Afturelding - 01.01.1987, Page 18

Afturelding - 01.01.1987, Page 18
Alyktun trúboðafundar Hvítasunnuhreyfingarinnar, sem haldinn var í Keflavík 26.-28. febrúar 1987 Áriö 1000 tóku íslendingar kristni og hurfu frá heiðni. Þjóðin fékk að reyna misjöfn kjör og oft mikla óbilgirni af annarra hálfu, en trúin á Guð föður og Frelsarann Jesú Krist reyndist stoð íþrengingum og Ijós í myrkviði erfiðleikanna. A okkar dögum sjáum við mikið fráhvarf frá kristinni trú ogsiðferði, ef marka má atferli þjóðarinnar. Hjónabandið er stofnsett af Guði sjálfum og því heilög stofn- un. Hjúskaparheitið, um ævar- andi trúnað og gagnkvæma skuldbindingu maka, ber að virða. Fjölgun hjónaskilnaða og óvigðra sambúða sýnir þverr- andi virðingu fyrir tilskipun Guðs á sviði ijölskyldumála. Guð hatar hjónaskilnaði. Hvert og eitt hjónaband getur lent í erfiðleikum. Við hvetjum hjón, sem í þeim lenda, að leita lausnar á vandanum í stað þess að flýja hann með auðfengnum hjónaskilnaði. Þá, sem leita hamingju fyrir sig og afkomend- ur sína, hvetjum við til að halda hjónabandið í heiðri. Nú uppskera menn bitran ávöxt lauslætis og hins „frjálsa kynlífs“ í örri útbreiðslu eyðni- veirunnar. Guð ætlaði kynlífinu sess innan hjónabandsins, allt lauslæti, hórdómur og saurlífi er synd. Við minnum á gildi hrein- lífis og trúnaðar á sviði kynlífs- ins. Þeim sem slíkt ástunda er ekki þörf á verjum gegn eyðni, séu hlutaðeigendur ósýktir fyrir. Það er sorgleg staðreynd að fóstureyðingum fer sífjölgandi þrátt fyrir að lífskjör og öll skil- yrði til farsæls mannlífs hafi aldrei verið betri á íslandi en nú. Guð er höfundur lífsins og eng- inn annar hefur vald til að eyða lífi. Fósturdeyðing getur aldrei verið lausn á félagslegum vanda. Búi verðandi móðir við svo bág- ar aðstæður að henni sé illkleift að sjá ófæddu barni sínu far- borða hlýtur það að vera skylda þjóðfélagsins og þegna þess að bæta úr bágindunum með félags- legum aðgerðum. Skorum við á Alþingi að endurskoða ákvæði um félagslegar forsendur fóstur- eyðinga og Ieysa hinn félagslega vanda í stað þess að eyða lífi óborinna íslendinga. Einnig minnum við á fjöl- margar íslenskar fjölskyldur, sem þrá það heitast að fá að bjóða böm velkomin og veita þeim umönnun og uppeldi. Við skorum á yfirvöld menntamála að taka til endur- skoðunar námsefni í kristnum fræðum 8. og 9. bekkjar grunn- skóla. Þar þarf að veita miklu meiri og betri fræðslu um kristi- legt siðgæði á sviði íjölskyldu-, kynlífs- og uppeldismála. Benda þarf á skaðsemi lauslætis og af- brigðilegs kynlífs og kenna nem- endum að bera virðingu fyrir eigin lífi og líkama. Við sendum íslensku þjóðinni blessunaróskir og kærleikskveðj- ur í nafni Jesú Krists. Við hvetj- um alla sem byggja þetta land að sameinast í bæn til Guðs um að vel ári til lands og sjávar, og að við fáum notið afla handa okkar í friði og réttlæti. Til að friður haldist og rétt- lætið aukist er okkur nauðsyn- legt að hlíta þeim reglum, sem Guð hefur sett og gilda frá kyn- slóð til kynslóðar. Þær er að finna í Biblíunni, Heilagri ritn- ingu kristinna manna.

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.