Dýravinurinn - 01.01.1889, Blaðsíða 45
45
Jarpskjóni.
^ianalega þykir mönnum vænna um reiðhesta sína enn aðra hesta, enda er það
’* fullkomlega eðlilegt, því þeir veita eigendum sínum marga unaðsstund og
bera þá yfir margar hættur og torfærur. En þó keinur það fyrir að mönnum
verði jafn vel til áburðarhesta. Jeg átti hest, jarpskjóttan, frá því hann var 4.
vetra og þangað til hann var 16 ára; ekki bar á því, að hann væri vithestur
meira cnn í meðallagi, en hann var hesta sterkastur, geðgóður, hlíðinn, þolinmóður
og tryggur. Jeg fann að liann átti svo gott skiliö af mjer, og jeg lánaði hann
aldrei öðrum og Ijet hann aldrei í vetrarfóður til annara. Einusinni höfðu vinnu-
menn mínir lagt á hann 16 fjórðunga kiyfjar yfir Ijallveg, og líkaði rnjer það
miður, en Skjóni styggðist ekki við það; hann tölti f einum spretti heim og var
jafn ánægjulegur og geðgóður þegar hann kom heim á hlaðið, eins og hann var
vanur. Hann sýndi aldrei mótþróa, enda þótt börn væru að þvættast með hann
fram og aptur; hann strauk aldrei, en var þar sem hann var látinn, og aldrei
styggði hann nokkurn mann í þau 12 ár, sern jeg átti hann. þeir menn eru
teljandi í sambáð, sem hægt, er að segja slíkt um. Jeg hafði opt lofað honurn því,
með sjálfum mjer, að dauðinn einn skyldi skilja okkur að.
þegar staða rnín breyttist, svo jeg jafnan þurfti að vera á ferðum,
afrjeði jeg að láta selja bú mitt við uppboð. þá var Jarpskjóni 16 vetra, með
óskemindum tönnum og beztu heilsu og að öllu útliti senr á blóma árum sínuin.
Jeg vildi því hvorki firra hann lífi, þá þegar, eða selja hann, og gjörði því þá
ráðstöfun, að hann skyldi ekki seljast; ætlaði jeg að láta hann ganga sjálfala á
afrjett á sumrutn og koma honum í gott fóður á vetrum og láta hann þannig
njóta lífsins gæða, það sern ejrtir var æli hans, að launum fyrir langa og
dygga þjónustu.
þegar uppboðið var lialdið, var jeg erlendis, en fyrir óskiljanlega
óheppni, var Skjóni seldur. þegar jeg kom heim og frjetti þetta, fór jeg til
sýslumannsins, til þess að fá að sjá hver hefði keypt hestinn, og fjekk að vita að
maður nokkur í Eyjafiröi haföi keypt hann. Jeg sendi þegar til eigandans, í
þeirn erindum að kaupa Skjóna af honum aptur, en þá var hann seldur austur í
Norður-Múlasýslu. Jeg setti svo rnann út þar í sýslu til þess að kaupa hann,
en fjekk aptur þau skeyti, að hann væri kominn í hestakaupum í Suður-Múlasýslu
og allt þetta hafði skeð á einum mánuöi. Jeg gjörði svo ýmsar tilraunir til þess
að spyrja uppi hvar Skjóni væri niður kominn, en gat þó aldrei náð honum, svo
ört gekk hann rnann frá manni. þetta voru launin, sem Skjóni fjekk fyrir 12 ára
trygga jrjónustu. J>ó óvilja verk væri, tel jeg þetta rneðal þess, sem jeg hef
ómaklegast gjört og sje enn þá eptir því að svona tókst til.
Mig heíur opt furðað að því hugsunarleysi, kaldlyndi, vanþakklæti og
mjer liggur við að segja illmenusku, þegar menn selja gainla reiðhesta sína, sem