Afturelding - 01.01.1987, Side 19
haldaaðalfund
Alpha-Omega, samtök kristi-
legs sjónvarpsstarfs í Evrópu,
héldu fyrsta árlega aðalfund sinn
í Kaupmannahöfn, ári el'tir
stofnun samtakanna í Lissabon,
Portúgal, í febrúar 1986.
Samtökin Alpha-Omega hafa
það markmið að miðla fagnað-
arerindinu um meginland Evr-
ópu, og vinna í nánu samstarfi
við kirkjurnar.
Fulltrúar frá 14 samtökum í
Evrópu og 13 löndum komu á
fundinn.
Ráðstefnan var haldin í boði
KKR (Köbenhavns Kristne
Radio/TV). Það er fyrirtæki,
sem framleiðir og sendir út bæði
útvarps- og sjónvarpsefni, og
hefur starfað síðan 1984. Nú
sjónvarpar það kristilegu efni og
Ijölskylduþáttum í 20 klukku-
stundirá viku.
Þátttakendur sögðu frá spenn-
andi þróun í hverju landi. Það
sem mesta athygli vakti var
tækifæri Media Vision í Vestur-
Þýskalandi til þess að sjónvarpa
gegnum Eureka gerfihnattakerf-
ið. Media Vision byrjaði smátt í
sniðum snemma á árinu 1984,
en kemur nú til með að ná til
7,000,000 manna á þessu ári.
Til þess að mæta mikilli þörf
starfsins í Vestur-Þýskalandi'
mun Alpha-Omega flytja þang-
að „Master Control“-vagninn,
sem er milljón dollara virði.
Crossroads Christian Comm-
unications í Canada reka nú
þennan vagn í þágu Alpha-
Omega samtakanna.
Nokkur önnur áhugaverð mál
voru rædd á fundinum, þ.á.m.
framtíðarmöguleikar á áfram-
haldandi upplýsinga- og gagna-
miðlun. Næsta þjálfunarnám-
skeið á vegum samtakanna,
verður haldið í Brussel, Belgíu, í
ágúst 1987, til þess að þjálfa
þáttagerðamenn.
Nánari upplýsingar um
Alpha-Omega samtökin, mark-
mið, tilgang og starfsemi þeirra,
fást hjá Mr. Len Johansson, eða
Birger Lind, c/o KKR, Vaelde-
gaardsvej 10-14,2600 Glostrup,
Denmark.
Sigurður Guðnason
Vitnisburður
Ég kom út af Vífilstöðum um
sumarið 1982. Þá var ég búinn
að vera í algjöru myrkri og neyð
í mörg ár. Ég var leitandi í lang-
an tíma. En ég trui því að Krist-
ur hafi kallað mig lil trúar, eitt
sinn er ég var í vinnunni.
Einhver talaði ti! mín, það var
sagt orðið sannleikur. Þá tók ég á
móti Jesú Kristi sem frelsara
mínum. Þetta var vorið 1983.
Ég gekk með Jesú Kristi í
nokkra rnánuði, en féll svo frá.
Þá fór ég í Hlaðgerðarkot. Guði
sé lof fyrir það. Ég tók endanlega
ákvörðun um að fylgja Jesú
Kristi, og ég tók skím 26. ágúst
1984.
Jesús gaf mér nýtt líf. Hann
tók allar mínar misgjörðir og öll
mín afbrot á sig, eins og stendur í
Jesaja 53. kaíla. Þú sem ekki
þekkir Jesú Krist, þú ættir að
leyfa Honum að koma inn í líf
þitt. Það er undursamlegt.
Mig langar til að gefa þér vers,
Sálm 40:1.
„Eg hefi setl alla von mína á
Droltin, og hann laut niður að
mér og heyrði lcvein mitt."