Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 45
^e6Sja sannanirnar á borðið, verða þær til þess
að undirslrika það, sem orð Guðs heíur sagt, að
blóð Jesú væri ekki mannlegt blóð, heldur heilagt
blóð, Guðs blóð.
Með þessar sannanir læknavísindanna á borð-
inu í dag, kemur ráðsályktun Guðs svo kröftug-
lega fram í ljósið, að sonur Guðs skyldi fæðast af
yngismey. Um þetta spáði Jesaja um það bil 700
nram áður en Guðs sonur fæddist, með þessum
°rðum: „Sjá yngismær verður þunguð og fæðir
son og læíur liann heita Immanúel." (Jes. 7,14).
í'yrir það sama verður það blóð, sem átti að end-
urleysa mennina, annars eðlis en í nokkrum öðr-
Um manni, er gengið liefur um þessa jörð. I ljósi
þessarar staðreyndar fá því orð Jóhannesar sterk-
an hljóm: „blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss
af allri synd.“ (Jóh. 1,7).
Það sem lærðir guðfræðingar eru búnir að deila
um nær 2000 ár, og eru aldrei vilhari í efninu en
einmitt nú, segir Heilög ritning í einu versi og nær
að segja allan sannleikann með því. Þegar engill-
inn birtist Maríu lil að flytja lienni þessi óvenju-
iegu og miklu sannindi, spyr yngismærin undr-
andi: „Hvernig gelur þetta verið, þar eð ég hef
ekki karlmann kennt?“ Þá svarar engillinn lienni:
»Heilagur Andi mun koma yfir þig og kraftur
lúns hæsta mun yfirskyggja þig, fyrir því mun
°g það sem fæðist, verða kallað heilagt, sonur
Guðs“. (Lúk. 1,35). Síðan tekur fóstrið venjulegan
þroska í móðurlifi meyjarinnar. En i blóði þess er
ekkert blóðko’-n, hvorki rautt né hvítt, frá Jésef né
neinum öðrum jarðneskum föður, og ekki heldur frá
nióðurinni. Þegar Heilagur Andi kom yfir Maríu
frjógvaðist eggið í móðurlífi hennar. Þetta er allt,
sem þarf að segjast. Staðreynd er, að sjálfsfrjógun
er til í jurtaríkinu, þó að sjaldgæft sé. Skyldi það
þá ekki vera möglegt fyrir Skaparann að koma
Jrví til leiðar, sem hann vill, er kraftur Guðs skap-
andi Anda kemur yfir sjálfa kórónu sköpunar-
innar!
Um leið skiljum við hve óendanlega mikla þýð-
nigu meyjarfæðingin hefur. Með þessu stendur
eða fellur sannleikurinn um friðþægingarverk
Jesú Krists. Sé Jesús ekki fæddur af mey, þá rann
venju'legt mannsblóð í æðum hans, og getur hann
hví ekki endurleyst syndugt mannkyn með synd-
ugu blóði. Ritningin segir líka: „Enginn maður
fær keyptan bróður sinn lausan, né greitt Guði
lausnargjald fyrir hann.“ En af því að hann er
Guð af Guði, þá megnar hann að endurleysa synd-
ugan mann með blóði sínu, af því að það er heil-
agt Guðs blóð.
Hér er þá vitnisburður Heilagrar ritningar um
það, hvernig blóðið verkar í sambandi við endur-
lausn mannsins.
1. Blóði'ð veiiir olckur frið við GuS: Guð hafði
ákveðið með sjálfum sér „að koma fyrir hann
(Krist) öllu í sátt við sig, hvort heldur er það sem
er á jörðunni eða þdð sem er í himnunum, eftir að
hafa samið /rið með blóðinu, úthelltu á krossi
hans“ (Kól. 1,20).
2. Blóðið rétllœLir okkur: „Miklu fremur mun-
um vér þá nú, réttlættir fyrir blóð hans (Krists),
frelsaðir verða frá reiðinni “ (Róm. 5,9).
3. Blóðið endurleysir okkur: „En í honum eig-
um vér endurlausnina fyrir hans blóð, fyrirgefn-
ing afbrotanna“ (Ef. 1,7; Kól. 1,14; I. Pét. 1,18).
4. Blóðið hreinsar af allri synd: „En ef vér fram-
göngum í ljósinu eins og hann er sjálfur í ljósinu,
þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð
Jcsú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd“ (1.
Jóh. 1,7; Opb. 1,5; 7,14).
5. Blóðið veilir okkur aðgang að himninum:
„Er vér nú, bræður, megum fyrir Jesú blóð með
djörfung ganga inn í hið heilaga....“ (Hebr.
10, 19).
6. Blóðið gefur okkur fullkominn sigur yfir
SaLan: „Og þeir hafa sigrað hann (Satan) fyrir
blóð lambsins og fyrir orð vitnisburðar síns, og
eigi var þeim lífið svo kært, að þeim ægði dauði“
(Opb. 12, 12).
7. Blóðið verður efnið í hinum nýja söng í ei-
lífðinni: „Og þeir syngja nýjan söng, segjandi:
Verður er þú að taka við bókinni og ljúka upp
innsiglum hennar, því að þér var slátrað, og þú
keyptir menn, Guði til handa, með blóði þínu, af
sérhverri kynkvísl og tungu og þjóð“ (Opb. 5,9).
Talan 7 er guðleg tala, bendir á sjálfan Guð,
og sannleika orðs hans, sem líkt er við „sjöhreins-
að gull“ (Sálm. 12,7). Mér þótti því hlýða að
benda á þennan sjöfalda vitnisburð Heilagrar ritn-
ingar um þýðingu blóðs Jesú Krists fyrir endur-
lausn mannssálarinnar. Páll postuli segir í fyrra
Framhald á bls. 50
45