Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.12.1966, Qupperneq 12

Muninn - 01.12.1966, Qupperneq 12
virkni. Hann lítur um öx!, en heldur þó áfram að strauja. „Viljið þið birta auglýs- ingu í Munin? Eða Ganibra? Eða jafnvel Leikskrá? Talið bara við mig. Ég hef umboð fyrir allt milli himins og jarðar.“ Það er aðdáun í svip okkar, en við treystum okkur ekki fjárhagslega til að auglýsa, og göngum því í brottu frá þessu peningalega ofur- menni. í þessu gerast samkvæmisblöðrur okkar rúmfrekar og er því stefnt á kukk- húsið. Opnar þar Gunnar Frímannsson fyrstu dyr og ætlar að ganga inn, en rekur í rogastanz, er hann sér, að þar situr maður fyrir innan. „Haltu kjafti, ég er að halda aðalfund Skákfélagsins,“ segir sá, reiðilega. „Aleinn?“ spyrjum við undrandi. „Já,“ svarar formaðurinn, „ég var eiginlega bú- inn að fá símaklefann á Karlavistum lán- aðan fyrir fundinn hjá Jónasi Ragnarssyni, en svo mætti alls enginn, ekki einu sinni til að tefla við mig skák, svo að ég ákvað að fara hingað niður eftir og taka eina við páf- ann. Og það verð ég að segja, að Páll sjö- undi er margfalt betri en Jóhannes tuttug- asti og þriðji,“ um leið og hann leikur hart og títt. Fnykur mikill gýs upp, og við flýj- um upp á Sal. Þar er tónlistarkynning, og stendur kvenmaður einn þrýstinn og lenda- mikill við flauelið og syngur seiðandimezzo- sópranröddu: „Ásta Matthildur", en það mun vera upphaf á Lokasennu. Við fætur listakonunnar situr ungur maður og rær sér eftir tónfallinu. Hann ber heimsmanns- svip, enda ýmsu vanur, þar sem hann var á þýzku herskipi síðastliðinn vetur að sögn óljúgfróðra. Hér verður, af fyrirfram ákveðnum, hrap- allegum mistökum, skotið inn smásögu, sem reyndar átti að lenda í smásagnakeppni blaðsins, en þótti nokkuð stutt. Saga þessi gæti gerzt jafnt á Englandi sem Ítalíu. Hún er gallrómantísk, og mætti ætla, að henni hefði verið stolið úr ritverkum Ovids, enda eru nöfn söguhetjanna tekin beint þaðan. Hún hét Corpus.... hann Caput. . . . Það var kvöld, og þau stóðu ein við merki, sem á var letrað rauðum, stórum stöfum: „BUS STOP“. Þau héldust í hendur og fætur. Hann með vinstri hönd á hennar hægri fót. Hún með hægri hönd á hans vinstri fót og öfugt. „í upphafi þessa sam- tals: Corpus, ég elska þig“, sagði hann. Bætti síðan við: „P. S. ertu hægri-sinnuð?“ Ekkert svar. „Corpus, ég elska þig“, hvísl- aði hann aftur. Bætti við: „P. S. er það kannske rauði liturinn, sem þú aðhyllist?" Ekkert svar, enda geta merki, sem á er letr- að rauðum, stórum stöfum: „BUS STOP“, ekki talað. . . . Æ, þessi Bakkus. . . . Á Norðursal er Jón Hafsteinn með auka- nemendur í eðlisfræði. Álpumst við þar inn. Einhver stendur kafrjóður uppi við töflu, og Jón brosir að hrakförum hans, en kunnáttan er lík því, að mölur hafi farið um hana hamförum. Brosið er sínusfúnk- sjón, eins og hún verður bezt dregin. Þegar Jón kemur auga á þessa óboðnu gesti, breyt- ist brosið í hýperbólu ferlega, froða vellur meðfram asýmptótunum, og það glyttir í rautt. Sjáum við, að Jóni líkar nærvera okk- ar ekki nema í meðallagi vel og við hverfum á brott,enda kominn tími til, að við reynum að liafa a. m. k. viðtal upp úr ferðalagi okk- ar. Leitum við því á vit Sigurðar Árnason- ar, en hann liggur yfir námsbókum sínum, enda þótt klukkan sé langt gengin í eitt. „Ja, ég hef bara ekki tíma,“ segir Sigurður og brosir sínu blíðasta. „Ég á eitir að lesa nátt- úrufræði." í því snarast inn Þórður nokkur með lista einn ferlegan í hönd sér. „Bless- aðir skrifið þið undir hjá mér, strákar,“ segir hann. Þetta reynist vera framboðslisti í útíbæjarmannasetustofunefndarfulltrúa- kjör. En blekið er á þrotum, og því kveðjum við þá félaga og röltum niður á Togara- bryggju til að kveðja Ragnar Aðalsteinsson. En sem við göngum fram hjá Heimavist- inni, berast óp mikil og óhljóð að eyrum okkar, og við þegjum þunnu hljóði: Framhald á bls. 51. 48 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.