Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1942, Side 11

Heimilisblaðið - 01.01.1942, Side 11
HEIMILISBLAÐIÐ En ég' á meðal annars elna ðgleyman- lega minning. Kalt og dimmt vetrarkvöld var ég 'beðinn að þjónusta gamla konu. Hún hafði ekki verið kirkjuræknari en gengur og gerist um dagana — svona hvorugt. Og hún hafði heldur ekki l'lík- að sínum kristindómi, sinni Lrú, öðrum fremur. En nú vissi hún og aðrir að komið var í áfanga. Síðasta nóttin fór í hönd. Áö- ur en dagur rynni hér á jörð, mundi hún vita, hvernig morgun eilífðarinnar ljóm- ar, og hún vænti þess þá, að sjá Droltinn, augliti til auglitis. Hafði vamst þess frá því að hún var barn. Þess vegna vikli hún seinast ]>ergja af bikar hans fara b.eint úr kvöldboði hans inn í fögnnð morgunhátíðarinnar. Eg veitti henni sakramentið. Eg sá að hún var máttfarin. Aðra breytingu sá ég ekki á henni. Hún gekk til dyra mót dauð- anum, ekki getur maður sagt í daglegu fötunum — ónei, f sparifötunum. eins og til veizlu — eitthvað líkt ijarni á jólum. Þá skildi ég sem oftar iive Kristur er víða í daglega lífinu, hve hann mótar ekki aðeins lífernið meira og minna, heldur er líka Drottinn hjartans. Ég dyl þess engan, að ég er einn of okk- ur hinum lítiltrúuðu syndurum. En ég játa samt, að ég veit, að það ei- fegursta lífið að lifa Drottni í starfi sínu — hvað sem það er -- og deyja honum svona eins og alþýðukonan. Það er líka hugsjón hvers kristins manns og æðsta þrá að lifa svo þessu lífi, að við höfum von um að geta í fullum skilningi verið með Drottni, þegar eilífðin ljómar. Enda er það að mínu viti ætlun lífsins! Yí sa. Sérhver gallast öldruð eik af stormgjalli hörðu, grösin hallast blaða bleik, brotna, falla að jörðu. K. S. 9 Lítid brot úr sögu smásjáarinnar. Marcelió Malpighi ítalskur líkskeri (1628—1694) varð á sínum tíma i'rægur af því, að hann notaði fyrstur við líkskurð smásjá þá, er þá var fyrir skémmu fund- in til að rannsaka byggingu mannlegs líkama, og dýralíkama og jurta. En eink- um lagði hann slund á að rannsaka rás blóðsins frá slaga-ðum til bláæða. Enski læknirinn John Harvey, fann fyrstur hringrás blóðsins (1628), eða það. að blóð það, sem rann frá hjartanu eftir slagæð- unum, kom aftur iim í hjartaðmeð bláæð- unum; en hins vegar fann hann ekki, hvernig blóðið barst frá slagæðunum inn í bláæðarnar. fann ekki háræðakerfið. A! þeiiu sökum voru þeir meðai annars, svo margir, sem voru svo tregir til að trúa nppgötvun Harveys. En Malpighi réð þessa g'átu með því að fylgja blóðinu eft- ir háræðunum í lungum á froski með ein- földu smásjánni sinni (1661). Malpigiu gat iíka greint rauðu kornin í blóðinu (1661), en gat ekki fundið, hvert hiðsanna eðli þeirra væri né lýst þeim nákvæmiega, hugði helzt, að það væri örsináar litukúlur. Þá var þaö, að hollcnzki líffræðingur- inn Anton van Leeuwenhoek kom lil sög- unnar, fædclur í borginni Delft a Hollandi 24. okt. 1632 og dáinn sama staðar 26. ág. 1723. Framan af æfi sinni (til 1654) var hann bókhaldari og féhirðir hjá klæðsala ein- um í Amsterdam; hafði lvann þar góð laun en lítinn starfa. En þá hvarf hann aftur til Deli't og gaf sig úr því allan við nátt- úrurannsóknum. En þó var hann alls- endis ólærður, því að svo mátti heita, að hann færi á mis við alla skólagöngu. Á háskóla gekk hann aldrei, hvorki til að nema né kenna. En að hann skyldi, þrátt fyrir það, verða einn með fremstu vísinda- mönnum um sína daga, var eingöngu hug- viti hans og hagleiksgáfu að þakka og

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.