Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 34

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 34
Um nótt í kirkjugarði (Smásaga, eða drög aÖ Ijóði) Hann situr við legsteininn, gráan legstein með upphafsstöfunum M. G. og ártali sautj- án hundruð níutíu og sex. Blónrin eru tek- in að fölna, það er að koma haust. Hann situr við legsteininn og bíður. Um nótt í kirkjugarði. Legsteinn og blóm og grafarkyrrð. Um nótt í kirkjugarði. Hún gekk fyrir hornið í sólinni og vind- inum. Mikið ljóst hár og ljósblár kjóll. Hún gekk franr hjá, en tók ekki eftir honum. Ljósblár kjóllinn straukst nrjúklega við hné hans, þar sem hann sat á bekknum. Og ný- vaknaðir fuglarnir sungu. Ljóst hár og fuglasöngur. Um nrorgun í kirkjugarði. Seinna sanra dag konr hún aftur. Hann spurði lrvað lrún héti. — M. G. Ég dó sautján hundruð níutíu og sex. Ég er dáin. — En skrýtið. Er ekki undarlegt að vera dáin? Hún lrorfði fram hjá honunr og brosti. Hún Irlaut að brosa að svona sakleysislegri spurningu. — Horfðu framan í nrig, sagði hún. Hef ég undarlegt andlit? Hann lrorfði framan í lrana. Á stór döp- ur og dinrm augu, senr horfðu ekki á hann. — Þú hefur sorgmædd augu. Hún brosti, en stór augun voru óbreytt. — Líttu á fuglana. Þeir syngja. Syngja þeir ekki fallega? Hann lrorfði ekki á fuglana. Hún hafði dimm og döpur augu. Bros og döpur augu. Um dag í kirkju- garði. Kvöldið og nóttin konru og allt myrkrið. Ilún konr aftur til lrans og settist lrjá hon- um. Augu hennar voru dimmari en fyrr um daginn. Sólin speglaðist ekki lengur í þeinr, aðeins myrkrið. Þau sátu þarna tvö ein á bekknum og reyndu að tala saman. Augu, sem horfðust á og töluðu. Um nótt í kirkjugarði. Þau héldust í hendur og hvorugt sagði orð. Nóttin var rök. Að lokunr fór lrún eins og hún konr, með vindinum. Hann sat einn eftir og starði á skugga hennar á bekknunr. Hann settist við legsteininn með ártalinu sautján lrundruð níutíu og sex og starði niður í nroldina. Stórir skuggar leika sér í trjánum við bekkinn og taka á sig konulíki. Myrkrið hylur allt, og smánr saman dofna stafirnir og ártalið í myrkrinu. Engir upphafsstafir lengur, og ekkert ártal lengur. Skuggarnir hvíslast á. Döpur atigu og dinrm, og ekkert bros lengur, alls ekkert bros. Myrkrið og nóttin má ártalið út. Hann leggst niður fyrir franran steininn og grúfir andlitið niður í nroldina. Hún er Ireit og mjúk. Sig. 70 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.