Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 11

Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 11
wr .i’1 $ ■■ ■ Sfe® 1 viðtali við norska blaðlð „Korscts Scier", sefiir Willy llansscn, um inánaðarinótin okt. or nóv. siðastiiðinn: „AHt frá l>ví að ég frelsaðist fyrir scx órum, hcfur Island vcrið jatnan I husa mfnum. Or þcsar és höf ferð mína, nú fyrir G mánuðum, til að heimsækja mörs lönd, kom és einnis til Islands. Ætiun min var aðeins að dvelja nokkra daga. En það urðu óvart 10 mánuðlr...” Gestur af fjarlægu landi Þegar þetta er skrifað, er rétt ár síðan gestur kom í heimsókn til okkar. Og gestur sá var hreint ekki stutt að kominn, því að hann hafði tekið sig Upp hinum megin á linettinum, til þess að koma til íslands. Gestur þessi var Willy Hanssen trúboði frá Nýja Sjálandi. Hér á landi starfaði hann meðal okkar Hvitasunnumanna tæpt eitt ár, mest af þeim tíma í Reykjavík. Þó lerðaðist liann nokkuð út á land: Til SlykkÍ9hólms, Ólafsvíkur, Akureyrar og Siglufjarðar. Túlkur á ferðum hans var Garðar Loftsson. Willy Hansen var maður trúarinnar. Honum var ákaflega eðlilegt að tala um trúna, gefa hana á einfaldan hátt áheyrendum sínum í ljósi Guðs orðs. Boðskap ur hans var borinn uppi af mikilli og barnslegri gleði, svo að í byrjun þótti sumum nóg um. En við meiri kynningu fundu allir að þetta var ekki tilbúin gleði, heldur byggðist hún á eigin reynslu hans með Guði. Hann bað mikið fyrir sjúk- um og það með sýnilegum árangri undir mörgum kringumstæðum. Fyrir þrem árum hafði Willy misst konu sína frá 5 ungum bömum. Hér á Islandi fann hann svo aðra konu sína, og kvæntist henni 11. okt. sl. Hún hei ir Guðlaug Óskarsdóttir. Þau fóru af landi burt viku eftir brúðkaup sitt, fyrst til Noregs, síðan til Hollands, en þar er hann fæddur og uppalinn. Til Hollands býst hann við að fá börn sín til sín frá Nýja Sjálandi á þessum vetri. Hvert vegur þeirra liggur svo með vorinu biðja þau Guð um örugga leiðbeiningu um. Og þau tróa því að hann leiði þau inn í það verk, sem hann ætlar þeim að vinna fyrir ríki sitt. 11

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.