Afturelding - 01.01.1987, Qupperneq 25
Á kvöldtónleikum
í ráðstefnumiðstöðinni „De
Bron“ (Lindinni), er gott að hvílast.
Menn gleyma samkeppni vegna fé-
lagsskaparins. Enginn er þröng-
sýnn, heldur eru menn opnir fyrir
öllum tónlistarstefnum. Það líkar
þeim vel sem koma frá ólíkri menn-
ingu, ólíkum kirkjum og þjóðum.
Nú er hægt að skrá sig á þetta
mót, það byggir margar brýr.
Síðastliðið sumar þurfti ég að
sækja viðskiptaráðstefnu í Hol-
landi, og átti um leið kost á að
njóta veru á „Christian Artist
Seminar41, sem árlega er haldið í
De Bron.
Þessi mót eru upprunnin í
Bandaríkjunum, þar sem maður
að nafni Cam Floria átti hug-
myndina og hratt henni í fram-
kvæmd. Cam Floria er m.a.
stofnandi „Continental Singers"
starfsins. Árlega er safnað saman
ungum hljóðfæraleikurum og
söngvurum, sem mynda hópa er
ferðast um allar jarðir. Angi af
þessu starfi eru „Celebrant
Singers", sem íslendingar þekkja
af góðri raun.
Undanfarin ár hefur mikið
verið að gerast meðal kristinna
flytjenda tónlistar í „dægurlaga-
stíl“. Cam Floria sá þörf þessa
unga fólks fyrir leiðbeiningu,
samskipti, uppörvun og andlegt
samfélag. Hann stofnaði því til
móts í Estes Park, Colorado. Eft-
ir mjög góð viðbrögð og jákvæð-
ar undirtektir vestanhafs, var
stofnað til svipaðra móta í
Evrópu.
Eg hafði heyrt af þessu starfi
og var því nokkur tilhlökkun að
kynnast því sem þarna færi
fram. Fyrstu viðbrögð voru
undrun. Það kom mér mjög á
óvart að sjá hversu margir og
hæfir flytjendur leggja stund á
þessa tónlist, einnig var hrífandi
að reyna andann sem ríkti á
mótinu. Þótt fólk væri hvaðan-
æva að og talaði sumt framandi
tungumál, ríkti mikil samkennd
og bróðurhugur á svæðinu.
Tíminn var vel nýttur, boðið
er upp á ótrúlegan fjölda nám-
skeiða og starfshópa um nær allt
er að tónlist, flutningi og þjón-
ustu lýtur. Þarna er hægt að fá
tilsögn í söng og hljóðfæraleik,
sviðsframkomu, tónlistarsögu,
útsetningum, kórstjórn, safnað-
arsöng, samskiptum flytjenda og
útgefenda, hljóðstjórn, lýsingu
svo nokkuð sé nefnt. Kennsla
stendur frá því snemma að
morgni til kvölds. Samtímis fer
fram hæfileikakeppni, þar sem
reyndir flytjendur leiðbeina ný-
liðum.
í hádegishléi er biblíukennsla
og lofgjörðarstund. Eftir hádegið
voru svo tónleikar á útisviði þar
sem tvær til þrjár hljómsveitir
komu fram. Aðaltónleikarnir
voru haldnir á kvöldin. Yfir vik-
una koma fram um sextíu flytj-
endur. Hvert atriði tekur aðeins
um tuttugu mínútur svo fjöl-
breytnin er mikil. Það vakti
athygli mína að allir sem þjón-
uðu nutu viðurkenningar og fólk
hlustaði af athygli. Þama mætt-
ust gjörólíkar tónlistarstefnur og
flytjendur, sem áttu það eitt
sameiginlegt að heiðra Jesú
Krist og það er ekki svo lítið.
Megnið af tónlistinni var af létt-
ara tagi, en innan um voru bæði
söngvarar og hljóðfæraleikarar
sem fluttu sígilda tónlist. Þeim
var ekki síður fagnað.
Þrátt fyrir mikinn fjölda flytj-
enda gekk dagskráin snurðulaust
fyrir sig vegna afburða skipu-
lagningar. Hljómburður var sá
besti, sem ég hef heyrt á tónleik-
um af þessu tagi.
Þessi vika var veisla og sann-
arlega þess virði að íslendingar,
sem fást við trúartónlist á ein-
hvem hátt, gefi henni gaum. í
sumar er aftur boðað til móts
10.-15. ágúst. Þegar hafa nokkrir
skráð sig til þátttöku, og væntan-
lega mun Þorvaldur Halldórsson
og hljómsveit koma fram á
kvöldtónleikum sem framlag ís-
lands. Hafir þú áhuga á nánari
upplýsingum skalt þú snúa þér
til undirritaðs hið fyrsta.
Guðni Einarsson
Pósthólf 5135
125 Reykjavík
Sími 91-25155