Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1937, Side 36
38
Hann og 'Gunnsteinn heitinn Eyjólfsson voru einu
drengirnir. Stuttu síðajr fór Jón til Winnipeg til að
vinna fyrir sér, og var þá ekki gott um vinnu frekar
en nú. Sumarið eftir var verið að vinna við jám-
brautina fyrir austan Rauðarána, og vann Jón þar
sem v'kadrengur. Um haustið fór hann í skógar-
vinnu austur til Whitemouth River og dvaldi þar
eitt ár. Svo þegar hann kom til haka voru foreldrar
hans flutt til Dakota. Fór hann þá þangað og tók
að mestu leyti við búsforráðum með föður sínum
(sjá þátt Sigfúsar). Með foreldrum sínum dvaldi
Jón, sem fyr segir, í grend við Akra, N. D., og vann
þar snemma við opinber störf, var þar t. d. virðing-
armaður sveitarinnar í mörg ár. Árið 1898 gekk
hann að eiga Önnu Ingibjörgu Jónsdóttur bónda
Gíslasonar fná Flatatungu í Skagafjarðarsýslu (sjá
þátt Sæunnar Þorsteinsd. ihér að framan). Árið
1899 flutti Jón með konu sína á framangreint land,
og hefir búið þar síðan. Seinna keypti hann fleir
lönd. Jón ihefir mikið átt liér við opinber störf. —
Snemma á árum varð hann virðingarmaður Stanley
sveitar, og var það býsna erf'itt í !þá daga, og um-
fangsmikiið, hafði hann 11 Tsp. til yfirferðar, og
auðvitað alt keyrt á hestum; var það oft köld vinna
á vetrum. Síðar var hann kosinn sveitarráðsmaður
í allmörg ár, og að síðustu oddviti um 14 ára bil.
Einnig hefir hann verið skrifari og féhirðir Elk
Creek-skólalhéraðs síðan 1905. Og yfirleitt stuðn
ingsmaður allra velferðarmála bygðarinnar. Er
hann maður vel máli farinn, og því vel til forystu
fallinn. Söngvinn vel og söngfróður. Jón misti
konu sína 25. des. 1927. Var h'ún ágætiskona, góð-
björtuð og vönduð, umhyggjusöm móðir bama
sinna, og styrkur og stoð manni sínum, og tók
mikinn þátt í öllu f'élagslífi bygðarinnar, var henn-
ar því sárt saknað af öllum er kynni af henni höfðu
Eftir lát konu sinnar hefir Jón haft fyrir bústýru
Oddnýju systur Önnu konu sinnar er áður hafði
unnið hjá systur sinni fjölda mörg ár. Nú býr Jón
með henni og yngsta syni sínum sem á lífi er, rausn-