Afturelding - 01.03.1970, Side 32

Afturelding - 01.03.1970, Side 32
annar í fjölskyldunni. Hún var hávaxin með sítt hár, sem féll laust niður um herðar. Hann tók sjaldan nokkra ákvörðun án þess að leita ráða hjá þessum anda, og það er eftirtektar- vert, að hann fékk svör. Ef hann vildi fá hreint já eða nei, ákallaði hann í hljóði þessa andaveru, og hönd hans lyftist þá sex eða átta þumlunga frá horðplötunni. Þumlungafjöldinn gaf ákvörðunina til kynna. Þegar þessi máttur kom til skjalanna, gat hvorki hann né nokkur annar haldið hönd hans kyrri. Hann var enginn væskill. Þvert á móti. Hann var vel vaxinn, vó 103 kg og var 193 sm. á hæð. Á yngri árum hafði hann verið hnefaleika- meistari í þungavigt. En utan þessara tiltölulega einföldu svara frá „Nancy“ gengdi andatrú að því er virtist engu hlutverki í lífi hans. „Þjónustuandi“ gerist óvinur. Þessi tuttugu og fimm ár átti hann ekki í nein- um erfiðleikum með andann, en þegar hann byrj- aði að lesa Biblíuna, urðu snögg umskipti þar á. Auðvitað var honum vel kunnugt um ósýnileg öfl, en nú fékk hann að vita, að slík öfl eru ekki öll frá Guði. Sum þeirra eru óumdeilanlega ill. Þegar hann komst að þvi, hvað Biblían segir um þessi mál, ásetti hann sér að eiga engin frekari sam- skipti við anda. Þegar hann hafði tekið þessa ákvörðun, tók hann að verða fyrir raunverulegri andstöðu. Fyrst var það andinn „Nancy“. Þegar henni mistókst að snúa honum gegn Biblíunni, sameinaðist heill hópur af öndum gegn honum. Þrátt fyrir það hélt hann og fjölskylda hans áfram að rannsaka Guðs orð. Stundum lásum við saman, unz áliðið var kvölds. Áður en langt leið byrjuðu andamir að sýna mér persónulega andúð, fyrst með fortölum, en síðan með valdi. Kvöld eitt, þegar við lukum við rannsókn okkar á tólfta kafla Opinberunarbók- arinnar, sögðu andarnir við hann: „Það sem þið hafið verið að ræða hér í kvöld, er allt rangt. Við höfum lykil að þessu vandamáli, og við gefum þér þetta sem tákn um það.“ Að svo mæltu féll stór lykill, um átta þumlunga langur, á gólfið, án þess að nokkur sæi hvaðan hann kom. öllum varð bilt við. Svo laut ein stúlknanna niður og tók hann upp. Enginn hafði séð hann áður. öðru sinni birtist vofa í gervi kjölturakka fjölskyldunnar, verðlaunarefahunds, sem drepizt hafði skömmu áður. Árum saman hafði húsbónd- inn alið upp verðlaunahunda. Og þegar þessi litla trýnismjóa skepna stökk upp á knén á honum eins og hún var vön, hafði það auðvitað djúp áhrif á fjölskylduna. En þegar þetta gerðist, höfðu þau öll fengið nokkra þekkingu á blekkingarmætti andaheimsins. Þau vissu, að það, sem virtust næst- um óhrekjandi rök fyrir lífi eftir dauðann, voru aðeins nýjar tilraunir illu andanna til að blekkja. Vofur í gervi dýra eru ekki óalgengar, eins og síðar verður vikið að. Margt undarlegt gerðist næstu mánuði, því að baráttan varð æ harðari. Stundum sögðu andarnir, þegar ég fór frá þessu heimili: „Við skulum koma Anderson fyrir kattarnef á leiðinni heim í kvöld.“ Og þeir reyndu það oft. Oftar en einu sinni hef ég fundið kverkatak ósýnilegra handa á hálsi mér þrýsta mér til jarðar. Það er enginn vafi í huga þess manns um tilveru ósýnilegra afla, sem slíka reynslu hefur hlotið. Ég vissi að baráttan, sem ég átti í, var „ekki við hold og blóð“, eins og Páll postuli segir, Iield- ur „við andaverur vonzkunnar í himingeimnum“. Efes. 6,12. Hve illir þessir andar eru í rauninni, kom mér til dæmis fyrir sjónir, þegar maður þessi, undir áhrifum eins þeirra þreif dóttur sína sautján ára, kverkataki og hafði næstum kyrkt hana í stál- greipum sínum. Venjulega var hann góðlyndið sjálft. En við þetta tækifæri varð hann ofsareiður vegna þess að hún hafði sagt, að Biblían væri í sannleika orð Guðs og hið eina örugga leiðarljós. Þegar ég sá hættuna, sem steðjaði að stúlkunni, gekk ég til þeirra og skipaði honum í nafni Jesú Krists að sleppa henni. Tak hans linaðist þá sam- stundis. PíanóiS lék af sjálfsdáSurn. Mánuðum saman rannsakaði ég Biblíuna með þessara fjölskyldu á Nýja Sjálandi. Meira að segja bjó ég hjá fjölskyldunni um þriggja mánaða skeið, á meðan eiginkona mín og litli drengurinn okkar voru að heimsækja ástvini í Ástralíu. Það olli mér ónotalegum tilfinningum að heyra, en það koni iðulega fyrir, að faðirinn gekk um hánótt fram hjá herbergisdyrum mínum, niður stigann og inn 32

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.