Afturelding - 01.01.1987, Qupperneq 21

Afturelding - 01.01.1987, Qupperneq 21
Guðsundur íKína ,,Hvert er nafn yðar læknir?*4 Dauðvona kona hlaut guð- dómlega lækningu — en þó þekkti hún ekki grœðara sinn. Kristinn maður frá Hong Kong, sem heimsótti austur- hluta Kína á þessu vori, flutti okkur þennan athyglisverða vitnisburð sem hér frá greinir. Zhejiang, er eitt þeirra héraða sem hefur hæstu tölu kristinna í Kína. En fagnaðarerindið hafði samt ekki enn náð til þorps eins, er lá í skjóli hæðardraga. í þorpi þessu bjó kona sem hafði þjáðst af heilaæxli í níu ár. Hún hafði varið öllum ijármunum sínum til að leita sér lækningar - án nokkurs árangurs. Að endingu gaf hún upp alla von og bjóst við dauða sínum. Dag nokkurn, þegar hún var ein heima og lá hálfvakandi í rúminu, sá hún þrjá menn í hvít- um skikkjum koma inn í húsið. Þeir gengu rakleitt inn í svefn- herbergi hennar og einn þeirra spurði hana: „Viltu læknast?" Hún varð ekki lítið undrandi og spurði á móti: „Ert þú læknir? Já, ég vil læknast.“ Hvítklæddi maðurinn gekk nær henni og strauk höfuð henn- ar þar sem æxlið var. Hún fann að vökvi fór út úr höfðinu og að kökkur var ijarlægður úr því. Síðan virtist maðurinn loka höfði hennar með nokkrum skjótum handahreyfingum. Konan fann að henni létti samstundis. „Hvert er nafn yðar læknir,“ spurði hún „Jesús“, svaraði hvítklæddi maðurinn. „Þú getur hitt mig í næstu borg.“ Að svo mæltu hvarf hann. Um kvöldið kom fjölskylda konunnar heim. Hún skýrði frá lækninum sem hafði veitt henni ókeypis meðferð. Fjölskyldan skeytti þessu engu og áleit hana vera með óráði. Konan varð styrkari með hverjum degi sem leið. Heila- æxlið var horfið. Þegar hún hafði safnað fullum kröftum lagði hún leið sína til nágranna- borgarinnar. Hana langaði til að hitta lækninn, sem hafði læknað hana, og tjá honum þakklæti sitt. Þennan sama dag í borginni, átti amma nokkur í erfiðleikum og basli með dótturson sinn, lít- inn snáða. Drengurinn lét öllum illum látum og hágrét og vildi ekki láta huggast. Amma ákvað því að fara með hann út til að leika sér. Þegar þau komu út úr húsinu rákust þau á konuna. „Býr hér læknir sem heitir Jes- ús,“ spurði konan ömmuna. Amman var kristin kona. Hún var ekki lengi að hugsa sig um og tók konuna með sér á heimili þar sem kristið fólk kom saman til að tilbiðja Drottin. Konan sagði því sögu sína. Hinir kristnu urðu ekkert sérlega undrandi því að guðlegar lækningar eru mjög algengar í dreifbýlishéruðum Kína. Þeirsögðu henni hver Jes- ús væri og konan varð undrandi og furðu lostin. Hún fékk að heyra predíkað hjálpræði og iðrun fyrir trú á Jesú Krist, og snéri heim með Jesú í hjarta sínu. Það leið ekki á löngu uns öll íjölskylda hennar hafði gefist Jesú Kristi. Vitnisburður hennar breiddist fljótt út um allt þorpið og margir vildu trúa á Jesú. Þar eð hún var fákunnandi í trúnni gat hún ekki útlistað hana nægi- lega vel, og lét því sækja reynd- ari kristinn mann til borgarinnar og þá leituðu margir til Drottins. Asian Report, no 1 jan/feb 1985, þýttHG

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.