Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 17

Muninn - 01.12.1966, Blaðsíða 17
ekki birta þetta, það er alveg ófært. En á þessu sjáið þið, hvernig stærðfræðin breytir manninum. Mér hefði t. d. aldrei dottið þetta í hug, ef ég liefði farið í náttúrufræði. En það getur verið garnan að finna sam- svörun með eðlisfræðinni og lífinu. Þið sjá- ið sjálfir, hve eðlisfræðin er almennur þankagangur. Tökum sem dæmi bónda, sem ætlar að mæla tún, sem hefur óreglu- legar útlínur, hann bara integrerar. Og maður, sem ætlar að ákveða hraða bíls. Hann notar sömu aðferð og í differensation. Og tónlistin, hvað er hún annað en eðlis- fræði?“ Egill er hér greinilega kominn út á hál- an ís, en við gerum livað við getum til að leiðbeina honum inn á öruggari brautir. „Kanntu ekki eitthvað skemmtilegt að segja okkur frá skólaveru þinni hér?“ „Æi, nei, það gerist aldrei neitt. Við slóg- umst mikið. Eg sakna slagsmálanna. Það er leiðinlegt að vera orðinn of ráðsettur til að slást. Jú, ég man eftir tveimur sögum úr Utgarði. Við fórum einu sinni í Útgarð með kennara, sem kennir ekki lengur hér. Það var afbragðs skíðafæri á þessum tíma og mannauminginn slysaðist til að biðja einn strákinn að bera á skíðin sín. Jú, jú, stráksi bar ágætan áburð á annað skíðið en engan á hitt. Lærifaðirinn kom vitanlega sundur- rifinn og krambúJeraður niður eftir. Og svo. • . . ja, ég má nú varla segja ykk- ur þetta.“ Egill hlær nú góða stund, en heldur svo áfram með sögu, sem ekki er birtingarhæf, og bætir síðan við: „Já, það var rómantískt í Útgarði. Ég sakna gömlu baðstofurómantíkurinnar." „En kennslan, Egill, hvernig kanntu við hana?“ „Alveg prýðilega, ætli maður leiðist ekki helzt út í hana eftir námið. Annars Iilustið þið alltof lítið á rnann, þetta er að sumu leyti eins og að kasta perlum fyrir svín. Ég skil ekkert í ykkur, Jrið eigið ekki oft eftir að liitta mann eins og mig. Þið eigið að nota þau fáu gullnu tækifæri, sem ykkur bjóðast í lífinu. En í sambandi við tækifærin í lífinu skal ég segja ykkur smásögu frá Kjöben, sem kemur kennslunni ekki beint við. Einn af mínum beztu vinum ranglaði eitt sinn nið- ur á Nýliiifn seint um kvöld. Hann fór þar inn á skemmtistað og settist við borð með angurværðarsvip á öllum líkamanum. Eftir stutta stund konr stúlka til lians og settist við borðið. „Mangler du noget?“ spyr stúlk- an eftir vandræðalega þögn. „Ja,“ svaraði vinurinn, „jeg mangler penge." Þetta er einfalt dæmi um, hvarnig sak- leysið á að bregðast við vítisvélum og sið- spillingartækjum hér á sorphaug lífsins.“ Nú færist værðarsvipur yfir Egil, og greinilegt er, að nú hugsar hann til sokka- bandsáranna. En við göngum á lagið og æskjum eftir fleiri sögum í svipuðum stíl. „Ég get ef til vill sagt ykkur eina, sem er þó ekki í svipuðum dúr. Ég hafði mikið garnan af áflogum, þegar ég var hér í skóla, eins og ég sagði ykkur áð- an. Og svo gerðist það einu sinni, að ég kom inn í herbergi eins skólabróður míns, sem einnig var til í tuskið, og við byrjuðum að slást. Þá er barið að dyrum, og ég segi: „Bíddu aðeins, Helgi, ég ætla að afgreiða þennan snöggvast." Og um leið og hurðin opnaðist, þá slæmdi ég hnefanum fram fyrir í venjulegri höfuðhæð. Til allrar liamingju var þar enginn fyrir, því að inn kom okkar ágæti vinur og skólameistari, Þórarinn Björnsson.“ „En hvernig er það, Egill, hefur þú ekk- ert ort að gagni?“ Þetta er greinilega spurning, sem Egill hefur beðið eftir, Jrví að hann dregur upp úr pússi sínu heljarmikinn blaðabunka með áskrifuðum ljóðum og biður okkur að draga eitt blað úr. Við drögum eina örk og fáum hugljúfa sonnettu. Egill vill taka fram, að sonnettuna orti hann í „stuði“ fyrri hluta dags til stúlku, sem síðan hefur hvorki viljað heyra hann né sjá. MUNINN 53

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.