Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1942, Síða 10

Heimilisblaðið - 01.01.1942, Síða 10
8 HEIMILISBLAÐIÐ góði maður, og fótspor hans leiðir upi) á þroskatindinn. Svo skeður líka það kynlega fyrirbæri, að menn, sem í rauninni hafa kristnar hugsjónir, berjast raunverulega á móti þeim, því þeir ýmist ráðast á kirkjuna og áhrif Krists-prédikunarinnar í landinu, eða láta þetta eins og afskiftalaust. Peim fer líkt og börnum sem halda að þau geti orðið að lærðum og góðum mönn- um án lærdóms og aga. Eða manni er hugsaði að ræktun túnsins kæmi af sjálfu sér. Þeir virðast ekki skilja að siðferðiö er ævinlega ávöxtur trúartrésins. En þetta þarf að breytast. Ráðamenn þjóðfélagsins þurfa að leggja betri krist- indómsgrundvöll undir þjóðlífið. Það þarf að auka kristileg áhrif, í skólunum, í blöð- unum, í bókmenntunum og hvar sem er. Og þessu ætti að fást framgengt. Því Krist- ur hefir þó svo gegnsýrt almenningsálit- ið, að menn finna og skilja, að það er ekki mest gleði og gæfa í synd eða sjálfvelc'li — heldur í guðshlýðni og hreinleik hugar- farsins, í einu orði, í Krists-lyndinu. II. Það er önnur hlið á áhrifavaldi Krists að því er snertir daglega lífið, sem ég verð að minnast á. Við höfum aldrei ver- ið heittrúar þjóð Islendingar, og erum flestir lítiltrúaðir enn. Sarnt er Jesús hinn lifandi Drottinn í huga ótal fleirí manna og kvenna, en hafa það nokkurntíma á orði. Stanley Jones segir frá þessu smáatviki: »Vinur minn, sem fór ríðandi um strjál- býlt hérað í Virginiu, rakst á skógarrjóð- ur, þar sem blökkukona stóð í kofadyrum. Vinur minn kastaði kvðeju á hana og spurði hver byggi þarna. Hún svaraði glað- lega: »Enginn nema ég og Jesús!« Einnig á voru landi, Islandi, eru inarg- ir, sem þykir bezt að eiga Jesú að. Nokk- ur bending í þá átt, er það, að varla mun nokkurt ljóð vera alkunnara í landinu en þessi sálmur: »ó, þá náð að eiga Jesú einkavin í hverri þraut«. Fyrir fám árum var frá því sagt, að er íslenzkur togari fórst, þá heyrðust sumir sjómennirnir syngja þennan sálm, áður en þeir misstu tökin á reiðanum og féllu í sjóinn. Eg segi yltkur það fyrir satt, að marg- ir beygja hjartans kné oftar fyrir hinum upprisna frelsara en okkur grunar. Sumir gera það á mestu gleðistundum lífsins. Þegar sóklýrð vorsins eða unaður kærleikans knýr þá til að lofa Drottin eins og lóan í söng. Aðrir gera það á freistingarstundunum, eða þegar þeir hafa fallið, eða siglt í strand. Þá kalla þcir á frelsarann til að hjálpa sér að komast upp breltkuna, sem þeir hröpuðu niður. Eða til að opna sund- in á ný. Ótal gera það á hættustundunum eins og Pétur forðum á vatninu, þegar hann hélt að hann væri að sökkva. Þannig gríp- um við oft eftir hönd Drottins í örvænt- ingunni. Ýmsir halla eins og þreyttir höfðinu að hjarta hans. Og í hinurn dýpstu hörmum, þá er horft tárvotum augunum til Drottins. Þá er engin Huggun á við það, að reyna að trúa þessu: »Ég veit minn, ljúfur lifir lausnarinn himnujn á. Hann ræður ö.llu yfir, einn heitir Jesú sá. Sigrarinn dauðans sanni sjálfur á krossi dó, og mér svo aumum manni eilíft líf víst til bjó«. Það er líka til Jesú, sem flestir skyggn- ast, þegar myrkur dauðans nálgast — þá er vonað inn í Ijósheima hans. Ég er einn af minnstu bræðrunum í fá- mennu dalakalli, þar sem fáar sögur ger- ast.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.