Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1898, Side 53
47
alraennt var kallaður ,,Unr,le Sam“. Ket-tunn-
urnar voru merktar með stöfunum: E, A., U. S.
Þegar vinnumaður Wilsons, sem hafði merkt
tunnurnar, var spurður af samverkamönnum
sínum. hvað þessir stafir þýddu (stafirnir U. S.
fvrir United States, voj'U lítt þekktir meðal
almennings þá), sagði hann að hann vissi það
ekki, neina ef það ætti aö þýða, Elbert Anderson
og Uncle Sam. Verkamönnunum þótti þetta
góð fyndni, og sem svo flaug út meðal þeirra.
Og þegar Uncle Sam var sjálfur viðstaddur, var
stundnm spaugað við hann um það hversu land-
eignir hans færu vaxandi. Svo var getið um
þetta atvik á prenti og fynini þessi varð æ fleir-
um og fieirum hugðnæm, þangað til hún hafði
fiogið út til allra endimarka landsins, og fjekk
viöurkenningu sem hún sjálfsagt heldur meðan
Bandaríkin verða ríkisheild.
Eyja flýtllr.
Henry’s vatn í Idaho, (einu af ríkjum Banda-
ríkjanna) er eitt hið kynlegasta stöðuvatn í
lieimi. Það liggur í dæld í Klettafjöllunum, sem
kölluð er Targees skarð. Vatniö er að stærðum
40 ferhvrnings mílur og allt í kringum það rísa
snæþaktir tindar, sem sumir hverjir eru hinir
hæstu á þessum mikla meginlands fjallgarði.
I vatninu er fijótandi eyja, um 300 fet að þver-
máli. Hún hvílir á svo þjettum rótarflækju-
grunni, að á henni vaxa stór trje og mikið af
undirviði eða hrísi. Rætur þessar eru þaktar
meö margra feta þykku lagi af frjósömum jarð-
vegi. Yfirborð hólmans er svo fast í sjer að það
hekfur liesti hvar sem er. og sumstaðar moetti
byggja hús áhættulaust. Hófminn berst fyrir
vindi t.il og frá um vatnið og er sjaldan heifan
sölarhring í sama stað.
Gcynmla 4 kjöti i hilatíd.
Bændur og aðrir, sembúa langt frá sfátrara,
geta geymt nýtt ket í eina eða tvær víkúr, með
því að leggja það í súra mjöfk eða áfir, og geyma
það svo í köidum kjallara. Ekki þarf að taka
hein eða fitu úr kjötinu. Þegar það er tekið upp
úr, þarf að þvo það vei.