Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 8

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 8
skepnunni var ekkert eftir. Þetta var guð- leg vera, sem reis þarna upp eftir gereyðingu holdsins. Aðeins fatagarmarnir gömlu voru eftir. En það skipti ekki nokkru máli. Ekki hafði Kristur, fyrirrennari hans, verið bet- ur klæddur. Nú hafði hann engar áhyggjur af eymd heimsins. Aðeins verkið mikla var framundan. Hann lét ærnar eiga sig. Nú var hann liirðir manna, en ekki kinda. Hann hélt rakleiðis til mannabyggða. Á hlaðinu mætti hann stúlkunum, sem höfðu áreitt hann fyrr um inorguninn. Þær liorfðu á hann, undrandi yfir þeirri dirfsku að korna heim úr hjásetunni um miðjan dag og láta ærnar eiga sig. „Nei, sjáum til. Ertu orðinn svangur, greyið. Þú ættir að reyna að sleikja upp mjólkina, sem þú helltir niður í morgun.“ „Því skyldi ég leita mér fæðu, þegar guð hefur gefið mér eilíft líf,“ sagði spámaður- inn með heilagri ró. Þær ráku upp skellihlátur. „Nei, ofbjóðið mér nú ekki alveg,“ sagði ein þeirra. „Hvar hefur þú lært þetta?“ „Guð liefur gert mig sinn útvalda spá- mann meðal mannanna," sagði hann og leit af einni á aðra með helgisvip. Hláturinn æstist um allan helming. En spámaðurinn lét sér hvergi bregða. „Sannlega segi ég yður: Sú stund mun koma, að lilátrar yðar þagna og sorgin níst- ir hjörtu yðar, því að ég einn hef lyklana að hliðum Paradísar." Þær hentu í hann skít. Spámaðurinn stóð hreyfingarlaus undir taðkögglahríðinni. Að vísu þótti honura þetta óþægilegt, en hann vissi, að bezta vörn- in gegn ofsóknum liinna vantrúuðu er „að bjóða hinn vangann," svo hann sneri sér á alla kanta til þess að þær ættu hægara með að ata hann út. Þær urðu líka fljótt leiðar á leiknum og tóku í þess stað að hæða hann og spotta. „Hvert það verk, sem þér framkvæmið, mun yður síðar hundraðfalt endurgoldið verða,“ sagði boðberi almættisins, þótt hann sæi, að það var tilgangslaust að tala við þess- ar veraldlegu sálir. Þá kom húsbóndinn til þeirra. „Hvað gengur hér á? Hvað á það að þýða, að koma heirn úr hjásetunni urn miðjan dag?“ „Hver ert þú, að þú segir spámanni Drottins fyrir verkum?" sagði hinn guðlegi sveitarómagi og leit á sinn fyrrverandi hús- bónda eins og sá, sem valdið hefur. „Hvaða djöfulsins vitleysu ertu nú að rausa?“ sagði húsbóndinn, og var nú reiður. „Hann heldur, að hann sé orðinn spá- maður,“ sögðu stúlkurnar. „Ertu orðinn vitlaus eða hvað? Farðu strax aftur upp eftir, áður en féð hleypur út um allt. Spámaður, ekki nerna það þó!“ „Ég er hingað kominn til þess að gæta mannlegra sauða,“ sagði sá útvaldi. „Svei mér þá alla daga, ef maðurinn er ekki orðinn vitlaus," sagði húsbóndinn í hálfum hljóðum. Hann fór inn og kom aft- ur að vörmu spori með húsfreyju sína með sér. Spámaðurinn stóð ennþá teinréttur á hlaðinu með helgiblik í augum. „Hvað ertu að segja?“ sagði konan og virti fyrir sér smalann, skelfingu lostin. „Guð minn góður, hvað þetta er skelfilegt!“ „Viltu ekki fara inn og leggja þig smá- stund,“ sagði húsbóndinn og var nú óvenju blíðmáll. „Sá sem er boðberi Drottins þarfnast ekki hvíldar," svaraði spámaðurinn. „Farðu og náðu í vinnumennina," hvísl- aði bóndinn að einni stúlkunni, sem þegar hljóp af stað. Spámaðurinn gekk upp á bæjarhólinn og kraup þar í bæn til herra síns. „Drottinn, hversu má þinn aumur þjónn berjast gegn heimsku og vonzku mannanna. Gef mér mátt til að flytja orð þitt til þeirra og breiða út ljósið í þeirra myrku sálum.“ En um leið og hann fann hinn eilífa al- mættiskraft koma yfir sig var hann gripinn aftan frá af mörgum sterkum höndum og 44 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.