Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Qupperneq 40
36
siglað oss og geíið oss pant Andans í hjörtu
vor*. II. Kor. 1, 21—22.
Guð sér um það, að börn lians fái kraft
til hinnar góðu baráttu, sem hefst, þegar
menn ganga honum á hönd. Þessvegna seg-
ir og Páll postuli: »En þar eð þér eruð
synir, hefur Guð sent Anda Sonar síns í
hjörtu vor«, Gal. 4, 6. Guð gefur börnum
sínum Heilagan Anda. Hann er pantur arf-
leifðar vorrar. Hann er sönnun þess, að
Guð lætur ekki hér við staðar nema; hann
heldur áfram og leiðir börn sín til full-
kominnar dýrðar. Það er Andinn, sem kem-
ur öllu góðu til leiðar: sigri á freistingum
og illum hneigðum og þroska og vexti í
kristilegu lífi ásamt öllum góðurn ávöxtum
þess: kærleika, gleði, friði, langlyndi, gæzku,
góðvild, trúmennsku, hógværð og bindindi.
(Gal. 5, 22). Hið gainla bíður ósigur fyrir
hinu nýja, sem Andinn skapar, enda segir
Páll postuli við Guðs börn: »— í Kristi
hafið þér lagt af, ásamt með hinni fyrri
breytni, hinn gamla mann, sem er spilltur
af tælandi girndum, en endurnýjazt í anda
liugskots yðar og íklæðzt hinum nýja manni,
sem skapaður er eftir Guði í réttlæti og
heilagleika sannleikans», Efes. 4, 24—25.
Guð skapar nýjan mann í börnum sínum.
Þetta er og nefnt eiulurfæðing (sbr. Jóhs.