Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 47

Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 47
(3. Davíðs sálmur). Mjög eru þeir fáir, ef nokkur finnst, sem þekkja ekki hvað það er að gráta. Aðeins Guð veit tölu á þeim koddum, sem verða vættir með tárum næst- komandi nótt, tárum kvíða, þjáninga, saknaðar og sorgar. Sú stund kom í lífi þessa sálmaskálds, Davíðs, oð tárin flutu vðistöðulaust af hvörmum lians. Okkur er ekkert sagt um ástæðuna fyrir því, að slíkt táraflóð féll af hvörmum þessa manns. En liitt er okkur sagt, að þegar hann sneri sér til Guðs, fann liann huggun og lækningu meina sinna. »Ö, Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú iæknaðir mig‘: (Sálm. 30,3). Táraflóð hans stöðv- aðist á samri stundu, sem hann uppgötvaði, það Sem hann segir í 6. versi: „Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.“ „Að kveldi gisti mig grátur, en gleðisöngur að morgni.“ Hve huggunarrík orð þetta eru, á þessu augnabliki, fyrir þann, sem hefur verið í þreng- mgum langan eða stuttan tíma, og hefur haldið að tár og þrenging yrði kannski sitt daglega brauð, það sem hann ætti eftir að lifa. Ef við raunveru- lega tækjum þessi orð sálmaskáldsins inn í hjarta okkar, grópuðum þau í hugsanalíf okkar, mundi sorg og myrkur aldrei skyggja yfir vegu okkar. Sálmaskáldið þekkti livað það er, þegar „gleði- söngur að morgni“ mætti honum. Það var ekki nein vísdómsfull hugsun, ekki eitthvað sem ein- bver sagði við hann, eða hann hafði lesið, sem Serði undrið. — Nei, það var eitthvað, sem hann reyndi sjálfur. Áður en þessi þýðingarmiklu °rð komu á pappírinn, liafði höfundurinn lifað ‘hau, reynt þau. Þau eru rituð beint út frá reynslu hans sjálfs. Já'ning okkar verður þyngra vegin, og einkennist af sigrandi krafti, þegar við tölum út frá eigin reynslu. Menn hlusta betur og eru fúsari til eftirfylgdar. Reynslan er eins og stór óvísun upp á þýðingarmikla kennslustund, fyrir bá sem heyra á. „Gleðisöngur að rnorgni." Ekki vegna hins árla tíma dagsins, urðu þessi dásamlegu umskipti, lieldur vegna þess að hönd Guðs strauk öll tár af ásjónu þess, sem snéri sér til hans. Dimmir dagar geta komið og ollað því, að tárin streymi okkur af hvörmum. En aðeins þegar við snúum okkur til Guðs getur reynsla okkur orðið slík, að gleði- söngur mæti okkur að morgni. — Sá friður, sem yfirgcngur allan mannlegan skilning, gefst okkur aðeins fyrir Jesúm Krist, frelsara vorn. Þennan frið fann sálmaskáldið, þegar það sneri sér til Guðs í neyð sinni. Þennan sama frið finnur þú líka, ef þú hefur ekki þegar fundið hann, þegar þú gerir það sama. „Og Herrann Drotlinn mun þerra tárin af hverri ásjónu.“ (Jes. 25,8). lausnargjald af Guði fyrir synduga menn. Upp- risa Krists byggist einmitt á því. Hér höfum við Sumum heim=ka Frnmhnld nf bls. 45. Korintubréfi, 15. kafla: „ef Kristur er ekki upp- risinn, er trú yðar fánýt, þér eruð þá enn í synd- um yðar,“ og jafnframt einnig þeir glataðir, sem sofnaðir eru í trú á Krist.“ Þetta má segja á annan veg, og meina þó hið sama: „Ef vitnisburður Biblí- unnar í öllum sjö áðurnefndum liðum, er ekki sann- ur, erum við allir í syndum okkar, sem höfum trúað á orð Ri'ningarinnar í þessu efni, og jafn- framt einnig þeir glataðir, sem dánir eru í trú á þennan vitnisburð Guðs. Þá erum við, jafnt og þeir dánu, „aumkunarverðastir allra manna“, eins og Páll orðar það. „En nú er Kristur upprisinn frá dauðum, sem frumgróði þeirra sem sofnaðir eru“, hrójiar liann með sigurhreimi. Og þannig er með þá sem dánir eru í trú á endurlausnina í blóði Krists, og okkur sem lifum, við getum sagt allir eins og Páll. En nú sagði Kristur: „Því að þetta er sá'.tmálablóð mitt, sem úthellt er fyrir marga til syndafyrirgefningar“ (Matt. 26,29). — í öðru lagi þá hefði Kristur ekki risið upp, ef blóð hans hefði ekki verið tekið sem fullkomið endur- 47

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.