Afturelding - 01.03.1970, Side 26
bönirkóriun undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar. Við píanóið Steíanía Sigurgeirsdóttir.
í samkomunni. Hún stóð nærri 2J/2 klukkustund
og fór virðulega og í sóma fram. Söfnuðinum til
heiðurs og Cuði til dýrðar.
Um fjölmörg undanfarin ár hefur Árni Arin-
hjarnarson verið söngstjóri og organleikari safn-
aðarins. Með þrollausri elju og vöggugjöfum Guðs
til þessa starfs, hefur hann af mikilli fórnfýsi
ávaxtað sitt pund í söng og hljómlistarlífi safnað-
arins. Sá vettvangur er hann hefur nú til umráða
með söngliði sinu, finnst mér hæfa þeim söng og
hljómlist er flutt er Guði til dýrðar. Sem vera
ber skipaði söngur mjög fjölbreyttur og hljómlist
mikið rúm í hátíðasamkomunni. Þeim, sem hafa
um árabil verið með í liilum samfélögum trú-
aðra dreift tim allt land, hafa jafnframt kynnzt
þróttmiklu vakningarstarfi ytra og þeim söng er
þar er framborinn, gafst nú allt í einu að heyra
við hin beztu skilyrði, það sem jafna má við
langþróað sönglíf í vakningarhreyfingum erlendis.
Það er mikið Guði fyrir að þakka.
Eftir að sálmurinn „Áfram Kristsmenn krossmenn"
hafði verið sunginn og samkomugestir verið boðnir
velkomnir, lásu eftirtaldir starfandi bræður x
Hvítasunnuhreyfingunni valdar ritningargreinar:
Garðar Ragnarsson, Þórshöfn, Færeyjum, Harald-
ur Guðjónsson, Keflavik, Daníel Glad, Stykkis-
hólmi, Jóhann Pálsson, Akureyri. Einar Gíslason
sem leiddi samkomuna hafði bæn, eftir lesturinn.
Hanna Bjarnadóttir söng einsöng „Faðir vor“
við undirleik Árna Arinbjarnarsonar, og vígslu-
ræðuna flutti Ásmundur Eiríksson, forstöðumaður.
Mæltist honum vel og eins og hans er vandi þá
26