur 2. ágúst.
Þennan dag skiptust á skin og skúr-
ir. II. fl. karla spilaði sinn annan leik
gegn Burg-Gretesch frá Þýzkalandi
og var það allsögulegur leikur. Leik-
urinn var fremur jafn framan af, en
í seinni hálfleik fór að síga á ógæfu-
hliðina fyrir Þjóðverjum. Ólafur varði
af hreinni snilld og Jón Pétur var
óviðráðanlegur á línunni og skoraði
alls 6 mörk. Fyrst gerðist það, að
Björgvin fékk víti og markvörðurinn
var í einhverri fýlu og vildi ekki
standa í markinu, heldur við aðra
stöngina. Björgvin hélt að þetta væri
eitthvert trix hjá honum, og var rag-
ur við að skjóta, heldur tók eitt af
sínum frægu vippum, og ekki var
að sökum að spyrja, boltinn fór yfir.
Þjóðverjarnir æstust heldur betur við
þetta og hertu á hasarnum (með kýl-
ingum og látum). Meðan sókn Vals
stóð yfir settust Þjóðverjarnir í Indí-
ánastellingar við línuna — og eftir
það var leiðin greið að markinu og
máttu þeir þola tap fyrir einhverju
Eskimóaliði úr norðurhjara verald-
ar 5:11.
III. fl. karla keppti við Nordsten
frá Svíþjóð um hádegisbilið og unnu
9:6. Einnig lék 2. fl. kvenna gegn
Just frá Svíþjóð og vann 10:3.
Ydun frá Danmörku gáfu leik sinn
gegn Hlíðarendastúlkunum seinna um
daginn.
Seint þennan dag keppti II. fl. karla
við Swithiod frá Svíþjóð, en í þetta
skipti þurftum við að lúta í lægra
haldi gegn þessu sterka liði, 6:8. Við
vorum þó ekki úr leik, því að við vor-
um komnir í milliriðil, sem átti að
hefjast daginn eftir.
Rétt eftir að II. fl. keppti, lék III.
fl. karla gegn Bergerdorf frá Þýzka-
landi. Jafntefli varð, 4:4.
Um kvöldið fór nær allur hópur-
inn í Partille-höll, að sjá leik milli
Árhus KFUM og Kalmar frá Sví-
þjóð í 3-liða keppni, þriðja liðið hét
Vestrá-Trölunda. Bjarni Jónsson var
hylltur mjög af Valsmönnum út leik-
inn, og skoraði hann 5 mörk, öll úr
vítum. Árhus vann leikinn, 22:21.
Fimmtudagur 3. ágúst.
Um kl. 6,30 var II. fl. karla vak-
inn upp til næsta leiks, sem átti að
hefjast kl. 8. Smáupphitun hófst, og
síðan borðaði hver maður tvær plóm-
ur. Lékum við fyrst gegn Mosbach
frá Þýzkalandi. Áttum við í miklum
erfiðleikum með þá, en við mörðum
þá á síðustu mínútu, 7:6.
Valsstúlkurnar léku gegn Heid,
Noregi, um morguninn og unnu, 6:1.
Rétt á eftir léku þær gegn B-liði Glos-
trup og unnu, 11:2.
Um hádegið keppti III. fl. karla
gegn Holbæk frá Danmörku og rétt
mörðu þá með 7:6.
Seinna um daginn keppti II. fl.
karla gegn Kroppskultur frá Svíþjóð.
Var fyrri hálfleikur algjör einstefna
(sýning) af okkar hálfu. Oscar Wint-
erman (undirritaður) var í góðu
formi í markinu og varði m. a. 3 víta-
köst. í hálfleik var staðan 11:3 fyrir
okkur. í seinni hálfleik voru tveir
af okkar mönnum reknir út af með
stuttu millibili, og var ekki að sök-
um að spyrja, Svíarnir fóru að skora
í gríð og erg, en við unnum samt,
16:11.
Fólk talaði um okkur sem tilvon-
andi sigurvegara í mótinu og sagði,
að það hefði aldrei séð annan eins
superhandbolta. (Supergreyið átti nú
lítinn þátt í þessu).
Áttum við nú aðeins undanúrslita-
leikinn eftir, sem átti að fara fram
daginn eftir.
Föstudagur 4. ágúst.
Sorgardagur!
