Afturelding - 01.03.1970, Page 17

Afturelding - 01.03.1970, Page 17
Þrjár sýnir í lok tímanna Koma Drottins — Þrengingin mikla — Endir veraldar Þessi merkilega frásaga var gefin út í smárita- íormi í Los Angeles. Allir þeir sem þekkja ritn- ingarnar munu komast að raun um, að það er í samræmi við Guðs spámannlega orð. Við vonum nð tekið verði við boðskapnum sem viðvörun fyrir tirnann sem við lifum á. Mætti hver lesandi, sem ekki er reiðubúinn, leitast við að gera upp sín mál gagnvart Guði, til þess að mega öðlast hlut- deild í þessum undursamlegu hlutum, sem ef til vill eru nær en okkur grunar. „Nei, Herrann Drottinn gerir ekkert án þess að bann hafi opinberað þjónum sínum, spámönnun- Um, ráðsályktun sína.“ — Amos 3, 7. Þessa spámannlegu sýn gaf Guð stúlku frá Buek- tnghamshire í Englandi, og er hún í fullu samræmi við hið skrifaða orð. SLúlkan var hrifin í Anda í öll skiptin á bænasamkomum í einkaheimili, og fyrstu sýnina fókk hún eftir skírnarathöfn. Allar sýnirn- flr fékk hún milli 9. og 11. ágúst 1919. En það at- byglisverðasta er, að inntak þeirra var ritað í bréfi þrem dögum áður, sem unga stúlkan hafði skrifað kris'num bróður í Camberley. Bréfið var sem sé skrifað 6. ágúst (en sýnirnar fékk hún milli 9. og 11. ágúst), og hefur það verið vandlega geymt síðan. Við viljum byrja á því að birta þetta bréf. Það hljóðar svo: Camberley, Surrey, 6. ágúst, 1919. Kæri bróðir í Drottni Jesú! Lofað veri Hans nafn! Ég hef mikið að lofa hann fyrir. í gærkvöldi var eg, og tvær aðrar systur saman í bæn, í vökulok, °g ég fylltist af Guðs Anda, og um leið og Drott- mn birtist mér, sagði hann: „Á þeim tima sem þið ekki ætlið!“ Svo hvarf hann sjónum mínum. Ég sá hann í allri hans dýrð, og var hann undtirsam- legur. Ég fylltist svo miklum fögnuði, að ég gat ekki fengið mig til að ganga til svefns, og beið hans og hann kom aftur og sagði: „Vertu trúföst og ég mun sýna þér það sem koma mun yfir börn þessa heims, sem hafna mér. Þú skall einnig fá að sjá upprisu þeirra sem dáið hafa í Kristi, og hvernig brúður Krists umbreytist. Þú skalt fá að sjá komu Andkrists, og falspámann- inn, merki þeirra sem tilbiðja dýrið, og þá sem taka við merki Andkrists. Þú munt líka fá að sjá hin tvö trúföstu, sönnu vitni, verk þeirra, píslarvættis- dauða, og einnig píslarvætti jieirra, sem ekki vilja tilbiðja dýrið (Andkrisl). Þú skalt ekki óttast, því að ég, Drottinn, er með þér þegar ég sýni þér þessa hluti. Því að fólkið verður að vita, að það er Guð á meðal þeirra, og þeir skulu fá að vita að hann hefur varað þá við gegnum ambált sína — livort sem þeir taka við boðskapnum, eða ekki.“ — Og nú bíð ég eftir því sem Drottinn vill við mig tala. Ég sá greinilega sáramerkin á liöndum og fótum Drottins. Þín sysiir í Drottni. Laust eftir að Drottinn hafði hrifið systurina í Andanum í fyrsta skip'.i, var þetta bréf lesið upp í áheyrn fjögurra persóna, sem höfðu verið á bæna- samkomunum, því að það átti að skilja hvílíka sýn hún hafði fengið, og neyðina sem hún hafði fengið á eftir. í eftirfarandi köflum er hægt að sanna hve nákvæmur boðskapurinn var, og getur lesandinn því verið viss um áreiðanleik sýnanna, því atburðarásin sýnir það. Fyrsta hrifningin í Andanum. Ilún stóð yfir í fimm klukkustundir, frá kl. 21:30 um kvöldið 9. ágúst, til kl. 2:30 um morgun- inn 10. ágúst. 17

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.