Afturelding - 01.01.1987, Page 15
Á síðasta vori fórum við um
40 manns frá Betelsöfnuðinum í
Vestmannaeyjum og heimsótt-
um trúsystkini okkar í Færeyj-
um. Áttum við með þeim
ógleymanlegar stundir og stór-
kostlegar samkomur. Við héld-
um hvítasunnuhátíðina saman
og höfðum samkomur með þeim
í Álunni, seni er hátíðarsalur
Kennaraháskólans í Færeyjum.
Þegar flest var komu um eða yfir
500 manns á samkomurnar og
nálægð Heilags anda var mjög
greinileg. Einnig héldum við
samkomur á tveimur öðrum
stöðum í Þórshöfn og Vest-
manna, þar sem verið er að
stofna Hvítasunnusöfnuð.
Ávöxtur þessarar heimsóknar
er m.a. sá að nú um páskana
kemur hingað til íslands um 40
manna hópur frá Færeyjum til
að eiga með okkur gleði- og
hlessunarstundir í forgörðum
Drottins. Við hér í Betel hlökk-
um mikið til að hitta þessa vini
okkar aftur. Þrá og löngun til að
hitta trúsystkini er gjöf Guðs til
okkar mannanna, því Heilagur
andi er gefinn til að við uppörv-
um hvert annað og hvetjum til
kærleika og góðra verka.
Ekki má gleyma því að þessir
vinir, sem koma frá Færeyjum,
standa okkur nær en flestar aðrar
þjóðir. Við erum af sömu ætt og
í næsta nágrenni. Þó að við get-
um kannski ekki alveg skilið mál
hver annars, þá leysist það
ótrúlega fljótt. Og hvað er annað
sjálfsagðara en að við, nágrann-
arnir, frændurnir og bræðurnir í
Kristi Jesú bindumst sterkum
kærleiksböndum? Það eflir kær-
leikann og opnar dyr fyrir bless-
un frá Guði að vera með í stór-
um söfnuði réttlátra.
Færeyingarnir koma til ís-
lands á pálmasunnudag kl.
13.15 og lenda í Reykjavík. Á
Snorri Óskarsson
Hvítasunnumenn
frá Færeyjum
Kórinn í Evangeliihúsinu.
Theodór túlkar Eyjamenn.
skírdag liggur leiðin til Vest-
mannaeyja kl. 14 og verða þeir í
Eyjum fram á miðvikudag. 22.
apríl munu Flugleiðir flytja þá
afturtil Færeyja.
Við í Vestmannaeyjum höfum
fengið Bæjarleikhúsið fyrir
kvöldsamkomur og annan sam-
komusal þar sem við ætlum að
borða saman og fagna í Heilög-
um anda-.
Samkomur í Reykjavík verða
nánar auglýstar síðar.