Dagurinn byrjaði á því, að III. fl.
karla lék gegn Brennen frá Svíþjóð
og tapaði, 9:11. Rétt á eftir léku þeir
aftur, þá við Mörklig frá Danmörku,
og töpuðu aftur, 9:10.
Stúlkurnar kepptu 2 leiki með
stuttu millibili. Fyrri leikinn gegn
Holbæk frá Danmörku, unnu þann
leik, 7:3. Seinni leikinn kepptu þær
gegn Ostlioen frá Svíþjóð, og þann
leik unnu þær einnig, þá með 12:3.
Rétt eftir hádegi tapaði II. fl. karla
fyrir Sulzbach frá Þýzkalandi, 8:10,
og voru þeir þar með úr leik í keppn-
inni. Þetta lið hefði verið frekar auð-
velt viðureignar, ef meiðsli hefðu ekki
háð liðinu og allt fór í handaskolum.
Jón P. Jónsson var markahæstur af
okkur í keppninni með 20 mörk. III.
fl. karla varð úr leik seinna um dag-
inn, eftir að hafa gert jafntefli við
Glostrup frá Danmörku, 5:5. Þar
með voru báðir karlaflokkarnir úr
leik, eftir hetjulega baráttu í Partille-
Cup, sem áttu þó skilið meira en
þetta.
Um hálf fimmleytið leigði hópurinn
sér rútu til Gautaborgar í verzlun-
arferð, til kl. sex. Verzlað var í stóru
magasini þar í borg, sem hafði á boð-
stólum allt milli himins og jarðar.
Skemmtu flestir sér vel um kvöld-
ið og var léttur blær yfir hópnum.
Laugardagur 5. ágúst.
Vaknað var snemma þennan morg-
un. Klukkan 10 voru stúlkurnar okk-
ar hvattar til dáða í undanúrslita-
leiknum við Kalmar frá Svíþjóð. Vals-
stúlkurnar sigruðu, 5:2, og voru þar
með komnar í úrslit. Úrslitaleikur-
inn átti að fara fram kl. 13,15. Á
milli leikja slöppuðu stúlkurnar af í
leikfimissalnum hjá okkur.
Mikið var um hvatningarhróp af
hálfu Valspilta, þegar leikurinn hófst,
sem dugðu bó lítið í þessum tauga-
æsingi. Glostrup (A) sigruðu 8:6.
M. a. fóru 2 víti forgörðum hjá stúlk-
unum okkar. Sigga, í markinu, kom
bezt af stúlkunum úr þessari viður-
eign.
Kl. 3 fór fram verðlaunaafhending
og fengu stúlkurnar okkar silfurverð-
launin. Svala Sigtryggdóttir var valin
bezta handboltastúlkan í mótinu, sem
var að vonum mikill heiður fyrir hana
og Val. Áður hafði Harpa Guðmunds-
dóttir tekið þátt í fegurðarsamkeppni
fyrir hönd Vals, og lenti hún í 3. sæti.
Seint þennan sama dag fór allur
hópurinn í skoðunarferð um Gauta-
borg í rútu. M. a. sáum við Volvo-
verksmiðjurnar frægu. Ekið var upp
á hæðirnar, svo að við sæjum yfir
Gautaborg. Fyrir augum okkar bar
helzt fyrir skipasmíðastöðvarnar
Juttaværk. Þar vinnur vinur okkar
í fótboltanum, Reynir Jónsson, sem
kom til okkar í Partille. Síðan fór
rútan með hópinn í Liseberg, sem er
eins konar Tivoli Svía. Skemmtu
krakkarnir sér vel um kvöldið og
eyddu peningum í allavega spil og
leiktæki. Flestir fengu sér leigubíl til
Partille um nóttina.
Sunnudagur 6. ágúst.
Síðasti dagurinn í Svíþjóð. Vaknað
var eldsnemma um morguninn eða
um kl. hálf sex. Fengin var rúta til
að aka hópnum út á flugvöll. Þaðan
var lagt af stað kl. 8,15 og flogið til
Osló. Flugferðin gekk vel og flug-
veður var gott og flogið var frekar
lágt, svo að landslagið naut sín vel.
Lent var á Fornebu-flugvelli í Osló
kl. 8,35. Og farið þaðan beint með
rútu til staðarins, sem átti að dvelja
á, Studentebyen í Sogni. Komið var
sér fljótlega fyrir á hótelinu. Tveir
voru saman í herbergi. Léttur blær
var yfir mannskapnum næsta sólar-
hring, svo sem vænta mátti.