Heimilisblaðið - 01.01.1941, Blaðsíða 3
30. árg. Reykjavík, jan.—febr. 1941 1.—2. blað
FREUSISHETIA SUDUR-AMERlKU —
SIINON BOUVÁR
Simon Bolivar, freisishetja Suður-Ame-
ríku, var sérkennileg og glæsileg þjóð-
hetja. Barátta hans fyrir frelsi Suður-
Ameríku undan yfirráðum Spánverja
var rsenn æfintýraleg og frækileg. Spán-
verjar höfðu ríkt yfir landinu í þrjár
aldir. Yfirráð þeirra einkenndust af
þrælahaldi, átthagafjötrun, einokunar-
verzlun og margþættri harðstjórn. Óeirð-
ir og samsæri tíðkuðust mjög.
Simon Bolivar var kominn af efnuðu
fólki. Hann missti foreldra sína, meðan
hann var á æskuskeiði. Um tvítugt tókst
liann ferð á hendur til Spánar og Frakk-
lands. Á námsárum sínum í Madrid og
París kynntist hann fólki úr öllum stétt-
um. Hann dvaldi í París við lok frönsku
stjórnarbyltingarinnar, og þar gisti hann
gleðisali samkvæmislífsins og naut ham-
ingjunnar í ríkum mæli. Hann sá Napo-
leon, meðan hann var enn yfirkonsúll.
Síðar varð hann fyrir miklum áhrifum af
Napoleon. Hann kvæntist og hvarf aftur
heim árið 1802. En hin unga eiginkona
hans lézt eftir fárra mánaða samvistir.
Þá hvarf hann aftur til Evrópu og satt-
ist að í París að nýju. Hann lifði í
glaumi og gleði. Þó leitaðist hann jafnan
við að kynnast merkum mönnum. Einn
þeirra var landfræðingurinn Humboldt.
En á námsárum sínum í París lagði hann
ríka áherzlu á að þroska þannig með-
fædda hæfileika sína, að honum yrði
auðunnin vinátta manna og hoHusta.
Simon Bolivar.
Þessi eiginleiki varð honum ómetanlegur
síðar.
Bolivar var maður lágur vexti eins og
Napoleon. Hann var ákafamaður í skapi
en mislyndur. Hann gat verið ástúðlegur
og kurteis í framkomu, en stundum var
hann líka illur viðureignar og tamdi sér
þá lítt siðgæðishætti né umgengnisvenjur.
Hann var kvenlegur í útliti og hendur
hans og fætur fíngerðar. Hann var svart-
hærður. Dimm, leifrandi augu hans lágu
djúpt undir miklum brúnum. Hann var