Dýravinurinn - 01.01.1889, Blaðsíða 26

Dýravinurinn - 01.01.1889, Blaðsíða 26
26 Lífgjafinn. ggert ríki Bjarnarson, sem bjó á Skarði á Skarðströnd á 16. öld, fór einhverju sinni gangandi á vetrardag inn að Búðardal í góðu veðri. Leið lians iá yfir skarðið milli Búðardals og Skarðs Á heimleiðinni hreppti Eggert hrfðarbil svo svartan, að hann sá ekki livað hann fór. Iljelt hann þó áfram ferðinni. En þegar hann hafði gengið nokkra stund, datt hann ofan uin snjóhuldu, sein lá yfir svo kölluðum Ármótum utanvert á Skarðinu. Hafði allt vatn sigið undan huldunni eptir hláku, sem var nýlega afstaðin. En svo hátt var upp að opinu, sem Eggert datt ofan um, að hann gat ekki á nokkurn hátt komist upp um það. Leit ekki út fyrir annað en að hann mundi farast þar úr hungri undir skallinum. Eggert átti góðan hund, sem fylgdi honum í þetta skipti cins og endrarnær, þegar hann fór eitthvað. Hundurinn fór, nokkru eptir að Eggert hafði hrapað ofan í Ármótin, inn að Búðardal. Snýkti þar roð, ugga og þunnildi, hlóp svo með það út í hríðina, og Ijetti ekki fyr en hann kom áð opinu þar sem húsbóndi hans var niðri. Ljet seppi þá fcng sinn detta ofan til lians. Hjelt hundurinn þannig lífi í húsbóndi sínum í 3 sólarhrínga. I>á var tekiö eptir því í Búðardal að rakkinn át. ekki það, sem honum var gefið en stökk með það út í bilinn, þótti það kynlegt, og var hann þcssvegna eltur og varð það Eggcrt til lífs. En fyrsta verk Eggerts var það, þegar hann var heim kominn, að láta sjóða hcilt hangikjötskrof handa hundinum; upp frá þeim degi ljet hann skamta honuin fullkomið karlmannsfæöi og búa um hann á sæng á hverju kvöldi. P. E. n>330»j

x

Dýravinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.