Afturelding - 01.03.1970, Síða 4
rétt að samkomutíma. Óðara varð ég var ungrar
stúlku, sem stóð upp frá einum bekkjanna og gekk
í þungum hugsunum fram á árbakkann. Það var
eittbvað í fari hennar, sem vakti athygli mína á
sérstakan hátt. Ég gekk því hiklaust og djarflega
á móti henni.
„Fyrirgefið,“ sagði ég rólega. Hún hrökk við,
dálílið taugaóstyrk, leit flóttalega í kringum sig
og nam siaðar. Hún var klædd sorgarklæðum, sem
gerði fölva andlits hennar og liarða drætti þess
enn meira áberandi. Augu hennar báru vitni um
hina dýpstu sálarsorg og örvinlun. Mér fannst, sem
mér rynni kalt vatn milli skinns og hörunds, er ég
sá stúlku þessa standa þarna fyrir augum mér,
sem ímynd villtustu sorgar. Hafði ég þó oft kynnzt
mörgu alvarlegu í starfi mínu, er mér hafði fundizt
næsta alvarlegt.
„Fyrirgefið mér, að ég ókunnur maður ávarpa yð-
ur,“ sagði ég.„Ég er prédikari og er nú einmitt á leið
til samkomuhúss,' þar sem ég á að prédika Guðs
orð í kvöld. Ég sé, að þér eruð í mikilli sálarneyð.
Viljið þér ekki gera svo vel að koma á samkomu
í kvöld? Ef til vill gæfuð þér fundið frið fyrir
hjarta yðar og hjálp hjá einhverjum, sem er fús
að verða vinur yðar.“
En um leið og ég nefndi orðið „prédikari“, var
sem kæmi dimmt ský yfir andlit hennar og hún
sagði fvrirli'lega: „Nei, ég vil ekki koma á sam-
komur yðar. Ég vil ekki hafa neitt með trúarbrögð
yðar að gera. Látið mig bara afskiptalausa.11
Fyrr á þessum sama degi hafði mér verið boðið
til tedrykkju á vissum stað. Þegar ég kvaddi þar,
rétti gestgjafi minn, sem var kona, mér fallega
hvíta rós, og ég nældi henni í barm minn. Annars
geng ég ekki oft með blóm í barmi, en í þetta skipti
leyfði é" mér að gera þetta. Nú sló þeirri htigsun
niður í hiarta mitt, að é<r skyldi taka hví*u rósina
og trefa þessari aumstöddu s'úlku hana. Þetta var
einkennileg framkoma af mér við bráðókunnuga
stúlku. en mér fannst þetta koma svo snöggt, og
með svo hreinum áhrifnm 'il mín, að ég þorði
ekki að hika eitt augnablik við að framkvæma það.
„Viljið þér ekki þiggja þessa hví'u rós?“ snnrði
ég. Ef 'il vill gæ^i hún minnt vður á það. að hérna
stutt frá, þar sem samkomuhúsið er, eru vinir sem
eru fúsir til að hjálpa yður, ef þér vilduð koma
þangað.“
Ég var ekki viðbúinn þeim áhrifum, sem þetta
hafði á hana. Hún hrökk langt frá mér, eins og ég
hefði löðrungað hana. Það var engu líkara en æðis-
legar tilfinningar sviptust allt í einu yfir hana.
„Nei, o nei“, andvarpaði hún. En mér til undr-
unar rétti hún fram höndina og tók rósina. Um
leið veitti ég því athygli, að hún hafði tár í aug-
um. Þegar hér var komið sögu, varð ég að ganga
mína leið. En síðastra orða bað ég hana að koma á
samkomuna.
Yfir alla samkomuna bar ég sára hryggð í anda
mínum. Ég hafði séð eins og í leiftri mannsál í
óbærilegri neyð. Jafnframt fann ég til brennandi
löngunar til að eiga þann kraft, sem til þess þyrfti
að þvinga þessa manneskju inn á þann veg, sem
ég vissi, að mundi geta gefið henni hjálpræði og
frið.
Þegar ég hafði lokið ræðu minni, tók annar
maður samkomuna í hönd sína. Það var einmitt
við þessi þáttaskipti í samkomunni, sem ég leit
enn einu sinni yfir samkomusalinn, til þess að
vita, hvort ég sæi stúlkuna nokkurs staðar bera
fyrir mig. Og viti menn, þarna sá ég hana þá,
mjög aftarlega í salnum. Ég varð glaðari, en frá
megi segja. Hún hafði þá komið þrátt fyrir allt.
Andi Guðs hafði líka áreiðanlega starfað á hjarta
hennar. Það var einmitt hann, sem hafði leitt mig
til þess að tala við hana á þann veg, sem ég gerði.
Ég fór að biðja.
Það var komið að því að enda samkomuna. Fólk
var hvatt til þess að koma fram til fyrirbænar og
lei'a Drottins. Ég sá að unga stúlkan reisti sig og
gekk fram. Hún byrjaði jafnframt að segja eitt-
hvað. Um 1 eið nam hún staðar en gekk svo áfram
inn ef'ir gólfinn. Hún virtist ekki hugsa neitt um
það, að framkoma hennar hafði þegar vakið mikla
forvi'ni hiá öllum viðstöddum.
„Ég hef heyrt hva'ninauna um það að leita
Jesú, og ég vil koma. Haldið þið í sannleika að
hann vilii frelsa syndara á borð við mm?“ snurði
hún grátandi. En óðara en nokkur fengi sig til
að svara, hélt hún áfram:
„Ég æ'Iaði að varpa mér í ána í kvöld. vegna
þess að mér var ofraun að lifa lengur því lífi,
sem ég hef lifað síðastliðin fimm ár. Ég var alveg
við það, að kasta mér í fljótið, er herramaðurinn.
sem ávarpaði mig, bað mig að koma hingað til
4