Muninn - 01.12.1966, Page 28
Og
allir
komu
þeir
aftur
Það var á síðastliðnum vetri, að skotið var
á bekkjarfundi til að ræða væntanlegt ferða-
lag V. bekkjar, og kom þá í ljós, að menn
höfðu áhuga fyrir að kanna ókunnar slóðir
og heimsækja eitthvert nágrannalandanna.
Kom þá einkum til greina, að farið yrði til
Noregs, Færeyja eða Skotlands, og eftir
hæfilegt þras, sem einkennir allflesta bekki,
þegar nást skal samstaða um eitthvað, var
fyrsti kosturinn tekinn. Var þegar hafizt
handa af kappi um fjársöfnun, en bekkjar-
sjóður var ekki of gildur, haldnir dansleik-
ir, gefið út auglýsingablað, rekin pylsusala
niðri í ,,laboratoríi“ stærðfræðideildanna
(þökk sér þeim fyrir veitt húsnæði) o. fl.
Reyndist kostnaður í sambandi við fyrir-
liugaða ferð ekki líta út fyrir að verða hærri
en svo, að 80 af 100 nemendum bekkjarins
bundust fastmælum um að taka þátt, og
var fengin flugvél frá Loftleiðum.
Fararstjórar voru Steindór Steindórsson,
skólameistari og Margrét Hjaltadóttir, fyrr-
verandi leikfimikennslukona, og kunnum
við þeim beztu þakkir fyrir góða fararstjórn
og skemmtilegheit í hvívetna. — Og loks
rann upp hinn langþráði 29. maí, sem bar
upp á hvítasunnudag, með glampandi sól-
skini, sem spáði góðu um uppliaf ferðarinn-
ar. Voru allir komnir út í vél kl. 9 fyrir há-
degi, er tilkynnt var, að um lítilsháttar vél-
arbilun væri að ræða, og mundi ferðinni
því seinka þar til síðar urn daginn. „Fall er
fararheill“ liugguðu menn sig við, en ekki
er mér grunlaust um, að svolítill beygur
hafi gert vart við sig hjá einum og einum.
En sá beygur reyndist ástæðulaus; laust fyr-
ir kl. 3 eftir hádegi lyftum við okkur til
flugs og stefndum út yfir Atlantshaf. —
Ferðin var hafin.
Segir nú ekki af ferðalöngunum fyrr en
komið var til Álasunds kl. 7 að þarlendum
tíma, í rigningu og leiðindaveðri. Var okk-
ur þá ekið til farfuglaheimilisins Skarbó-
vik, ekki mjög langt frá, en þar skyldum við
dvelja, á meðan við værum í Álasundi.
Daginn eftir var lagt upp í ferðalag um
nágrenni Álasunds, Sykkylven—Hellesyt—
Geiranger—Overanes, með bílum og ferjum
64 MUNINN