Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1941, Síða 5

Heimilisblaðið - 01.01.1941, Síða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 5 Bolivar varð að berjast við marga spæn- ska hershöfðingja. Einn þeirra, er Boves hét, reyndist einna harðleiknastur. Menn Bolivars, sem félluí hendur Spánverjum, urðu að þola ólýsanlegar kvalir. Bolivar tók því það ráð að hafa liandtekna Spán- verja í fylkingarbrjósti, þegar lagt var til atlögu. Spánverjar tóku brátt upp sörnu baráttuaðferð. Boves hafði rnargt reynt og lifað. f æsku' hafði hann verið sjó- ræningi. Hermenn hans voru llestir æfin- týramenn, sem höfðu yndi af ránum og gripdeildum. Hvatti Boves þá frekar en latti í þessum efnum. Hann lét fanga þá, er féllu í hendur honum, vera nakta í brennandi sólskininu. Hann lét berja þá, svo að líkamir þeirra urðu flakandi í sárum, er flugurnar settust í. Það var yndi hans að kvelja menn með eigin hendi. Einu sinni bjóst hann til að háls- höggva varnarlausan og saklausan öldung. Sonur öldungsins féll honum þá til.fóta og bað föður sínum griða. Boves spurði hann, hvort hann væri fús á að láta skera af sér nef og eyru, til þess að frelsa líf föðursins. Sonurinn gekk að þessum afarkostum. Hermdarverkið var síðan framkvæmt. Síðan lét Boves taka þá feðga báða af lífi. Barátta Bolivars gegn Boves og hinum villta her hans varð brátt vonlaus, oghann neyddist til að flýja land að lokum. Þegar hér var komið sögu hafði Boli- var eigi hlotið neina þjálfun í hernaði. Persónuleiki hans var einnig í mótun. En nú hafði honum hlotnazt hagkvæm reynsla. Honum varð það ljóst, að frels- stríð þjóðar hans myndi aldrei verða til lykta leitt með sigurvænlegum hætti, ef foringjar þess væru sundraðir og ósáttir, Hann gerði sér einnig glögga grein fyrir því, hversu hrýn nauðsyn var á skjótum og djarflegum aðgerðum. Hann tók nú að skipuleggja her sinn að nýju. Hann safn- aði til sín öllum þeim, sem áður höfðu barizt með honum og til varð náð. Einn- ig lagði hann ríka áherslu á að fá brezka hermenn í lið með sér. Tókst honum að fá lið sitt skipað mörgum hæf- um Englendingum. Jafnframt rak liann víðtæka og margþætta áróðursstarfsemi. Þannig varð hann smám saman hinn raunverulegi foringi frelsisbaráttu þjóðar sinnar. í desembermánuði 1816 steig hann á land á norðurströnd Suður-Ameríku. Nú hófst hin fræga frelsisbarátta hans, sem hafði gerst örugg og markviss. Fyrst beindi hann sókn sinni til lág- lendisins og vatnahéraðanna í suðri og austri. Þar var honum ekkert viðnám veitt, og þar gat hann gætt fyllstu var- færni. Síðan hóf hann sókn 1 þeim lands- hlutum þar sem átökin urðu harðari. Tókst honum að vinna stóra sigra og leggja undir sig víðlendur miklar. Að lokum kvaddi hann saman ráðstefnu, er skyldi gefa landinu stjórnarskrá. Eigi að síður var hann hinn rauverulegi stjórn- andi og gerði allar eigur Spánverja upp- tækar í þeim hluta landsins, er hann hafði yfir að ráða. Hann hélt styrjöldinni jafnan áfram en gætti fyllstu varúðar í hvívetna. Hon- um var það ljóst, að úrslitaorustan við Spánverjana var enn óháð. Hann gekk þess sízt dulinn, að úrslitin voru tvísýn, enda við mikinn liðsmun að etja. Að lokum hafði honum auðnast að sækja fram alt til Cordillfjalla. Þau voru ill- fær yfirferðar með gróðurlausum og köld- um hásléttum. Handan þeirra lá Nýja- Granada. Höfuðhorg hennar nefndist Bo- gota. En eina leiðin þangað var á valdi Spánverja. Bolivar ákvað að fara yfir Cordillfjöllin og koma óvinunum í opna skjöldu. Yar þessi ákvörðun þó í and- stöðu við vilja og ráð samstarfsmanna hans. En fyrir þetta afrek hefir hann getið sér ódauðlegan orðstír. Þessari dáð Bolivers hefir meira að segja oft ver- ið líkt við för Hannibals og Napoleons yfir Alpafjöllin. Förin yfir Cordillfjöllin var margþætt-

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.