Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1941, Blaðsíða 22

Heimilisblaðið - 01.01.1941, Blaðsíða 22
22 HEIMILISBLAÐIÐ Skyndilega rcfnaði þögnin við ógurlegt ösk- ur neðan úr undirdjúpum. Shadrach sagði, að þetta væri um þær mundir, sem Fungar gæfu sínum helgu ljónum, sem þeir halda á botni goðalík- neskis síns. Nú fór að skyggja af kvöldi í Harmac- d,alnum og þá vissum við að sólin færi að petjast bak við fjöllin. Hefði ekki varpað kynlegu ljósi frá skýi í austri, myndi svart- myrkur hafa legið yfir undirdjúpunum. En nú kom einhver í ljós á hinu tröll- aukna höfði goðsins og bar við himin greinilega, þótt lítill sýndisit vexti og tók að syngja. Þegar ég heyrði þessa rödd í fjarskanum, þá lá mér við svima cg hefði dottið, ef Kvik hefði ekki gripið mig. »Hvað er þetta, Adams?« spurði Orme og leit upp. Þau Maqueda, höfðu setið og pískrað saman; en Jósúa virti þau fyrir sér allt annað en blíðum augum. »Er það Higgs, sem við sjáum þarna?« »Nei«, svaraði ég, »en Guði sé lof, að sonur minn er enn á lífi. Það er röddin hans, siem við heyrura. Ö, ef okkur gæti tekist að bjarga hoinum!« Nú. varð mikið uppnám. Einhver stakk veiðikíki í bönd mér; en hvort sem ég hefi stillt hann vitlaust eða ég verið svo óstyrk- ■uf í taugum, að ég gat ekki notað hann; vís.t er það, að ég sá ekkert með honum. Þá tók Kvik við ho.num og hann flutti þessa fregn: »Grannur maður í hvítri kápu; andlitið get ég ekki greint í svo mikilli fjarlægð. Við gætum máske kallað til hans, en þá kæmum við upp um. okkur. Ö, nú er sálmurinn sunginn og hann er horfinn. Það er eins og hann hafi stokkið niður í einhverja klettaskoruna og það sýnir, að hann er í fullu fjöri. Verið því uppleitur, doktor«. Þegar sálmurinn var búinn c.g sonur minn horfinn, komu þrír Funga-hermenn í ljós á ljónsbakinu, laglegir piltar, klædd- ir síðum kápum og girtir spjótum. Að baki þeim fór lúðurþeytari, sem bar horn eða holaða fílstönn. Þessir fjórir gengu nú upp og piður á baki goðsins, milli hnakka og hala, augsýnilega til að njósna. Auðvitað sáu þeir ckkur ekki, svo vel sem við vorum. faldir á bak við runnana á litla pallinum. Og er þeir urðu einskis vísari|, blés lúður- þeytarinn hvellu hljóði úr horninu cg áð- ur en bergmálið dó út, hvarf hann og fé- lagar hans. »Þetta er sólseturs-eftirlitið. Ég hefi séð eitthvað svipað áður í Gíb«, sagði Kvik. »En — »Kötturinn« hefir samt ekki logið — það er hann!« Hann benti á mann, sem skynd-ilega kom upp á svarta standdrang- ann, það er: bakið á goðinu, nákvæmlega á þeim sama s.tao, sem vörðurinn hvarf niður. Það var Higgs — ljóslifandi með slitinn, hvítan stráhatt og með svörtu gleraugun sín, reykjandi merskúmspípuna sína, önn- um kafinn að rita athuganir sínar í vasa- bókina sína, jafn rólegur, eins og hann væri heima í Lundúnum. Ég gapti af undr- un, því að ég hafði í rauninni aldrei bú- is.t við að ég myndi sjá hann. En Orme rétti sig upp og sagði ósköp rólega: »Já, það er hann, það er alveg áreiðanlegt. Gott og vel, þá verðum við að fara. Þú Shad- rach, varpa þú stiganum þínum yfir ljóns- halann og far þú sivo fyrstur upp, svo að ég geti fengið vissu fyrir því, að þú sért ekki að leika á mig«. »Nei, þann hund skaltu ekki láta fara á undan«, sagði Maqueda af ákefð mikilli. »Hann kemur aldrei aftur þaðan, því að hann á sína vini meoal Funga. En þú, mað- ur«, sagði. hún og vatt sér að Jafet, sem hún hafði heitið jörðinni, eins og áður er sagt, »far þú fyrst og haltu í enda stig- ans, meðan þessi herra, gengur upp. Og' komi hann heill á húfi til baka, gef ég þér hálfu stærri landspildu«. Jafet kastaði kveðju á þau Maquedu og fór og sptti upp stigann og festi hann á bergnös í hala ljónsins. Fjallgöngumaður- inn nam þá lítið eitt staðar og leit til him- ins auðsjáanlega í bæn. Síðan bað hann félaga sína að halda við hinn enda stig-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.