Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 12

Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 12
A RETTA LEIÐ Þetta er vitnisburður um bað, hvernig skirn Heilags Anda kom liðsforinffja í sjóher ISandaríkjanna ó „rétta lcið“. Grcinin er skrifuð af A. E. Eloynd jr. or birt í tímarit- inu Itaustin (The Voice), scm er sent til licrmanna Banda- ríkjanna um allan hcim. — Þýðandi S. J. Til er sá aflvaki, sem gerir manninn færan um að liía stöðugu kristilegu lífi dag eftir dag. Ég veit það, af því að ég hef fundið hann! Aflvaki þessi er krislnum manni það, sem áttavitinn er skipinu. Vegna hans getum við haldið okkur „á strikinu“ í daglegu líferni okkar og áformum. Ilann er sá kraftur, sem heldur kristnum manni á réltri braut, jafnvel á þeim stundum, er sorgir eða erfiðleikar sýnast hafa „sveipað hann í þokubakka.“ Við hjónin tókum samtímis á móti Kristi sem frelsara okkar. Það var 19. maí 1954. Ég hélt mig fast að námi í ýmsum efnum í Biblíunni. Auk þess fór ég snemma á fætur til dagslegs biblíulesturs og bænar. •• Þar sem ég var í sjóhernum, vorum við neydd til að flytjast oft úr einni flotastöð í aðra. Af því leiddi, að við sóttum margar ólíkar kirkjur. En það var sama, hvar sem við vorum leituðum við uppi þá kirkju, sem fastast hélt sig að grundvallar- sannindum Biblíunnar og sóttum hana. Eigi að síður var það svo á þessum fyrstu árum, að það varð augljóst, að við þekktum þá reynslu: að vera ýmist „heit eða köld.“ Við fundum ekki þá stöðugu og varanlegu gleði, sem við þráðum svo mjög. Á einhverri flotastöð gat verið, að við fyndum ein- hyerja kirkju eða hóp, og fyrir bæn og tilbeiðslu virtist okkur, að við værum þá „komin á strikið“, að við stefndum til liinnar stöðugu, varanlegu gleði, sem við þráðum. Þá þurftum við að flytja, og ef til vill fundum við ekki hóp með sömu hug- sjónir og við. Við reyndum að gera ráð fyrir, að þetta sprytti af ólíkum kringumstæðum eða túlkun á hugsunum o. s. frv. En samt virlumst við stund- um berast með straumnum. Ég leitaði kristilegrar gleði og kraftar af öllu minu ihjarta. Ég uppgötvaði, að þetta var ekki að finna í kerfisbundinni guðfræði eða skylduknúnu námi. Hugur minn spurði án afláts: Hvar er krafturinn, sem gerði hina fyrstu kristnu færa um að syngja í fangelsum og lofa Drottin mitt í alls konar erfiðleikum. Yfir úthaf lífsins varð að sigla, og Guðs orð benti til, að það yrði að vera eftir beinni stefnu. En svo virt- ist að sérhver alda eða straumur ýtti ævi okkar á kró'kabraut, sem var allt annað en fullnægjandi fyrir okkur. í marz 1964 var ég flutur til Keflavíkur á Is- Iandi. Drottinn tók mig þá nokkuð harðlega til meðferðar, og ég hrcinsaði hjarta mitt fyrir hon- um. Ég sagði honum, að liann yrði að taka alla mína ævi og stýra henni eftir því striki, sem hann vildi, að ég fylgdi — að ég hefði reynt að stýra sjálfur, en algerlega mistekizt það í eiginn krafti mínum. Meðan ég var í Keflavík, varð ég vel kunnugur Lt. Ray Garriss. Hann var kristinn maður, sent kom frá Pentecostal Free Will Baptist Church (Hvítasunnu frjálsvilja skirenda söfnuðinum) í Norður Carólínu. Við urðum nánir vinir. Mér hafði verið sagt af tveimur öðrum kristnum mönnum (Cdr. Wilgus, sem alinn var upp hjá Nazarcunum, og Lt. CI. Petty Officer Shake, sem var lú'.erskur), að hvítasunnureynslan (skírn í Héilögum Anda) væri að eiga sér stað hjá Bisk- upakirkjunni (Episcopalians) í Kaliforníu. Mér hafði alltaf verið kennt, að skírn í Heilögum Anda, sem sérstök, andleg reynsla, hefði aðeins verið handa frumkristninni, til að styðja stofnun hennar, en síðan kristnin komst á fót, væri ekki framar þörf á þessari síðari reynslu „íklæðingar kraft- arins.“ Þetta vakti samt áliuga minn. Loksins fór ég til Ray, „Hvílasunnubróður míns“ og talaði við 12

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.