Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1898, Side 27
21
Þó er hiti sölargeislans, er á jörðina kemur, ekki
nema einn þrjúhundruð þúsundasti (1/3W,ooO) á
möti hita hans á yfirborði sölarinnar. Auk
þessa streymir bæði hitinn og Ijösið í allar áttir
út í geiminn á ieiðinni til jarðarinnar. Svo
mikill hluti hitans og ljössins eyðist á ferðinni,
að til jarðarinnar nær að eins einn ruttugu og
þrjú hundruð miljónasti hluti (' 230 ,000,000) af
hitanum Það er áætlað, að væri kolum brenr
til að framleiða hita sólarinnar, þyrfti til þess
tíu feta þykt kolalag á hverri einustu klukku-
stund og það 1U feta þykka kolalag þyrfti þá
að þekja allt yfirborð sölarinnar. Væri sólin
hollaust kolalag, sem þannig brynni, yrði hún
útbrunnin á 46 öldum,—4,60U árum. Sir John
Hersc.hel segir, að væri hollausum ís-stöngli 45
mílna þykkum og 2J0 þúsund mílna Jöngum
skotið á endann inn.í sólina, þá bráðnaði hann
allur á einni sekúndu.
Starrð sólarinnar. Söiin er um 850 þúsund
mílur að þvermáli. Það er helst ógerningur, að
gera sjer grein fyrir, hvað þaðþýðir. Það er
helst með samanburði, að það er mögulegt.
Hæsta fjallið í Himalaya-fjallaklasanum,
Dhawalaghiri, er sem næstbJ þúsund feta liátt
yfir sjávarmál. eða rúmlega liálf sjötta míla
ensk. Væri tiltölulega stórt fjall á yfirborði
sölarinnar, hlyti það að vera uin 6uu mílur á
hæð, til þess eins mikið bæri á því þar, eins og
ber á þessu ógna-fjalli á þessum hnetti.
Setji maður svo, að sólin væri liolur hnöttur
og jörð vor væri sett á miðbik rúmsins innan í
sölar-kúlunni. þá væri þar innan í skelinni rúm
fyrir, ekki að eins jörðina og tunglið, með eðli-
legu millibili, lieldur yrði þá lika 2u0 þúsund
milna breiður geimur eptir út að skelinni frá
braut tunglsins, á allar hliðar að mæla.
Stærð sölarinnar er svo mikil, að stór eins
og manni finst jörð vor vera, þyrfti eina mWjón
og tvö hundruð fjörutíu og fimm þúsund slíka
jarðarhnetti til að gera einn hnött jafn-stóran
sólinni. Stærð' hennar er 674 sinnum meiri en
stærð allra annara Imatta í sölkerfi voru. Þungi
hennar í ,,tonna“ (2.0U0 pund) tali lítur þannig
út í tölustöfum:.