Afturelding - 01.03.1970, Síða 21

Afturelding - 01.03.1970, Síða 21
hafið). Ég sá menn standa á hafinu, sem höfðu sigrað dýrið i þrengingunni miklu, sem ekki höfðu tekið við merki dýrsins eða tölu þess. Þeir héldu á hörpum í höndunum, og sungu Guði lof og dýrð. Ég heyrði orðaskilin: — Mikil og undursamleg eru verkin þín, Drott- inn Guð, þú hinn Alvaldi! Réttlátir og sannir eru vegir þínir. Þú — konungur hinna heilögu, þinir réttlálu dómar hafa opinberazt! Ég sá aflur englana sjö, sem ég sá í endirinn á fyrstu sýninni, — klædda hreinum, hvítum kyrtl- um, með gullbelti um bringuna. Reididómar Gu8s. Og ég sá lifandi veru. sem líktist manni, sem fyllti gullskálar englanna sjö með reiði Guðs. Fyrir ofan mig sá ég musteri, sem var umvafið ljóma, birtu og dýrð. Þá heyrði ég kallað hárri röddu. sem sagði: „Tíminn er kominn! Farið og hellið úr reiðiskálum Guðs yfir jörðina.“ Þá gengu englarnir burt. Fyrs'.i engillinn hellti úr sinni skál, og reiðidóm- ar Guðs féllu niður á jörðina eins og ský. Þegar skýið kom niður á jörðina, komu ill og hættuleg kaun á þá sem báru merki dýrsins. Og hinn hellti úr sinni skál yfir hafið, og það varð að blóði. Ég sá skip farast og áhafnir þeirra. Og hinn þriðji hellti úr sinni skál í ár og upp- sprettur. Þær urðu líka að blóði, og ég heyrði raust sem sagði: „Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna, og þú hefur gefið þeim blóð að drekka, maklegir eru þeir þess.“ Og hinn fjórði hellti úr sinni skál yfir sólina til að brenna mennina í eldi, og mennirnir stiknuðu í ofurhita og lastmæltu nafni Guðs. Og hinn fimmti hellti úr sinni skál, og menn- irnir huldust myrkri. Ég heyrði stunur þeirra og grát, og lastmæltu þeir Guði í kvölum sínum. Og hinn sjötti hellti úr sinni skál yfir breitt fljót, og vatnið í því þornaði upp, og varð eins og þurrt land. Og hinn sjöundi hellti úr sinni skál yfir loftið, og ég heyrði sömu raustina segja: — Það er fram komið! Og ég sá jörðina skjögra fram og aftur eins og drukkinn mann, og ég heyrði skerandi vein. Satan bundinn í þúsund ár. Nú sá ég fyrsta engilinn — tneð stóran l\kil í hendinni — og tók hann dýrin tvö og kastaði þeim í eldsdýkið. Svo greip hann liinn mikla högg- orm, sem er Satan, og kastaði honum niður i ein- hvern myrkan s'.að fullan af reyk, og mér var sagt að þarna ætti hann að vera í þúsund ár. Allir, sem höfðu liðið píslarvæltisdauða mcðati á þrengingunni miklu stóð, vegna Drottins Jesú Krists, ríkja nú með honum á jörðinni, og ég sá stóra skara af þeim stíga niður til jarðar, og sliga upp aftur lil himins til að gefa honum sem sat í hásæ'.inu dýrðina. Og er þúsund árin voru fullnuð, var Satan leyst- ur úr fangelsi sínu, og var hann í höggormslíki. Mikill fjöldi fylgdi honum, og þeir reyndu að deyða Guðs heilögu, sem á jörðinni voru. Þá féll eldur af himni ofan, og eyddi þeim, og Satan sem ríkt hafði yfir þcim, var kastað í eldsdýkið. Endir veraldar. Eftir þetta sá ég bláan himininn rifna endanna á milli, og vafinn saman, eins og þegar einhver vefur saman pappír. Og liann sviftist btirtu eins og þegar bókrolla er vafin saman. Jörðin hvarf og ég sá stórl tómarúm þar sem hún liafði verið. Og ég sá stóra skara af körlutn, konum og börmim af öllum kynkvíslum. Þeir höfðu verið dánir en risu nú upp og stóðu frammi fyrir há- sæti Drottins Jesú Krists. Nöfn þeirra fundust skrifuð í lífsbókinni, — lífsbók Lambsins. Og ég sá liafið skila aftur liinum dauðu, sem í því voru, og Helja skilaði þeim sem i henni voru, og allir voru dæmdir, sem ekki fundust skrifaðir i Hfsbókinni. En ég sá engin börn á meðal þeirra, sem voru dæmdir. Þar næst sá ég nýja jörð, undur fagra og nýjan liimill, í staðinn fyrir þann sem svift var burt. 1 þessum nýja liimni var engin sól, tungl eða stjiirnur. I staðinn fyrir þann gamla sem svift liafði 'ærið hurt, var komin ný, undurfögur hvelf- ing, sem Ijómaði eins og gull. Það var engin nótt á þessari nýju jörð, heldur ávalll bjart, og fólkið sem þar bjó, var fyllt gleði og friði. Bruður Krists. Nú breyttist sýnin, og ég var borin af dýrðlegum Framhatd & bla. 23. 21

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.