Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Side 61
57
sonur er oss gefinn; á lians herðnm skal
höfðingjadómurinn hvíla; nafn hans skal kall-
að undra-ráðgjafi, Guðhetja, eilífðarfaðir, frið-
arhöfðingi«. Og þegar við berum þenna fallega
spádóm sainan t.d. hjá Lúk., þegar engillinn
kemur til hirðanna og segir við þá: »Verið
óhræddir, því sjá ég boða yður mikinn fögnud,
sem veitast mun öllum lýðnum, því að yður
er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur
Drottinn«.
Og hvernig lýsir svo Jesaja í spádómi sín-
um starfi Jesú? Hann segir: »Andi Drottins
er yíir mér, af pví að Drottinn hefir smurt
mig til að flytja nauðstöddum gleðilegan boð-
skap, og sent mig til að græða þá, sem hafa
sundurmarið hjarta, til að boða herteknum
frelsi og fjötruðum lausn«. Uppfylling þessa
spádóins er lýst meðal annars hjá Matt. í 11.
kap. En er Jóhannes heyrði í fangelsinu um
verk Jesú, gjörði hann honum orðsending og
lét spyrja: »Ert þú sá, sem koma á, eða eig-
um vér að vænta annars«, og Jesús svarar:
»Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þér
heyrið og sjáið: blindir fá sýn og haltir ganga,
líkþráir hreinsast og daufir heyra, og dauðir
upprísa og fátækum er boðað fagnaðarerindi.
Og sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér«.
Hvaða reynsla Frelsarans segir Páll, að hafi
verið greinilega boðuð í Gamla-testamentinu?