Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1928, Page 93
83
Blaine eSa hjá hinum dætrum sínum í Portland og
Wheeler. Plún er ágætlega skýr kona og hin merkasta
í öllu. Hjörtur var og bezti drengur, búhöldur góður og
starfsmaÖur með afbrigum og gó'Öur félagsmaður.
Þorkcll Jónsson, sonur Jóns Þorkelssonar og Ingi-
ríðar Einarsdóttur, bæði ættuð úr Mýrdal í Skaftafells-
sýslu, er fæddur 1864 að Litlhólum. Þorkell ólst upp að
mestu á Hryggjum hjá föðurbróður sinum. Kom að
heiman til Canada 1902. Dvaldi nokkur ár í Selkirk,
Man. og fluttiist j)aðan til Blaine ásarnt fjölskyldu sinni
árið 1914 og keypti nokkrar ekrur sunnan við bæinn og
hefir búið j^ar síðan. Kona Þorkels er Kristín Jónsdóttir
Ólafssonar, var faðir hennar ættaður undan Eyjafjöllum
í Rangárvallasýslu. Móðir Kristínar var Geirdis Ólafs-
dóttir Þórðarsonar á Berjanesi í sömu sveit. Kristín er
'fædd 1860, og kom að heiman með manni sínum og for-
eldrum. Þau Þorkell og Krístín eiga þrjú börn—öll upp-
komin og heima. Þau eru Hugsvinnur, Ásbjörg og
Kristján Þorkell, öll efnileg. Þorkell Jónsson er smiður
og hefir stundað smíðar af og til ásamt landbúnaði, og
farnast vel. Þessi systkini Kristínar komu vestur um
haf; Ólín, kona Magnúsar Guðlaugssonar í Clarmount,
Alta. Gísli, ibýr í Smiths-eyju norður með ströndum
B.C. 0g SkúH, gfetið hér siðar, báðir kvongaðir
Jón Arnason og Jónína Baldvinsdóttir komu til Blaine
1916. Þau keyptu landblett utan við bæinn og settust þar
að. Jón mun hafa dáið fyrsta árið þar vestra. Ekkjan
seldi siðan þetta heimili þeirra, en er sjálf í Blaine. Jón
var ættaður úr Árnessýslu. Hvenær hann kom að heim-
an vitm vér ekki. Jónína er ættuð af Svalbarðsströnd.
Foreldrar hennar voru Helga Jóhannesdóttir og Baldvin,
sem lengi bjuggu i Glæsibæjarsókn i Eyjafirði. Jónína
kom að heiman 1894.