Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1941, Page 15

Heimilisblaðið - 01.01.1941, Page 15
HEIMILISBLAÐIÐ 15 an hósta. Það var Kvik, sem var að koma inn að oss óvörum. »Þér megið ekki, doktor, álasa höfuðs- rnanni fyrir það, þó' að hann muni þetta ekki. Annað eins áfall og það, sem hann fékk eftir sprenginguna, eyðileggur minnið meira en nckkuð annað. Ég sá það oft í Búastríðinu eftir það er sjDrengikúlurnar sprungu allt í kringum okkur. Hraustustu hermenn gátu þá alveg gleymt því, að það var skylda þeirra að standa kyrrir. Þeir runnu á flótta sem hérar. Já, vissulega kom, það líka fyrir mig sjálfan«. Ég fór að hlæja. Oliver sagði eitthvað, sem ég heyrði ekki, en Kvik hélt áfram aö rausa, eins og ekkert væri. »Rétt á að vera rétt. Og hafi höfuðsmað- ur gleymt þessu,, þá er því m'eiri ástæða til að minna hann á það. Það var eitt kvöld- ið heima í Lundúnum, er við vorum hja prófessoirnum, að þér, doktor, gáfuð hon- um þessa viðvörun, og þá svaraði hann því, að þér þyrftuð ekki að ómaka yður með það að masa um yndisleika svartrar konu •—« »Svartrar konu«, hrópaði Orme upp. »Það orð hefi ég aldrei nctað og hefir aldr- ei komið mér í hug. — Og' þér eruð svo ósvífinn þrjótur, að saka mig um það! Svört kona! Guð minn góður, en sú van- helgunk »Já, það er satt, höfuðsmaður, mér þyk- ir leitt, að mér skjátlaðist. Það var »svört kona«, sem þér nefnduð, en ekki »s,vert- ingjakona«. Og ég bað yður að vera ekki of hreykinn, því að fyrir gæti það komið, að við sannreyndum, að þér félluð á kné fyrir henni og svo kæmi ég sjálfur á eítir skríðandi á maganum. Alveg rétt, já, og nú erum. við einmitt komnir að þessu marki. Yður þykir að vísu of mikið sagt með þessu, því að er ég máske ekki sjálfur nákvæm- lega í sömu sporum? En auðvitað dreg ég mig aftur úr og drattast á eftir í þessu efni, eins og ég sagði«. »Það er þó víst ekki meining yðar, að þér séuð skotinn í niðja konunganna?« hrópaði Oliver og einblíndi á Kvik. »Fyrirgefið, höfuðsmaður, en það er nú einmitt það, sem ég er. Hafi köttur leyfi til að glápa á drottninguna, þá hefir mað- ur líklega leyfi til að elska hana? En það er ekki sennilegt, að ás.t mín á henni komi í bága við ástir yðar á henni. Við mig mun fljótt verða sagt: Varðmaður, á vörð með þig! Og svo væri máske hnífur rekinn í maga mér á eftir. En þér, við sáum hvað yður gafst síðdegis. Til hvers þetta allt muni leiða, vitum vér reyndar ekki. En samt sem áður segi ég, höfuosmaður, upp með seglin og látið skeika að sköpuðu, jafnvel þótt skútan sökkvi í sæ eftir á, því að þessi hefðarkona er, þótt hún sé hálf- gyðingur, og mér hefir aldrei geðjast að Gyðingum — já, hún er hin inndælasta, mest heillandi og hraustasta kona, sem. nokkurn tíma hefir verið á ferð á Guos grænni jörðu!« Og er hann sagði þetta tók Oliver í hönd houum og þrýsti hana af öllum lífsins kröftum. Og mér er grunur á, að eitthvað af þessari lýsingu Kviks á Maquedu hafi borizt henni til eyrna. Víst er það, aó minnsta kasti, að upp frá þessum degi veitti Maqueda Kvik hina »völdustu at- hygli«, eins, og Frakkar segja. En ég, sem ekki var ástfanginn af henni, fékk enga viðurkenningu, og gekk því á burt og lét þeim einurn eftir að ræða dyggðir og yndisleik Maqedu. Ég gekk til rekkju fullur af skuggalegum hugboðum.. Því verður ekki neitað, að Maqueda var alveg óvenjulega hugfangandi. Auk henn- ar frábæru fegurðar, var hún undursam- lega töfrandi og svo hafði hún hið mesta sálarþrek. Aðstaða hennar hlaut líka að vekja hvers manns. meðaumkvun, svo ein- stæð sem hún var meðal þessarar voluðu þjóðar, sem hún var að reyna að bjarga, þó að það reyndist árangurslaust. Og hvernig gat hún komist hjá að farast með þjóð sinni, þar sem hún var dæmd til þeirra hörmulegu örlaga að verða. hlekkjuð við

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.